Ísraelar drápu 32 börn á Vesturbakkanum í fyrra

Und­an­farin tvö ár hefur færst í auk­ana að ísra­elskir her­menn og örygg­is­verðir beiti óhóf­legu valdi í átökum við mót­mæl­endur. Afleið­ingin er meðal ann­ars sú að árið 2016 lét­ust fleiri börn í Palest­ínu en síð­ustu tíu ár þar á undan.

Faris
Faris 15. ára. Skotinn í höf­uðið af ísra­elskum her­manni. Lést eftir 69 daga í dái.

Ísra­elskir her­menn og örygg­is­verðir drápu 32 palest­ínsk börn á hinum her­setna Vest­ur­bakka og í aust­ur­hluta Jer­úsalem árið 2016. Árið er það blóð­ug­asta síð­asta ára­tug­inn fyrir palest­ínsk börn á svæð­inu, sam­kvæmt rann­sókn sam­tak­anna Defense for Children International (DCIP).

Þann 23. des­em­ber síð­ast­lið­inn lést hinn 15 ára gamli Faris Ziyad eftir að hafa verið 69 daga í dái. Ísra­elskur her­maður skaut Faris í höf­uðið í átökum við flótta­manna­búð­irnar í Jalazoun sem eru fyrir norðan borg­ina Ramallah á Vest­ur­bakk­anum, þann 25. októ­ber. „Ég horfði á Faris og sá höf­uðið á honum hreyfast svo hratt og svo féll hann til jarðar með and­litið þakið blóði,“ sagði vitni í sam­tali við DCIP. „Þá fatt­aði ég að hann hefði verið skot­inn í höf­uðið.“

Samkvæmt fréttum í Ísrael fór fram rann­sókn innan hers­ins. Nið­ur­staðan hennar var að aftakan hefði verið rétt­læt­an­leg, en þó var her­mönn­unum veitt áminn­ing og yfir­maður þeirra kall­aður til yfir­heyrslu vegna atviks­ins. Í sömu rann­sókn var einnig farið yfir þrjár aðrar skotárásir hers­ins sem ollu dauða eða alvar­legum meiðslum palest­ínu­búa. Nið­ur­staðan var að her­menn­irnir hefðu ekki fylgt þeim verk­ferlum sem hefðu getað komið í veg fyrir atvikin. Í sumum til­fellum hefðu her­mönn­unum engin ógn stafað af fólk­inu og því var notkun skot­vopna ónauð­syn­leg.

Mjög sjald­gæft er þó að her­menn þurfi á ein­hvern hátt að svara fyrir sakir sínar þegar kemur að óhóf­legri notkun skot­vopna á almenna borg­ara. Aðeins eitt atvik hefur átt sér stað síðan 2014 sem leiddi til sak­fell­ingar í slíku máli.

Einn af tals­mönnum DCIP, Ayed Abu Eqaish, sagði ísra­elska her­inn hafa notað sífellt meiri hörku í sam­skiptum við mót­mæl­endur síð­ustu 2 ár. „Notkun á ban­vænum vopnum er orðin venju­bundin hjá hernum, jafn­vel í algjör­lega órétt­læt­an­legum aðstæðum, og án þess að þeir þurfi að svara til saka. Þetta veldur því að sífellt fleiri börn eru í hættu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár