Mynd: EPA

Fordæmalausir fólksflutningar undir blóðrauðum himni

„Hræði­legur dagur“ er í upp­sigl­ingu í Ástralíu þar sem gríð­ar­legir gróð­ur­eldar hafa geisað mán­uðum saman. Tug­þús­undum hefur verið gert að yfir­gefa heim­ili sín.

Him­inn­inn er brúnn eða app­el­sínu­gulur. Stundum blóð­rauður. Vart sést til sólar. Eld­tungur teygja sig upp úr gríð­ar­legu eld­hafi í allt að sjö­tíu metra hæð. Reyk leggur yfir borgir og bæi og fólk og dýr á fótum sínum fjör að launa. Ekki hefur þó öllum tek­ist að flýja. Og enn á ástandið eftir að versna.

„Þetta eru skelfi­legar nátt­úru­ham­farir sem að miklu leyti eru af manna­völdum. Ég tel það skýrt að veð­ur­fars­breyt­ingar og hlýnun jarðar, og þá sér­stak­lega í þessum heims­hluta, eiga þátt í því að breiða út eldana.“

Þetta segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur í sam­tali við Kjarnann um gróð­ur­eldana miklu í Ástralíu sem hafa þegar kostað átján manns lífið, þar af þrjá slökkvi­liðs­menn og 28 er enn saknað. Eldarnir hafa einnig valdið gríð­ar­legu eigna­tjóni og eyði­lagt yfir 1.200 heim­ili. Þá eru þeir taldir hafa grandað um 500 millj­ónum dýra, m.a. þús­undum kóala­bjarna.

Stjórn­völd í Nýja Suður-Wales, fjöl­menn­asta fylki lands­ins, hafa lýst yfir neyð­ar­á­standi næstu vik­una og fyr­ir­skipað tug­þús­undum að yfir­gefa svæði, jafn­vel heilu bæina, þar sem ógnin er hvað mest. Þeir fólks­flutn­ingar eiga sér ekki hlið­stæðu á þessum slóðum. Herinn und­ir­býr einnig að flytja um 4000 manns, sem orðið hafa inn­lyksa í eld­unum, frá Vikt­or­íu­fylki.

Fleiri þús­und manns hafa setið fastir tímunum saman í margra kíló­metra löngum röðum bíla á vegum frá rým­ing­ar­svæð­unum. Von er á hærri hita og hvass­ari vindi um helg­ina og farið er að bera á skorti á nauð­synja­vörum í bæjum sem hafa ein­angr­ast milli eld­anna. Í Nýja Suður-Wales hafa eldar logað á um níu­tíu stöðum sam­tímis, svo dæmi sé tekið.

Yfirvöld í fylk­inu hafa nú leyfi til að þvinga rým­ingar, loka vegum og „alls ann­ars sem við þurfum að gera til að tryggja öryggi íbúa og eigna,“ sagði fylk­is­stjór­inn Gladys Ber­ejiklian er ákvörðun um að lýsa yfir neyð­ar­á­standi var tekin. „Þessar ákvarð­anir eru ekki teknar af léttúð en við viljum gera allt sem við getum til að und­ir­búa laug­ar­dag­inn sem gæti orðið hræði­legur dagur.“

Hræði­legur dagur í nánd. Margir hræði­legir dagar eru þegar að baki.

En á morgun, laug­ar­dag, mun enn draga til tíð­inda. Andrew Contance, sam­göngu­ráð­herra Nýja Suður-Wales, líkir ástand­inu sem von er á um helg­ina við málm­bræðslu­ofn.

Svæði á stærð við hálft Ísland brunnið

Eldarnir kvikn­uðu í ástr­alska vor­inu í sept­em­ber og hafa víða færst í auk­ana. Síðan þá hefur gróður á land­svæði á stærð við hálft Ísland brunnið, m.a. skógar sem hingað til hafa sloppið í slíkum ham­förum.

Skóg­ar­eldar eru nefni­lega árlegir í Ástralíu. Ástralar vita því að vor­inu geta fylgt eldar. Þeir fylgj­ast með fréttum og varpa svo önd­inni léttar þegar fregnir ber­ast af því að búið sé að ná tökum á eld­unum. En þetta sum­arið hefur sú frétt látið á sér standa. Og rign­ingin sömu­leiðis.

Ástralar eru líka vanir því að gróð­ur­inn taki fljótt við sér. Hröð end­ur­nýjun skóga tröllatrjánna (eucalyptus) er um margt óvenju­leg. En eld­arnir nú æða um forna skóga í fyrsta sinn og talið er ólík­legt að þeir nái sér nokkurn tím­ann.

Reyk­ur­inn er líka þykk­ari en Ástralar eiga að venj­ast. Í borg­unum hefur hann legið yfir strætum og torgum dögum saman. Reyk­ur­inn er svo þykkur að hann sést vel á gervi­tungla­myndum. Myndir af fólki á strönd­inni, ekki að sóla sig heldur flýja eldana, segja sína sögu. Dæmi eru um að fjöl­skyldur hafi orðið inn­lyksa milli hafs og elda í sól­ar­hring áður en hjálp barst.

Margt minnir á atriði úr ham­fara­mynd­inni On the Beach sem tekin var í Melbourne fyrir sex­tíu árum. „Ava Gardner, Gregory Peck og Fred Astaire voru í aðal­hlut­verkum í On the Beach,“ rifjar David Marr, blaða­maður Guardian í Ástralíu, upp. „Í end­ur­gerð­inni erum við aðal­stjörn­urnar.“

Milljónir dýra hafa drepist í eldunum og búsvæði fjölmargra eru rústir einar.
Millj­ónir dýra hafa drep­ist í eld­unum og búsvæði fjöl­margra eru rústir einar.

Þetta sum­arið hafa gróð­ur­eldar logað í öllum fylkjum lands­ins þó að Nýja Suður-Wales og Viktoría hafi orðið verst úti. Stærstu borg­irnar, m.a. Melbourne og Sydney, hafa ekki farið var­hluta af ástand­inu enda logar í gróðri skammt utan þeirra. Þykkur reykur hefur lagst yfir þær vikum saman og í byrjun des­em­ber var loft­mengun í Sydney langt yfir hættu­mörkum. Í síð­ustu viku voru loft­gæðin í höf­uð­borg­inni Canberra sögu­lega slæm og hættu­leg heilsu fólks.

Eldarnir eru mis­jafnir að umfangi. Sumir eru stað­bundnir, loga á litlum svæðum og eru slökktir fljótt en aðrir eru gríð­ar­mikil eld­höf á mörgum hekt­urum lands sem logað hafa mán­uðum saman. Eld­tung­urnar hafa náð allt að sjö­tíu metra hæð, svip­aðri hæð og Hall­gríms­kirkju­turn.

Hið ástr­alska sumar er ávallt heitt og þurrt og við slíkar aðstæður kvikna eldar auð­veld­lega. Oftast kvikna þeir af nátt­úru­legum orsökum, t.d. þegar eld­ingum lýst niður í þurrt skóg­lendi. Vindar eiga það svo til að bera með sér glæður langar leiðir og breiða þannig út bálið. Eldarnir hafa oft­sinnis verið mann­skæðir í sögu lands­ins. Árið 2009 lét­ust 173 í Viktoríu-fylki sem er mesta mann­tjón sem orðið hefur í gróð­ur­eldum í heim­inum.

En eld­arnir nú eru af nokkuð öðrum toga. Aðstæður hafa skap­ast sem eiga sér vart hlið­stæðu og hafa gert slökkvi­liðum lands­ins sér­lega erfitt fyrir. Nú geisa langvar­andi þurrkar og ástr­alska vorið í ár er það þurrasta frá því mæl­ingar hófust. Ofan á þetta bætt­ist svo hita­bylgja i des­em­ber. Hæstur varð hit­inn þann 18. þess mán­aðar eða 41,9°C. Aldrei fyrr hafa slíkar hita­tölur mælst í Ástralíu. Þá hafa vindar blásið af krafti og þannig hafa eldar og reykur breiðst hraðar út.

Einar segir í raun ótrú­legt að mann­tjón hafi ekki verið meira en minnir á að margir hafi orðið fyrir miklum búsifjum. Stórar vín­ekrur hafa t.d. orðið alelda. „Svo er það þessi ótti og hræðsla meðal fólks sem fylgir þessu.“

Sér­fræð­ingar hafa lengi haldið því fram að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum ýti undir nátt­úru­ham­farir á borð við gróð­ur­elda og flóð og sagt að meiri veð­ur­öfgar séu þegar farnar að eiga sér stað. Síðustu árin hafa skóg­ar­eldar í Ástralíu kviknað fyrr en áður þekkt­ist og breiðst hraðar út og af meiri ofsa. „Almennt séð, vegna hækk­andi hita af manna­völdum, þá hafa veð­ur­fars­beltin verið að fær­ast til,“ útskýrir Einar. „Birt­ing­ar­mynd lofts­lags­hlýn­unar er að koma fram á meg­in­löndum suð­ur­hvels jarðar. Á norð­ur­hveli sést hún frekar í kringum heim­skauta­svæðin þar sem jöklar hafa bráðnað hratt síð­ustu árin.“

Að sögn Einars eru nokkrar ástæður fyrir því að á Ástralía verður harka­lega fyrir barð­inu á lofts­lags­breyt­ingum. Ein skýr­ingin er sú að suð­ur­hvel jarðar er haf­hvelið, þar eru haf­svæðin yfir­gnæf­andi og hafa meiri áhrif en á norð­ur­hveli. „Frávik sem verða í sjónum, til dæmis miklir hitar sem hafa verið í Ind­lands­hafi, valda því meðal ann­ars að vest­ur­hluti Suður-Afríku þornar upp á meðan það er meiri úrkoma í aust­ur­hlut­anum. Svipað er ástatt um suð­ur­hluta Suður-Ameríku. Og svo í Ástralíu hafa veð­ur­fars­beltin verið að fær­ast til og þau svæði sem þegar eru mjög þurr verða ennþá þurr­ari.“

En vís­inda­menn og stjórn­mála­menn eru ekki sam­mála um hvað sé að eiga sér stað. Jú, eld­arnir eru miklir, en það hafa þeir nú verið áður, full­yrða þeir síð­ar­nefndu.

Scott Morrison, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, var harð­lega gagn­rýndur er hann fór í jóla­frí til Hawaii á meðan jörð brann í heima­land­inu. Stað­geng­ill hans í emb­ætti, Michael McCormack, sagði á þeim tíma­punkti við þjóð­ina: „Við höfum áður séð svona reyk. Við höfum áður séð gróð­ur­elda.“ Sami tónn var í nýársávarpi Morri­sons. Þar sagði hann að fyrri kyn­slóðir Ástrala, þar á meðal frum­byggjar álf­unnar, hefðu einnig staðið and­spænis nátt­úru­ham­förum; flóðum, eldum og þurrkum. „Við höfum áður staðið frammi fyrir svona áföllum og við höfum sigr­ast á þeim. Það er hinn ástr­alski andi.“

Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, hefur ekki átt sjö dagana sæla upp á síðkastið.
Scott Morrison, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, hefur ekki átt sjö dag­ana sæla upp á síðkastið.

Stjórn hans hefur verið gagn­rýnd fyrir að bregð­ast ekki við lofts­lags­vánni. Í nýársávarpi sínu gaf hann lítið fyrir til­lögur Verka­manna­flokks­ins og Græn­ingja í þeim efnum og sagði: „Við munum ekki eyði­leggja lífs­við­ur­væri Ástrala með því að taka upp ábyrgð­ar­laus mark­mið sem munu hækka raf­orku­verð [...] eða með því að snúa baki við hefð­bundnum atvinnu­greinum [m.a. kola­vinnslu].“

Því eldar hafa jú logað áður. Og Ástralar hafa áður sigr­ast á þeim. Ekkert óvenju­legt þar á ferð, að mati hinna póli­tísku leið­toga.

Einar er þessu ósam­mála. „Þetta er sann­ar­lega óvenju­legt ástand. En þetta er líka póli­tískt hita­mál í Ástralíu, þar er búið að rugla almenn­ing í rím­inu. Stjórn­völd í Ástralíu eru í full­kominni afneitun á þessu orsaka­sam­hengi sem smit­ast auð­vitað út til lands­manna.“

Ýmislegt bendir til þess að ástr­alska sum­arið nú sé vissu­lega frá­brugðið öðrum.

Land­svæðið sem hefur orðið eldi bráð er t.d. mun stærra en síð­ustu ár. Í Nýju Suður-Wales hefur eldur logað á meira en 3,4 millj­ónum hekt­ara lands nú þegar, sam­an­borið við um 280 þús­und hekt­ara að með­al­tali á und­an­gengnum árum.

Eldarnir loga líka víðar og á öðrum svæðum en oft áður. Þá má nú finna austar og á þétt­býlli svæðum en t.d. eld­arnir miklu árið 1974.

Áhrif á dýra­ríkið hafa verið gríð­ar­leg. Óttast er að um 8.000 kóala­birnir hafi þegar drep­ist. Margir birnir hafa auk þess særst og misst heim­kynni sín. Kóala­birnir áttu fyrir undir högg að sækja og ham­far­irnar nú auka á hættu á útrým­ingu þeirra á ákveðnum svæðum. Vist­fræð­ingar við Háskól­ann í Sydney telja að um 480 millj­ónir spen­dýra, fugla og skrið­dýra hafi drep­ist frá því eld­arnir kvikn­uðu í sept­em­ber.

Eldar hafa logað í öllum fylkjum Ástralíu en mestir hafa þeir verið á suðausturströndinni. Kortið sýnir elda sem loga í rauðum lit en elda sem slökktir hafa verið í gulum lit.
Eldar hafa logað í öllum fylkjum Ástralíu en mestir hafa þeir verið á suð­aust­ur­strönd­inni. Kortið sýnir elda sem loga í rauðum lit en elda sem slökktir hafa verið í gulum lit.

David Bowman, sér­fræð­ingur við Háskól­ann í Tasmaníu, bendir svo á að efna­hags­legra áhrifa ham­far­anna sé farið að gæta. „Það er ekki hægt að halda uppi eðli­legu efna­hags­lífi þegar þriðj­ungur, jafn­vel helm­ingur þjóð­ar­innar, hefur orðið fyrir áhrifum reyks og fjöl­miðlar ein­blína á eldana. Ég veit ekki af hverju ein­hver vill halda því fram að eldar sem þessir hafi áður átt sér stað. Það er áhyggju­efni þar sem það heftir aðlög­un­ina. Fyrsta skrefið í því að takast á við elda sem þessa er að við­ur­kenna umfang vand­ans.“

Margir ferða­manna­staðir eru rjúk­andi rústir og aug­ljóst að áhrif ham­far­anna á ferða­þjón­ust­una verða gríð­ar­leg. Yfirvöld hafa rýmt nokkra ferða­manna­staði, m.a. þjóð­garða og strand­bæi, sem á þessum árs­tíma eru yfir­leitt iðandi af ferða­mönnum.

Eldtungurnar hafa náð allt að sjötíu metra hæð.
Eld­tung­urnar hafa náð allt að sjö­tíu metra hæð.

Ástralar, landið ykkar er að brenna

„Ég er lofts­lags­vís­inda­maður í fríi í Blue Mountains [í Ástralíu] að fylgj­ast með áhrifum lofts­lags­breyt­inga, skrifar Michael J. Mann í grein í The Guardian undir yfir­skrift­inni: „Ástralar, landið ykkar er að brenna – hættu­legar lofts­lags­breyt­ingar eru að eiga sér stað hér og nú.“

Mann er einn þekkt­asti vís­inda­maður heims­ins á sviði lofts­lags­fræða og er pró­fessor við háskól­ann í Penn­syl­vaniu í Banda­ríkj­unum. Hann stundar nú rann­sóknir í Ástralíu og var í fríi ásamt fjöl­skyldu sinni í Blue Mountains, fjalla­svæði vestur af Sydney, er eldar kvikn­uðu þar.

Hann gagn­rýnir for­sæt­is­ráð­herra lands­ins harð­lega fyrir að sofa á verð­inum og vitnar í þekkt lag áströlsku hljóm­sveit­ar­innar Midnight Oil, Beds are burn­ing. Lagið sem hann naut að hlusta á fyrir nokkrum ára­tugum hafi nú fengið algjör­lega nýja merk­ingu.

„Brúnn him­inn­inn sem ég upp­lifði í Blue Mountains í þess­ari viku er afurð lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum,“ skrifar hann. „Taktu met­hita, bland­aðu honum saman við for­dæma­lausan þurrk á þegar þurrum svæðum og útkoman er for­dæma­lausir gróð­ur­eldar líkt og þeir sem gleypt hafa Blue Mountains og breiðst út um alla álf­una. Þetta er ekki flókið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár