Vigdís kannast ekki við að þingflokkurinn hafi sett Sigmund Davíð af

Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist ekki kann­ast við að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi ákveðið að setja Sigmund Davíð Gunn­laugs­son af sem for­sæt­is­ráð­herra 5. apríl síð­ast­lið­inn. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sem tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­farið, greindi frá því í við­tali við útvarps­þátt­inn Sprengisand fyrr í dag að þing­flokk­ur­inn hefði tekið slíka ákvörðun vegna trún­að­ar­brests í kjöl­far Wintris-máls­ins. Vigdís segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að henni hafi „sem betur fer haldið utan við þessa ógeðs­legu aðför - nú verður Sigurður Ingi að stíga fram og upp­lýsa hvaða þing­menn sátu á svikráð um við for­mann flokks­ins - það var í það minnsta ekki allur þing­flokk­ur­inn“.

Á mbl.is er haft eftir Vigdísi að hún hafi eig­in­lega ekki vitað hvað hafi verið um að vera á þing­flokks­fund­inum í apríl og að hana vanti enn mörg púslu­spil til að átta sig á því hvað hafi gerst þennan dag. Aug­ljós­lega hafi eitt­hvað átt sér stað bak­við tjöldin. Þing­flokk­ur­inn hafi ekki verið búinn að ákveða neitt um afdrif Sig­mundar Davíðs sem for­sæt­is­ráð­herra, líkt og Sigurður Ingi hefur haldið fram. „Þetta voru ein­hverj­ir aðilar í kring­um hann sem voru bún­ir að ákveða að at­b­urðarás­in yrði svona.“

Vig­dís seg­ir að málið sé „súrt.“ Það sé fullt af „brigsl­um, svik­um og óheið­ar­leika. En ég meina, ef menn vilja ekki að flokk­ur­inn verði hund­rað ára, þá er þetta besta leiðin til þess. Það er bara þannig. Og þá ber nú­ver­andi vara­for­maður flokks­ins fulla ábyrgð á því.“

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, spyr Vigdísi í ummæla­kerfi hennar hvort hún hafi ekki verið á fund­inum. Á eigin síðu segir Silja Dögg að þegar Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður flokks­ins sem síðar varð for­sæt­is­ráð­herra, hafi mætt á þing­flokks­fund­inn sem hald­inn var 5. apríl, dag­inn sem Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra, hafi þing­flokk­ur­inn verið búinn „að taka ákvörðun um að setja for­sæt­is­ráð­herra af og leita á fund Sjálf­stæðis­flokks­ins um áfram­hald­andi sam­starf en Sig­urður fékk tæki­færi til að setja Sig­mund inn í þróun mála þegar síðar­nefndi kom til baka frá Bessa­stöðum.“

Sagði þingflokkinn hafa þegar samþykkt vantraust

Sigurður Ingi var sem fyrr segir í við­tali í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag. Þar sagði hann að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi verið búinn að taka ákvörðun um að setja Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son af sem for­sæt­is­ráð­herra á þing­flokks­fundi 5. apríl síð­ast­lið­inn, áður en að for­mað­ur­inn kom á fund­inn. Þing­flokk­ur­inn var búinn að taka ákvörðun um að biðja vara­for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sig­urð Inga Jóhanns­son, og þing­flokks­for­mann­inn, Ásmund Einar Daða­son, um að fara til Sjálf­stæð­is­flokks­ins og biðja um áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starf, en setja for­sæt­is­ráð­herr­ann af.

Ástæðan var trún­að­ar­brestur milli þing­flokks­ins og Sig­mundar Dav­íðs vegna Wintris-­máls­ins og eft­ir­mála þess. Sig­mundur Davíð kom síðar til fund­ar­ins en aðrir þing­menn, en hann hafði m.a. farið til Bessa­staða til að sækj­ast eftir þing­rofs­heim­ild fyrr sama dag án sam­ráðs við þing­flokk­inn. Þegar Sig­mundur Davíð kom á fund­inn ræddi Sig­urður Ingi, að eigin sögn, eins­lega við hann og sagði honum frá stöð­unni og að for­sæt­is­ráð­herr­ann væri búinn að missa stuðn­ing þing­flokks­ins. Síðan fóru þeir saman inn á fund þing­flokks­ins og 10-15 mín­útum síðar lagði Sig­mundur Davíð sjálfur fram sömu til­lögu og þing­flokk­ur­inn hafði þegar sam­þykkt áður en til atkvæða­greiðslu kæmi. Hún var sam­þykkt. Opin­ber­lega var greint frá mál­inu á þann veg að Sig­mundur Davíð hefði sjálfur lagt fram til­lögu um að stíga til hlið­ar, en ekk­ert sagt frá því að þing­flokk­ur­inn hafi verið búinn að taka þá ákvörðun fyrir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár