Ostur eða saffran?

Franskur mat­reiðslu­maður hefur stefnt útgef­endum Michelin veit­inga­staða­hand­bók­ar­innar og segir þá saka sig um vöru­svik. Hann hafi, að sögn Michelin, notað breskan cheddar ost í vin­sælan rétt í stað franskra osta. Mála­ferlin hófust síð­ast­lið­inn mið­viku­dag.

Marc Veyrat
Marc Veyrat Mynd: EPA

Þótt nafnið Marc Veyrat klingi kannski engum bjöllum hjá flestum les­endum þessa pistils, og sama gildi um veit­inga­stað hans, La Maison des Bois, eru bæði nöfnin þekkt langt út fyrir heima­landið, Frakk­land. Marc Veyrat er meðal þekkt­ustu mat­reiðslu­manna í heimi og í hópi þeirra sem oft eru nefndir „stjörnu­kokkar“.

Þessi þekkti Frakki, sem er 69 ára gam­all, er að mestu sjálf­lærður í mat­reiðslu­fræð­unum og hefur í við­tölum sagt að und­ir­stöðu­þekk­ing­una í með­ferð mat­væla hafi hann fengið frá föður sínum. Hann hefur, auk La Maison des Bois, rekið tvo aðra veit­inga­staði, sem báðir fengu 3 stjörnur (hæsta ein­kunn) hjá Michelin veit­inga­staða­hand­bók­inni, en ein­beitir sér nú að rekstri La Maison des Bois. Sá staður hafði líka til skamms tíma 3 stjörnur hjá Michelin en var á þessu ári sviptur einni þeirra. Og það er þessi stjörnu­svipt­ing, eða rétt­ara sagt ástæða hennar, sem hefur orðið til þess að Marc Veyrat hefur fundið sig knú­inn til að fara í mál við Michelin. En, fyrst aðeins um Michelin.

Michelin bókin í 119 ár

Skömmu fyrir alda­mótin 1900 fengu bræð­urnir Éduard og André Michelin þá hug­mynd að gefa út bók með upp­lýs­ingum um hjól­barða- og bíla­verk­stæði í Frakk­landi, gisti­hús og bens­ín­stöðvar, ásamt vega­korti. Bókin, sem kom út árið 1900 var sú fyrsta sinnar teg­undar í heim­inum. Hún var ókeypis, upp­lagið 35 þús­und ein­tök og klárað­ist strax. Á þessum tíma voru aðeins um það bil 3 þús­und bif­reiðar í Frakk­landi.

Bræð­urnir höfðu stofnað Michelin fyr­ir­tækið árið 1889 og fram­leiddu ýmis konar hluti úr gúmmíi. Hug­mynd­ina að loft­fylltu dekki, sem auð­velt væri að skipta um, og gera við, fengu bræð­urnir eftir að hafa hjálpað hjól­reiða­manni en á þessum tíma voru dekk reið­hjóla límd við gjörð­ina og margra klukku­tíma verk að gera við þegar sprakk. Árið 1891 fengu bræð­urnir einka­leyfi á loft­fylltum dekkjum sem hægt var að skipta um. Saga hjól­barð­anna verður ekki rakin frekar hér en Michelin er einn stærsti hjól­barða­fram­leið­andi heims í dag, og höf­uð­stöðv­arnar eru enn í Clermont-Ferrand, heimabæ bræðr­anna, í Mið-Frakk­landi.

Eins og áður sagði kom fyrsta Michelin bókin út alda­móta­árið 1900 og fljót­lega fylgdu sams­konar bækur um fleiri lönd í kjöl­farið. Síðar hóf Michelin útgáfu ferða­hand­bóka, grænu bæk­urnar svo­nefndu. Síðan 1920 hafa bæk­urnar verið seldar en voru fram til þess tíma ókeypis.

Rauða Michelin bókin, sem kemur út árlega (upp­lagið nú 1.6. milljón) er ein­skorðuð við veit­inga­staði og hótel, veit­inga­stað­irnir eru lang fyr­ir­ferð­ar­mestir í umfjöllun Michelin. Þótt dóm­arar Michelin séu iðu­lega gagn­rýndir fyrir að horfa fyrst og fremst til dýrra veit­inga­staða á kostnað ódýr­ari og ein­fald­ari staða þykir mjög eft­ir­sókn­ar­vert að kom­ast þar á blað.

Stjörnurnar

Dómarar Michelin heim­sækja veit­inga­staði án þess að starfs­fólk á við­kom­andi stað viti hverjir þeir eru og segja aldrei til sín. Borga svo reikn­ing­inn og fara. Með þessu móti telur Michelin sig tryggja að dóm­ar­arnir fái dæmi­gerðan mat og þjón­ustu hverju sinni, en enga „sér­með­ferð“.


Í bók­inni birt­ast svo nið­ur­stöður dóm­ar­anna, og þær vekja mis­jöfn við­brögð. Hæsta ein­kunn sem Michelin gefur er 3 stjörnur en einnig eru gefnar 2 stjörnur og 1 stjarna. Auk stjarn­anna eru tveir aðrir ein­kunna­flokkar, þótt þeir þyki ekki jafn eft­ir­sókn­ar­verðir þykja það eigi að síður mikil með­mæli að kom­ast á blað hjá Michelin.

Marc Veyrat og ostafrauðið

Eins og getið var um í upp­hafi pistils­ins stefndi franski mat­reiðslu­mað­ur­inn Marc Veyrat Michelin útgáfu­fyr­ir­tæk­inu eftir útkomu rauðu veit­inga­hand­bók­ar­innar fyrr á þessu ári. Rétt­ar­höldin hófust í gær. Veit­inga­staður hans, La Maison des Bois hafði um margra ára skeið haft 3 Michelin stjörnur en í ár brá svo við að stað­ur­inn tap­aði einni stjörnu og hefur nú tvær.

Marc Veyrat sagði í við­tali þegar hann til­kynnti um máls­höfð­un­ina hún væri ekki til­komin vegna þess að stað­ur­inn missti eina stjörnu. Það væri hins­vegar ástæðan sem Michelin hefði gefið fyrir „stjörnu­hrap­inu“ sem hefði knúið hann til að leita til dóm­stóla.

Meðal rétta á mat­seðli La Maison des Bois er osta­frauð, soufflé. Meg­in­hrá­efnið í osta­frauð­inu er, eins og nafnið gefur til kynna, ostur ásamt eggjum. Osta­frauðið var einn þeirra rétta sem dóm­arar Michelin neyttu í heim­sókn sinni á veit­inga­stað­inn. Í umsögn sinni stað­hæfðu dóm­ar­arnir að í osta­frauð­inu hefði verið breskur cheddar. Marc Veyrat var rasandi „þeir voga sér að segja að í osta­frauð­inu okkar hafi verið breskur cheddar í stað­inn fyrir reblochon, beaufort og tomme (allt franskir ostar úr kúa eða geita­mjólk). Þeir hafa móðgað, ekki bara okkur, heldur allt hér­aðið. Starfs­menn mínir náðu ekki upp í nefið á sér fyrir reiði,“ sagði mat­reiðslu­mað­ur­inn í við­tali við dag­blaðið Le Monde. „Dómarinn frá Michelin hélt að við hefðum sett cheddar í osta­frauðið af því að á því var gulur blær, er þetta það sem þið hjá Michelin kallið kunn­áttu? Guli lit­ur­inn kemur úr saffran sem er notað í rétt­inn.“

Vill eina evru í skaðabætur og umsögn fjarlægða úr bókinni

Marc Veyrat var ekki við­staddur upp­haf rétt­ar­hald­anna sl. mið­viku­dag en þar var sýnt mynd­band sem sýnir mat­reiðslu­mann á La Maison de Bois útbúa osta­frauð. Og notar franska osta. Í við­tali við frétta­mann CNN sjón­varps­stöðv­ar­innar fyrr á árinu tal­aði Marc Veyrat um álagið sem fylgir því að reka þriggja stjörnu veit­inga­stað. Í tengslum við mála­ferlin hefur hann farið fram á að Michelin fjar­lægi umfjöllun veit­inga­stað­inn úr bókum sínum. Því hafnar rit­stjórn Michelin og segir að bókin sé gerð fyrir við­skipta­vini en ekki kokka og eig­endur veit­inga­staða.

Í því sam­bandi má rifja upp að fyrir tveimur árum fór annar þekktur veit­inga­maður, Sébastien Bras, fram á að umfjöllun um veit­inga­stað hans, sem hafði 3 stjörnur, yrði fjar­lægð úr Michelin bók­inni. Í 2018 útgáf­unni var ekki minnst á veit­inga­stað­inn, en í útgáfu þessa árs var hann hins vegar aftur að finna, en nú með 2 stjörnur. Athygli vakti líka þegar þekkt­asti og virt­asti sushi veit­inga­staður í Japan var fjar­lægður úr Michelin, en hann hafði haft 3 stjörnur. Ástæðan var, að sögn Michelin, sú að venju­legt fólk, eins og það var orðað, gæti ekki fengið borð á staðnum.

Við upp­haf rétt­ar­hald­anna í máli Marc Veyrat krafð­ist lög­maður hans þess að Michelin legði fram reikn­inga frá heim­sókn­inni á veit­inga­stað­inn og enn­fremur að fá nöfn þeirra starfs­manna Michelin sem skrif­uðu umsögn­ina, og umsögn­ina sjálfa. Í áður­nefndu við­tali við CNN sagð­ist Marc Veyrat efast um að starfs­menn Michelin hefðu komið á veit­inga­stað­inn áður en þeir skrif­uðu umsögn­ina.

Dómur í osta­frauðs­mál­inu verður vænt­an­lega kveð­inn upp á gaml­árs­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár