Ráðherrar á Grænlandi sniðgengu opnun ræðisskrifstofu Bandaríkjanna

Banda­ríkin opn­uðu í dag nýja ræð­is­skrif­stofu á Græn­landi í miðbæ höf­uð­stað­ar­ins Nuuk. Engir af ráð­herrum Græn­lands voru við­staddir opn­un­ina og aðeins örfáir þing­menn. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar fór á opn­un­ar­við­burð­inn sem fór fram í skugga áforma Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta.

Ávarp
Ávarp Kenneth A. Howery sendi­herra Banda­ríkj­anna til danska kon­ungs­veld­is­ins segir opið sam­tal og sam­vinnu mik­il­væga. Mynd: Esther

„Með gagn­kvæmri virð­ingu getum við skapað langvar­andi árangur,“ sagði Kenneth A. Howery, sendi­herra Banda­ríkj­anna til danska kon­ungs­veld­is­ins, við opnun nýrrar stað­setn­ingar ræð­is­skrif­stofu Banda­ríkj­anna á Græn­landi sem hófst klukkan 14 að stað­ar­tíma í Nuuk og stendur til klukkan 17.

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar var við­staddur opn­un­ar­við­burð­inn en við inn­gang­inn tóku á móti gestum alvar­legir og inn­ramm­aðir Donald Trump Banda­ríkja­for­seti, JD Vance vara­for­seti og Marco Rubio utan­rík­is­ráð­herra sem blaða­manni fannst fanga and­rúms­loftið ágæt­lega. Þótt gestir nytu þess að hlusta á hljóm­sveit Daniel Ho frá Hawaii, spjöll­uðu í léttu tómi og gæddu sér á veit­ingum var nær­vera for­set­ans og yfir­valda í Washington DC áþreif­an­leg á ræð­is­skrif­stof­unni.

Ljóst var að tölu­verðan fjölda boðs­gesta vant­aði en slíkt kom þó ekki á óvart en í aðdrag­anda við­burð­ar­ins afboð­uðu ýmsir hátt­settir þing­menn á Græn­landi komu sína en þeirra á meðal er Jens-Frederik Nielsen, for­maður lands­stjórn­ar­innar á Græn­landi. Í sam­tali við Sermitsiaq á þriðju­dag­inn sagði hann: „Við höfum …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár