Sigurður Ingi fer fram gegn Sigmundi Davíð

Sigurður Ingi Jóhanns­son ætlar að gefa kost á sér sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á flokks­þingi í byrjun októ­ber. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son gefur áfram kost á sér.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókna­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, ætlar að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, sitj­andi for­manni flokks­ins, á flokks­þingi í byrjun októ­ber.

Sigurður Ingi seg­ist hafa tekið ákvörðun sína vegna þeirrar ólgu sem ríki innan Fram­sókn­ar­flokks­ins og í kringum for­ystu flokk­ins. ?„Ég tel að það sé eðli­leg­ast að leysa úr slíkum ágrein­ingi með lýð­ræð­is­legri nið­ur­stöðu,“ sagði Sigurður Ingi í við­tali í kvöld­fréttum RÚV.

Sig­mundur Davíð sagði í sam­tali við fjöl­miðla eftir langan fund í þing­flokki Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag að hann teldi stöðu sína sterka í aðdrag­anda flokks­þings­ins. Sigurður Ingi Jóhanns­son gat ekki setið allan þing­flokks­fund­inn því hann sinnti emb­ætt­is­skyldum for­sæt­is­ráð­herra á Akureyri síð­degis.

„Fund­ur­inn var ekki til þess ætl­aður að kveða upp um for­ystu, flokks­þing gerir það,“ sagði Sig­mundur Davíð meðal ann­ars við mbl.is. Áður hafði Willum Þór Þórsson, þing­maður flokks­ins, sagt í sam­tali við Vísi.is að allur þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins standi ein­huga á bak­við Sigmund Davíð. Willum Þór sagði þó einnig að það væri mik­il­vægt að fram myndi fara for­manns­kosn­ing á kom­andi flokks­þingi.

Í fréttum RÚV í hádeg­inu kom fram að mikil óánægja væri með ástandið í for­ystu flokks­ins innan raða þing­flokks­ins. Sér­stak­lega væri óánægja með fram­göngu Sig­mundar Dav­íðs að und­an­förnu og það lága fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með í skoð­ana­könn­un­um, þar sem fylgið mælist um tíu pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár