Þegar ráðherrann gaf verkalýðshetjunni peninga

Guð­mundur J. Guð­munds­son, alþing­is­maður og verka­lýðs­leið­togi, þáði sól­ar­landa­ferð að gjöf frá ráð­herr­anum Alberti Guð­munds­syni. Í ljós kom að gjöfin var í raun frá Haf­skipum og Eimskip. Sjálfur fékk ráð­herr­ann einnig utan­lands­ferð frá Haf­skipum. Málið skók Alþýðu­banda­lagið árið 1986.

Fjölmiðlafár
Fjöl­miðla­fár Sann­kallað fjöl­miðla­fár ríkti eftir að í ljós kom að harð­skeytt­asti verka­lýðs­leið­togi lands­ins hafði þegið sól­ar­landa­ferð að gjöf frá ráð­herra. Guð­mundur J. Guð­munds­son var í nauð­vörn.

Allt lék á reiði­skjálfi innan Alþýðu­banda­lags­ins árið 1986 eftir að upp­lýst var að sá harð­skeytti verka­lýðs­leið­togi og alþing­is­maður Alþýðu­banda­lags­ins, Guð­mundur J. Guð­munds­son, hefði þegið pen­inga­gjöf frá Alberti Guð­munds­syni iðn­að­ar­ráð­herra til að leita sér heilsu­bótar á sól­ar­strönd. Gjöfina fékk Guð­mundur J. þremur árum fyrr. Málið var sér­stak­lega við­kvæmt vegna þess  að Guð­mundur var einn harð­skeytt­asti málsvari íslenskrar verka­lýðs­stéttar og tals­maður verka­fólks. Guð­mundur, sem nefndur var Jaki, var þing­maður Alþýðu­banda­lags­ins, sem gerði stöðu hans enn við­kvæm­ari. Alþýðu­banda­lagið hafði staðið í log­andi átökum þegar þetta bætt­ist við. Flokkur sós­í­alista lék á reiði­skjálfi.

Eftir harð­vítug átök tveggja fylk­inga, svo­kall­aðs lýð­ræð­is­hóps og ráð­andi afla, innan Alþýðu­banda­lags­ins komu þessar upp­lýs­ingar eins og sprengja inn í umræð­una. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár