Sigmundur Davíð segir Sigurð Inga hafa svikið loforð við sig

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist hafa beðið Sigurð Inga Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra um tvennt þegar hann tók við emb­ætt­inu af honum. Annars vegar að halda sér upp­lýstum um gang mála og hins vegar að bjóða sig ekki fram gegn honum í for­manns­kjöri í Fram­sókn­ar­flokknum. Hvorugt hafi gengið eftir. Sig­mundur Davíð segir að ákvörðun Sigurðar Inga að bjóða sig fram gegn honum hafi valdið honum von­brigðum og að hann sé slegin yfir henni. Þetta kom fram í við­tali við Sigmund Davíð í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Sigurður Ingi til­kynnti í kvöld­fréttum RÚV í gær að hann ætl­aði að bjóða sig fram til for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins gegn Sigmundi Davíð. Ástæðan væri ólga í for­ystu flokks­ins. Hann bætti svo við í við­tali í Viku­lok­unum í morgun að Sigmundi Davíð hefði ekki tek­ist að end­ur­heimta traust flokks­manna. Þar hafn­aði Sigurður Ingi því einnig að hann hefði lofað Sigmundi Davíð því að bjóða sig ekki fram gegn honum.

Í fréttum Stöðvar 2 sagði Sig­mundur Davíð að frá þeim tíma sem hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi tók við hafi þeir tveir nán­ast ekk­ert fundað. Sigurður Ingi hefði hins vegar fundað með leið­togum allra ann­arra flokka. Sig­mundur Davíð sagð­ist hafa gengið á eftir fundum og óskað eftir fundum þar sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins væri með þeim. Það hafi ekki gengið eftir.

Sig­mundur Davíð end­ur­tók einnig fyrri skoðun um að Wintris-málið, sem varð til þess að hann sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra, hefði verið árás þar sem mark­miðið hefði verið að koma honum úr starfi.

Tveir sitj­andi þing­menn hafa lýst yfir stuðn­ingi við Sigurð Inga eftir að hann til­kynnti um for­manns­fram­boð. Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook fyrr í dag að hún myndi bjóða sig fram til vara­for­manns ef Sigurður Ingi yrði nýr for­maður. Þá hefur Karl Garð­ars­son, annar leið­toga Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, lýst yfir stuðn­ingi við Sigurð Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár