Sigmundur segist aldrei hafa átt Wintris

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son seg­ist hafa orðið fyrir til­efn­is­lausri árás þegar Panama­skjölin voru gerð opin­ber. Hann hafi aldrei átt Wintris, og Tortóla sé ekki skatta­skjól.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að hann hafi aldrei átt aflands­fé­lag. Það hafi aðeins verið konan hans sem átti félag á Tortóla, sem hann segir reyndar að sé ekki skatta­skjól, því konan hans hafi ekki geymt pen­inga í skatta­skjóli.

Þetta kom fram í upp­hafi kosn­inga­þáttar sem nú er í beinni útsend­ingu á RÚV.

Sig­mundur Davíð kann­að­ist ekki heldur við það að verið væri að kjósa snemma vegna hans og Wintris-máls­ins. Hann sagð­ist hafa orðið fyrir ótrú­legri árás, sem hafi komið á dag­inn að hafi verið „til­efn­is­laus og ótrú­lega gróf“.

Frétta­menn spurðu hann ítrekað hvort honum þætti ekk­ert sið­ferð­is­lega ámæl­is­vert við að eiga félag í skatta­skjóli og hvort honum þætti ekki til­efni til að biðj­ast afsök­unar á mál­inu. Hann sagð­ist geta beðist afsök­unar fyrir margt bæði sem ein­stak­lingur og stjórn­mála­maður, en „ég get ekki beðist afsök­unar á því hvernig ákveðnir aðilar, meðal ann­ars á vegum ykkar stofn­unar, gengu fram í mál­inu.“

Átti Wintris þegar það lýsti kröfum í bú bankanna

Greint var frá því í Kast­ljós­þætti í byrjun apríl að Sig­mundur Davíð var skráður eig­and­i ­fé­lags­ins Wintris Inc. þegar það lýsti kröfum í slitabú föllnu bank­anna ­þriggja. Þar kom einnig fram að hann hefði selt helm­ings­hlut sinn í félag­inu til eig­in­konu sinnar á einn banda­ríkja­dal 31. des­em­ber 2009. Engar upp­lýs­ingar þurfti að gefa upp um félagið þar sem kaupin fóru fram fyrir ára­mót­in, því ný lög tóku gildi 2010.

Félagið Wintris er skráð á Tortóla, sem er þekkt skatta­skjól og meðal ann­ars skil­greint sem slíkt af íslenskum yfir­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár