Skrælnaðir skógar eins og eldspýtustokkar

Enn eitt hita­metið féll í Ástralíu um helg­ina: 48,9°C. Rign­ingar­úði hefur létt slökkvi­liðs­mönnum lífið síð­ustu klukku­stundir en slökkvi­liðs­stjór­inn varar við sinnu­leysi af þeim sökum og bendir á að von sé á enn meiri hita og enn hvass­ari vindi í vik­unni.

„Húsið okkar og úti­húsin eru brunnin og ég kemst ekki heim. Ég veit ekki hvort að hest­arnir mínir lifa af,“ segir tann­læknir frá Mount Hotham í Vikt­or­íu­fylki í Ástralíu á Facebook-síðu sinni. Hann er í hópi þeirra hund­ruða manna sem misst hafa heim­ili sín í gróð­ur­eld­unum miklu síð­ustu daga og eru á ver­gangi. Margir hafa sofið í bílum sínum og hafa gripið til þess ráðs að aug­lýsa á sam­fé­lags­miðlum eftir skjóli. Farrugia Sammut, 82 ára, seg­ist ekki hafa orðið jafn hrædd frá því að sprengjum rigndi yfir heimabæ hennar á eyj­unni Möltu í síð­ari heims­styrj­öld­inni. „Við erum umkringd eldum,“ segir hún. „Ég sef ekki fyrir áhyggjum.“

Andrew Constance, sam­göngu­ráð­herra Nýja Suður-Wales var ekki að skafa utan af því er hann var­aði við frek­ari hörm­ungum: „Þetta er ekki kjarr­eldur,“ sagði hann. „Þetta er atóm­sprengja.“ Methitar og met­þurrkar hafa breytt skógum Ástralíu í eld­spýtu­stokk.

Enn eitt hitametið: 48,9°C

„Hræðileg“ helgi er að baki í þeim fylkjum sem verst hafa orðið úti, að sögn fylk­is­stjóra Nýja Suður-Wales. Enn eitt hita­metið var slegið: 48,9°C mæld­ist fyrir utan Sydney i gær. Reykur hefur borist alla leið til Suður-Ameríku, um 1.500 kíló­metra leið. Tugir þús­unda hafa orðið að yfir­gefa heim­ili sín síð­ustu daga og nokkur ringul­reið hefur skap­ast.

Um 1.000 manns og yfir 100 hundar voru fluttir með her­skipum frá strand­bæjum og til Melbourne í gær. Herinn var kall­aður til aðstoðar við rým­ingar. Umfang þeirrar aðstoðar hefur ekki verið meira frá seinna stríði. Slökkvi­liðs­stjór­inn sem heldur utan um aðgerðir frétti af því í fjöl­miðlum og var gramur for­sæt­is­ráð­herr­anum af þeim sökum.

[links]Enn á eftir að meta eyði­legg­ing­una en ljóst er að hund­ruð bygg­inga hafa orðið eldi að bráð á síð­ustu klukku­stundum, þús­undir húsa hafa brunnið síð­ustu mán­uði. Rign­ingar­úði féll úr lofti í dag og gaf slökkvi­lið­unum, sem að stærstum hluta eru byggð upp af sjálf­boða­liðum, kær­komna hvíld um stund. Tekist hefur að hefta útbreiðslu margra elda af þessum sökum en þó logar enn á yfir 150 stöðum í Nýja Suður-Wales einu saman. Mestur er eld­ur­inn suð­vestur af bænum Eden á suð­ur­strönd fylk­is­ins. Þar hafa logar ætt yfir 140 þús­und hekt­ara lands. Íbúar segja ástandið hrylli­legt, að mikil hræðsla hafi gripið um sig og að „svarta­myrkur“ hafi lagst yfir að degi til vegna reyks og ösku. Helst eru það stór­hættu­legar glæður er rignir úr lofti sem veitt hafa birtu. Íbúar Eden hafa lýst flótt­anum undan eld­unum sem ógn­vekj­andi. „Brak og aska“ hafi verið um allt í loft­inu. Erfitt hafi reynst að sjá og anda. Hvíldin sem slökkvi­liðs­menn­irnir hafa nú fengið mun ekki vara lengi. Síðar í vik­unni er enn á ný spáð miklum hita og hvass­viðri.

Fleiri dauðsföll

Og enn bæt­ist í fjölda lát­inna vegna eld­anna. Í gær lést David Harrison, 47 ára, úr hjarta­á­falli. Hann var að aðstoða vin sinn við að verja hús hans frá eld­unum í Snowy Mountains. Þá slös­uð­ust fjórir slökkvi­liðs­menn um helg­ina. Einn þeirra hlaut alvar­leg bruna­sár á höndum.

Í Nýja Suður-Wales, fjöl­menn­asta fylki Ástralíu, hafa að minnsta kosti 1.425 heim­ili eyði­lagst í eld­unum en slökkvi­liðs­stjór­inn Shane Fitzsimmons telur að um mikið van­mat sé að ræða. Líklegt sé að hund­ruð húsa hafi brunnið nú um helg­ina. „Það eru miklar skemmdir og eyði­legg­ing,“ sagði hann í við­tali við Sydney Morning Herald í dag.

Bæir „þurrkast algerlega út“

Skóg­ar­eldar eru nokkuð óút­reikn­an­legir. Erfitt, nær ómögu­legt, er að slá því föstu hvernig þeir þró­ast þar sem margir þættir spila inn í. Einna verst er þegar risa­vaxin bál mynd­ast, sem æða áfram og skapa nokk­urs konar hvirf­il­bylji og þrumu­veður sem þeyta öllu sem á vegi þeirra verður í loft upp. Því er erfitt og flókið að leggja mat á hvar skuli rýma, hvaða vegum skuli loka, og svo fram­vegis. Stöðugt þarf að upp­færa slíkar áætl­anir.

Gladys Ber­ejiklian, fylk­is­stjóri í Nýja Suður-Wales, segir að áður óþekkt ástand ríki. Hætta sé á að bæir þar sem gróð­ur­eldar hafa aldrei áður geisað „þurrk­ist algjör­lega út“. Hún segir útbreiðslu eld­anna nú ekki eiga sér for­dæmi. „Við verðum að við­ur­kenna það.“

Slökkvi­liðs­stjór­inn Fitzsimmons varar við sinnu­leysi nú þegar regn­dropar hafa loks fallið úr lofti. „Það síð­asta sem við höfum efni á er að verða sinnu­laus. Sinnu­leysi drepur,“ var­aði hann við.

Myndband Morrisons vekur reiði

Óttinn er langt frá því að vera eina til­finn­ingin sem hel­tekið hefur fólk á hættu­svæðum. Gríð­ar­leg reiði er í garð stjórn­valda og þá helst for­sæt­is­ráð­herr­ans Scotts Morrison. Myndband sem hann birti á sam­fé­lags­miðlum um helg­ina hefur verið harð­lega gagn­rýnt og sagt sýna sjálf­um­gleði hans og afneitun.

Í mynd­band­inu er farið yfir við­brögð stjórn­valda við eld­unum og dramat­ísk tón­list leikin undir. Hann hefur ekki svarað spurn­ingum um hversu mikið eigna­tjón hafi orðið í eld­unum en hann hefur sagt að aðgerðir sem stjórn­ar­and­staðan hefur lagt til svo draga megi úr áhrifum lofts­lags­breyt­inga séu of kostn­að­ar­samar. Kola­vinnsla er mik­ill iðn­aður í Ástralíu og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á hvern íbúa lands­ins er meðal þess mesta sem þekk­ist í heim­inum. Um jólin var þegar orðið ljóst að los­unin vegna eld­anna þetta sum­arið hefði náð um 2/3 árlegs útblást­urs Ástralíu. Og sum­arið er ný hafið.

Afrek þykir að slökkvi­liðs­mönnum hafi tek­ist að verja raf­línur frá Snowy-vatns­afls­virkj­un­inni um helg­ina og koma þannig í veg fyrir stór­kost­legt raf­magns­leysi. Margir eru þó án raf­magns í nokkrum bæjum og hafa jafn­vel verið frá því á nýárs­dag.

Hjartnæmar kraftaverkasögur

Dýralíf Ástralíu er á margan hátt ein­stakt. Um 87% dýra­teg­unda sem þar eru er hvergi ann­ars staðar að finna á jörð­inni. Áhrif eld­anna á dýrin hafa verið ham­fara­kennd og talið er að um hálfur millj­arður spen­dýra, fugla og skrið­dýra hafi þegar farist.

Þær eru þó all­nokkrar krafta­verka­sög­urnar sem ástr­alskir fjöl­miðlar hafa greint frá síð­ustu daga. Þær fjalla bæði um menn og önnur dýr, og þær vin­sæl­ustu oft um hinn ást­sæla kóala­björn. Talið er að þús­undir þeirra hafi farist í eld­unum en fregnir af fræki­legum björg­unum hafa einnig fyllt mörg augun tárum.

Ein slík frétt fjallar um Damian Campbell-Davys, bíl­stjóra á vatns­flutn­inga­bíl, sem tók upp í ungan björn sem hann sá birt­ast milli furutrjáa skammt frá bænum Nerriga í Nýja Suður-Wales. Campbell-Davys gaf sér góðan tíma til að svala þorsta litla bjarn­ar­ins.

„Eftir hryll­ing gær­dags­ins þá var þetta kær­komið,“ sagði hann í sam­tali við fjöl­miðla. „Þetta var smá sól­ar­geisli inn í þessa martröð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár