Stríð í Framsóknarflokknum

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn logar stafna á milli. Tvær fylk­ingar hafa mynd­ast vegna kom­andi for­manns­fram­boðs og ásak­anir um óheið­ar­leika og svika­brigsl ganga á víxl. Allir aðal­leik­end­urnir verða í þing­lokki Fram­sóknar eftir kosn­ingar. Verður hann starf­hæfur?

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra situr sannarlega ekki á friðarstóli um þessar mundir.
Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra situr sann­ar­lega ekki á frið­ar­stóli um þessar mundir.

Inn­an­flokks­deilur Fram­sókn­ar­flokks­ins voru opin­ber­aðar um helg­ina. Þótt flestum sem fylgj­ast náið með stjórn­málum hafi verið það full ljóst í lengri tíma að ekki væri ein­ing innan flokks­ins um for­mennsku Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar þá kemur sú mikla harka sem færst hefur í slag­inn á milli fylk­inga und­an­farna daga á óvart. Sér­stak­lega í ljósi þess að rúmur mán­uður er til kosn­inga og við blasir að flestir aðal­leik­ar­arnir í hinu dramat­ísku upp­gjöri munu þurfa að starfa saman í þing­flokki Fram­sókn­ar­flokks­ins að þeim loknum.

Miðað við skoð­ana­kann­anir - Framsókn mælist með um tíu pró­sent fylgi - þá mun sá þing­flokkur verða mun minni en hann er í dag. Flokk­ur­inn hefur nú 19 þing­menn en gæti setið uppi með sjö eða átta þing­menn eftir kom­andi kosn­ingar taki fylgið ekki við sér. Þeir þing­menn sem eru lík­leg­astir að ná þeim sætum skipt­ast á milli þeirra fylk­ingar sem takast nú hat­ram­lega á, og eru kenndar við Sigurð Inga Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra ann­ars vegar og Sigmund Davíð hins vegar.

Hófst allt með bréfi

Sú atburða­rás óein­ingar sem mun ná hápunkti um kom­andi helgi á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins virð­ist hafa haf­ist í lok júlí, þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sendi flokks­mönnum bréftil að boða end­ur­komu sína í stjórn­mál eftir sjálf­skip­aða útlægð í kjöl­far Wintris-máls­ins, sem kost­aði hann for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn.

Í bréf­inu gagn­rýni Sig­mundur Davíð harð­lega þá ákvörðun að flýta kosn­ingum. Sú ákvörðun var tekin af for­svars­mönnum rík­is­stjórn­ar­innar, þeim Sigurði Inga og Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þótt að Sig­mundur Davíð hafi ein­ungis nefnt Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem söku­dólg í bréf­inu þá tók Sigurður Ingi gagn­rýn­ina einnig til sín. Hann stað­festi það í við­tölum um liðna helgi. Það var líka ljóst að Sig­mundur Davíð leit ekki svo á að Wintris-málið hefði valdið honum rétt­mætum skaða. Þvert á móti telur hann sig hafa verið leiddan í gildru að ósekju og vera fórn­ar­lamb frekar en ger­anda í mál­inu.

Wintris-málið vakti heimsathygli. Og kostaði Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherrastólinn. Málið gæti líka kostað hann formennsku í Framsóknarflokknum.
Wintris-málið vakti heims­at­hygli. Og kost­aði Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn. Málið gæti líka kostað hann for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum.

Þeirri óánægju sem grass­er­aði innan hluta Fram­sókn­ar­flokks­ins með Sigmund Davíð var þó haldið innan flokks. Það tíðkast enda ekki hjá þessum 100 ára gamla flokki að viðra óhreina þvott­inn sinn. Átökin voru þó sýni­leg að því leyti að sá hópur sem styður Sigmund Davíð reyndi að koma í veg fyrir að boðað yrði til flokks­þings í aðdrag­anda kosn­inga, þar sem fram myndi fara for­ystu­kjör. Hann tap­aði þeirri bar­áttu. Öll kjör­dæmi utan Norð­aust­ur­kjör­dæmis, þar sem Sig­mundur Davíð situr, vildu flokks­þing.

Sóknin að Sigmundi hefst af alvöru

Þann 10. sept­em­ber hófst síðan sóknin að Sigmundi Davíð af alvöru. Þá var hald­inn mið­stjórn­ar­fundur Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hofi á Akureyri. Þar flutti Sig­mundur Davíð rúm­lega klukku­tíma langa ræðu studdur glærum með sterku mynd­máli þar sem hann fór yfir stöðu stjórn­mála, árangur sinn og það sem hann telur vera þaul­skipu­lagða aðför að sér. Þátt­tak­endur í þeirri meintu aðför eru stórir leik­endur í alþjóða­fjár­mála­kerf­inu og fjöl­miðlar víða um heim. Aðgangur að fund­inum var opinn öllum á meðan að ræða Sig­mundar Davíðs stóð yfir en síðan var skellt í lás á fund­inum og ein­ungis þeir sem áttu fund­ar­setu­rétt fengu að vera áfram inni.

Ekki var gert ráð fyrir því að Sigurður Ingi myndi taka til máls á fund­inum, þrátt fyrir að hann væri for­sæt­is­ráð­herra. Hann kvaddi sér því hljóðs undir öðrum lið og hélt ræðu sem vakti mikla athygli. Þar til­kynnti Sigurður Ingi að hann treysti sér ekki til að starfa áfram sem vara­for­maður flokks­ins eftir kom­andi flokks­þing vegna sam­skipta­örð­ug­leika í for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins. Það duld­ist engum að þar átti hann við Sigmund Davíð. Inni­haldi ræð­unnar var síðan skipu­lega lekið til nær allra fjöl­miðla. Ágrein­ing­ur­inn hafði verið opin­ber­aður.

Þriðju­dag­inn 13. sept­em­ber birt­ist svo viðtal við Guðna Ágústs­son, fyrr­ver­andi for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og mik­inn áhrifa­mann innan hans í ára­tugi, á for­síðu Frétta­blaðs­ins. Þar sagði Guðni að hann vildi að Sig­mundur Davíð viki og að Sigurður Ingi, sem er úr Suð­ur­kjör­dæmi Guðna, tæki við. Ljóst var að yfir­lýs­ing Guðna kom stuðn­ings­mönnum Sig­mundar Davíð mjög á óvart. Anna Sig­ur­laug Páls­dótt­ir, eig­in­kona Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, og Gunn­laugur Sig­munds­son, faðir hans, gagn­rýndu bæði Guðna í kjöl­farið fyrir orð hans um Sigmund Davíð.

Tíu daga svikalogn

Í kjöl­farið varð tíu daga svika­logn á undan stormi helg­ar­innar. Sig­mundur Davíð sigr­aði með yfir­burðum í kosn­ingum á kjör­dæma­þings­kosn­ingum í Norð­aust­ur­kjör­dæmi þar sem þrír sitj­andi þing­menn buðu sig fram á móti honum. Alls fékk for­mað­ur­inn 72 pró­sent greiddra atkvæða. Hösk­uldur Þór­halls­son, helsti inn­an­flokksand­stæð­ingur Sig­mundar Davíðs, var nið­ur­lægður í kosn­ing­unni og fékk ein­ungis 24 atkvæði, eða um tíu pró­sent. Þótt Sig­mundur Davíð reyndi að mála nið­ur­stöð­una sem mikla stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við sig þá blasti við að á bak við sigur hans voru ein­ungis 170 atkvæði hörð­ustu stuðn­ings­manna hans í heima­kjör­dæm­inu. Hún sagði ekk­ert nema það að Sig­mundur Davíð var enn með ágæt­lega sterka stöðu á meðal þess hóps sem staðið hefur þétt­ast við bakið á honum frá því að hann varð for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2009.

Á fimmtu­dag, 22. sept­em­ber, fóru fram fyrstu leið­togaum­ræður RÚV vegna kom­andi kosn­inga. Þar fór Sig­mundur Davíð mik­inn þegar hann var spurður út í Wintris-málið. Hann gerði athuga­semd við það að spyrlar þátt­ar­ins gæfu sér að kosn­ingum hefði verið flýtt vegna máls­ins, hélt því fram að hann hafi aldrei átt hlut í eignum Wintris og Tortóla á Bresku Jóm­frú­areyj­unum væri ekki skatta­skjól. Engin þess­ara full­yrð­inga stand­ast nán­ari skoðun, líkt og Stað­reynda­vakt Kjarnans sýndi fram á fyrr í dag.

Ljóst var þeir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins sem vilja skipta um mann í brúnni sáu sér leik á borði eftir þá frammi­stöðu. Boðað var til þing­flokks­fundar með skömmum fyr­ir­vara dag­inn eftir til að fara yfir málin. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stóð til að leggja fram bókun á fund­inum um að þing­flokk­ur­inn styddi Sigurð Inga gegn sitj­andi for­manni. Slík bókun var ekki sam­þykkt né lögð fram á end­anum en upp­lifun þing­manna flokks­ins af honum er svo ólík að það er lík­ara því að þeir hafi ekki verið að sitja sama fund­inn.

Þegar fund­inum lauk loks á fimmta tím­anum, en hann hafði haf­ist klukkan klukkan eitt eftir hádegi, sagði Sig­mundur Davíð við fjöl­miðla að hann mæti stöðu sína góða. Fund­ur­inn hafi ekki verið ætl­aður til að kveða upp um for­ystu, það væri verk­efni flokks­þings.

Tveimur tímum síðar hófst kvöld­frétta­tími RÚV. Þar var Sigurður Ingi í beinni útsend­ingu frá Akureyri, en hann hafði þurft að fara snemma af þing­flokks­fund­inum til að vera við­staddur ráð­stefnu um stjórn­ar­skrár­mál þar. Í við­tal­inu til­kynnti hann um for­manns­fram­boð sitt á flokks­þing­inu í byrjun októ­ber. Ákvörð­unin væri tekin vegna þeirrar ólgu sem ríkti innan Fram­sókn­ar­flokks­ins og í kringum for­ystu hans.

Átta dögum fyrir flokks­þing og tæpum mán­uði fyrir kosn­ingar hafði sprengju verið kastað inn í starf Fram­sókn­ar­flokks­ins. Í stað þess að stilla saman strengi fyrir kosn­inga­bar­áttu var flokk­ur­inn klof­inn í herðar niður. Og það í beinni útsend­ingu í sjón­varpi allra lands­manna.

Sápuóperan Framsóknarflokkurinn

Sápu­óperan sem fylgdi í kjöl­farið hefði slegið öll áhorf­enda­met ef um leikna þátta­röð hefði verið að ræða. Sigurður Ingi mætti í Viku­lokin á Rás 1 snemma morg­uns á laug­ar­dag og sagði að Sigmundi Davíð hefði ekki tek­ist að end­ur­heimta traust flokks­manna. Eygló Harð­ar­dóttir, rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins og ráð­herra í sitj­andi rík­is­stjórn, opin­ber­aði svo stuðn­ing sinn við Sigurð Inga með því að segja að hún myndi sækj­ast eftir vara­for­mennsku ef hann yrði for­maður.

Sig­mundur Davíð mætti síðan í beina útsend­ingu í kvöld­fréttir Stöðvar 2 og sagði Sigurð Inga hafa svikið sig. Hann hafi beðið vara­for­mann sinn um tvennt þegar hann tók við emb­ætt­inu af hon­um. Ann­ars vegar að halda sér upp­lýstum um gang mála og hins vegar að bjóða sig ekki fram gegn honum í for­manns­kjöri í Fram­sókn­ar­flokkn­um. Hvor­ugt hafi gengið eft­ir.

Sigurður Ingi náði síðan frum­kvæð­inu á ný í ótrú­legu við­tali í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í gær­morgun. Þar upp­lýsti hann um að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hefði verið búinn að ákveða að setja Sigmund Davíð af sem for­sæt­is­ráð­herra á fundi hans 5. apríl síð­ast­lið­inn, í kjöl­far Wintris-máls­ins. Ástæðan hafi verið trún­að­ar­brestur milli þing­flokks­ins og Sig­mundar Davíðs vegna Wintris-máls­ins og eft­ir­mála þess. Þetta voru nýjar upp­lýs­ingar þar sem að opin­ber­lega hefur alltaf verið látið að því liggja að Sig­mundur Davíð hafi sjálfur óskað eftir því við þing­flokk­inn að stíga til hliðar til að liðka fyrir áfram­hald­andi lífi rík­is­stjórnar Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks.

Mánudaginn 4. apríl mótmæltu um 26 þúsund manns Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, öðrum stjórnmálamönnum sem áttu aflandsfélög og almennu siðleysi í landinu. Um var að ræða fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar. Daginn eftir sagði Sigmundur Davíð af sér sem forsætisráðherra.
Mánu­dag­inn 4. apríl mót­mæltu um 26 þús­und manns Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, öðrum stjórn­mála­mönnum sem áttu aflands­fé­lög og almennu sið­leysi í land­inu. Um var að ræða fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar. Daginn eftir sagði Sig­mundur Davíð af sér sem for­sæt­is­ráð­herra.

Sigurður Ingi sagð­ist hafa viljað gefa for­mann­inum tæki­færi til að vinna aftur traust og trú­verð­ug­leika og koma í veg fyrir að fylk­ingar myndu skap­ast innan flokks­ins. Þess vegna hafi hann varið for­mann­inn grimmi­lega út á við. Sigurður Ingi hafn­aði því hins vegar að hafa gefið honum nýlegt lof­orð um að bjóða sig ekki fram gegn honum. Það er þó í and­stöðu við það sem Sigurður Ingi sagði á Sprengisandi í byrjun júní. Þar hafn­aði hann því að bjóða sig fram til for­manns og sagði: „Ég hef sagt að ég muni aldrei bjóða mig fram gegn honum [Sigmundi Davíð].“

Baktjaldarmakk og undirmál

Síðasti sól­ar­hringur hefur farið í að þing­menn og áhrifa­fólk innan Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur raðað sér niður á fylk­ingar. Eygló og þing­menn­irnir Silja Dögg Gunn­ars­dóttir og Karl Garð­ars­son styðja Sigurð Inga opin­ber­lega.

Frá­far­andi þing­menn­irnir Vigdís Hauks­dóttir og Þor­steinn Sæmunds­son styðja bæði Sigmund Davíð. Vigdís hefur enn fremur hafnað því að þing­flokk­ur­inn hafi ætlað að setja Sigmund Davíð af sem for­sæt­is­ráð­herra í apríl. Það gera tveir ráð­herrar, Gunnar Bragi Sveins­son og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, líka. Bæði Gunnar Bragi og Vigdís hafa verið harð­orð í fjöl­miðlum um ákvörðun Sigurðar Inga. Gunnar Bragi sagði í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í gær að það væri alveg ljóst að það hefði verið bak­tjalda­makk og und­ir­mál í flokknum. „Fyrir mér er alveg ljóst að það er búið að vera að plana þetta lengi og mér sýn­ist Sigurður Ingi og Eygló vera saman í ein­hvers­konar liði. Svo þegar maður skoðar mynd­ina þá kannski hugsar maður til baka og hugsar hvers­konar kjáni maður er búinn að vera að sjá þetta ekki, hvað er búið að vera í píp­unum.“

Óljóst er hvar margir hinna þing­manna flokks­ins standa.

Verður þingflokkurinn starfhæfur?

Staðan innan Fram­sókn­ar­flokks­ins er því þannig í dag að heift­úð­leg inn­an­flokksá­tök eru að rífa flokk­inn á hol. Að öllu óbreyttu verður kosið á milli Sigurðar Inga og Sig­mundar Davíðs um næstu helgi. Nið­ur­staða þess upp­gjörs mun skilja aðra hvora fylk­ing­una eftir í sárum og erfitt verður að sjá hana vinna náið með hinni þegar hjaðn­inga­víg­unum lýkur.

Það verður hún þó að gera. Fyrir liggur nefni­lega að fram­boðs­listar Fram­sókn­ar­flokks­ins eru til­búnir í öllum kjör­dæmum og öll kjör­dæma­þing hafa þegar kosið for­ystu­menn á lista flokks­ins. Miðað við fylgi Fram­sóknar í könn­unum, sem mælist í kringum tíu pró­sent, getur flokk­ur­inn ekki átt von á því að fá fleiri en sjö eða átta þing­menn, hald­ist það óbreytt fram að kosn­ingum. Í þeim hópi verði flestir þeirra sem opin­ber­lega lýst yfir stuðn­ingi við annað hvorn fram­bjóð­and­ann í for­manns­slagnum, og auð­vitað bæði Sigurður Ingi og Sig­mundur Davíð. Það verður áhuga­vert að sjá þennan hóp vinna saman í þing­flokki, eða jafn­vel rík­is­stjórn, að kosn­ingum loknum.

Þótt heiftin sé mikil í dag, og ásak­anir um svika­brigsl og sam­særi fyr­ir­ferða­miklar, þá er ekki úti­lokað að hægt verði að plástra yfir svöðusárin í flokknum og halda áfram. Fyrir því eru for­dæmi úr íslenskri póli­tík.

Þrettán dögum fyrir kosn­ing­arnar 2013 til­kynnti Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í þætt­inum For­ystu­sætið á RÚV að hann væri að íhuga að segja af sér. Fyrr um dag­inn hafði Við­skipta­blaðið birt nið­ur­stöðu skoð­ana­könn­unar sem sýndi að mun fleiri væru reiðu­búnir að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn ef Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þá vara­for­maður flokks­ins, væri for­maður í stað Bjarna.

Þegar Bjarni var spurður út í þetta komst hann við og sagð­ist hann aldrei hafa kveinkað sér undan árásum and­stæð­inga sinna og að sér hefði aldrei komið til hugar að hætta sem for­maður þess vegna. Það væri hins vegar erf­ið­ara að takast á við gagn­rýni innan flokks­ins og eins yrði hann að skoða þá stöðu sem væri komin upp. Hann sagði að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem könnun sem þessi birt­ist í Við­skipta­blað­inu, sem væri í eigu fyrr­ver­andi kosn­inga­stjóra Hönnu Birnu og starfs­menn þar sem styddu Hönnu Birnu. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins var á þessum tíma að mæl­ast rétt rúm­lega 20 pró­sent. Bjarni sagði þó ekki af sér, flokk­ur­inn fékk 26,7 pró­sent í kosn­ing­unum og varð stærsti flokkur lands­ins. Bjarni setti Hönnu Birnu ekki út í kuld­ann heldur gerði hana að ráð­herra í rík­is­stjórn. Hún sagði síðar af sér emb­ætti vegna leka­máls­ins og er nú að hætta í stjórn­málum. Staða Bjarna sem flokks­for­manns hefur á hinn bóg­inn lík­ast til aldrei verið sterk­ari.

Hvort Framsókn tak­ist að vinna úr inn­an­meinum sínum á sam­bæri­legan hátt verður hins vegar að koma í ljós. Og miðað við þá hörku sem er í þeim slag verður að telj­ast lík­legt að örin sem hann muni skilja eftir verði mun dýpri en um var að ræða hjá Sjálf­stæð­is­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár