Danaprins verður varnarmálasérfræðingur

Dönum þykir sjaldn­ast frétt­næmt þótt nýr starfs­maður sé ráð­inn í danskt ráðu­neyti. Flestir, ef ekki allir, danskir fjöl­miðlar greindu þó frá nýjum starfs­manni utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Starfs­mað­ur­inn er ekki ein­hver „Jón úti í bæ“ heldur prins.

Jóakim ásamt eiginkonu sinni Marie í fyrrahaust.
Jóakim ásamt eig­in­konu sinni Marie í fyrra­haust. Mynd: EPA

Danir hafa mik­inn áhuga á öllu því sem við­kemur fjöl­skyldu Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar. Þess vegna má slá því föstu að þeir hafi með athygli lesið frétt sem dönsku fjöl­miðl­arnir birtu sl. mið­viku­dag, 10. júní. Þar var sagt frá því að Jóakim (Joachim), yngri sonur Mar­grétar Þór­hildar og Henriks drottn­ing­ar­manns, hefði verið ráð­inn til starfa við danska sendi­ráðið í París. Þessi frétt hefur vafa­lítið komið mörgum á óvart, en ekki síður starfs­heitið: forsvarsattaché. „Forsvarsattaché, hvad er nu det for noget“ sagði eldri maður þegar sjón­varps­frétta­maður spurði hann hvernig honum lit­ist á þetta nýja starf Jóakims. Og áður en frétta­mað­ur­inn hafði svarað, bætti karl­inn við „það er ágætt að hann skuli nenna að vinna“.

Joachim Holger Waldemar Christian eins og prins­inn heitir fullu nafni er fæddur 7. júní 1969. Hann gekk í Krebs skól­ann á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn frá 1974 til 1982. Þá tók við eins árs dvöl á heima­vist­ar­skóla í Normandí í Frakk­landi og árið 1986 lauk hann stúd­ents­prófi frá Øregaard mennta­skól­anum í Hellerup. Að lok­inni eins árs dvöl sem vinnu­maður á búgarði í Ástralíu tók her­skyldan við.

Jóakim hefur sjálfur sagt að vera sín í hernum hafi verið góður skóli og eftir að hinni lög­bundnu her­skyldu lauk stund­aði hann fram­halds­nám innan hers­ins og til að gera langa sögu stutta varð hann árið 2015 ofursti í hernum. Þótt áhugi Jóakims hafi beinst að hernum ein­skorð­að­ist áhugi hans ekki við her­mennsk­una. Hann hefur alla tíð haft mik­inn áhuga á land­bún­aði og á árunum 1991 -1993 stund­aði hann nám við Den Classenske Ager­brugs­skole, land­bún­að­ar­skóla á Falstri.

Bóndinn

Jóakim er ári yngri en bróðir hans, rík­is­arf­inn Friðrik. Friðrik á fjögur börn og þau eru öll á undan Jóakim í erfða­röð krún­unnar og því afar ólík­legt að hann verði nokkru sinni þjóð­höfð­ingi Dan­merkur. Hlutverk rík­is­arfans er mjög skýrt en öðru máli gegnir um bróð­ur­inn Jóakim. Það reyn­ist kónga- og drottn­inga­börnum, öðrum en því elsta, oft erfitt að „finna fjöl­ina sína“. Börn kónga­fólks­ins mega iðu­lega sitja undir mik­illi gagn­rýni fólks sem á erfitt með að skilja hvers­vegna „við eigum að halda afkvæmum kónga­fólks­ins uppi“ eins og það er stundum orðað. Jóakim hefur ekki farið var­hluta af þess­ari gagn­rýni og jafn­vel látið að því liggja að hann njóti lífs­ins á kostnað skatt­borgar­anna og þurfi lítið á sig að leggja.

[adspot]Margir urðu undr­andi þegar greint var frá því árið 1995 að Jóakim og Alex­andra fyrri kona hans, sem þá voru að ganga í hjóna­band, fengju yfir­ráð yfir Schackenborgarhöll á Suður-Jótlandi. Höllina hafði von Schack greifi fengið að gjöf frá Friðriki III um miðja sautj­ándu öld en afkom­endur hans afhentu hirð­inni höll­ina árið 1978. Efnt var til sam­skota meðal dansks almenn­ings vegna við­gerða á höll­inni og árið 1999 fluttu Jóakim og Alex­andra svo í höll­ina í Møgeltønder. Ætlun Jóakims var að stunda land­búnað á jörð­inni en búskap­ur­inn gekk erf­ið­lega og hjónin fluttu úr höll­inni, til Kaup­manna­hafnar. Brestir voru komnir í hjóna­bandið og Jóakim og Alex­andra skildu árið 2005. Tveimur árum síðar gift­ist Jóakim núver­andi eig­in­konu sinni, Marie. Þau eiga tvö börn en fyrir átti Jóakim tvö börn úr hjóna­bandi sínu með Alexöndru. Meðfram búskapnum á Suður-Jótlandi gegndi Jóakim ýmsum störfum hjá hernum og árið 2015 fékk hann titil ofursta í vara­liði hers­ins.

Nám í Frakklandi

Í árs­byrjun 2019 fékk Jóakim boð franska varn­ar­mála­ráð­herr­ans um náms­dvöl í Her­skól­anum (École Militaire) í París. Námið, sem 30 manns (flestir franskir) stunda hverju sinni, er tak­markað við hátt setta yfir­menn í hernum. og tekur eitt ár,telst æðsta náms­stig Her­skól­ans. Jóakim er fyrsti Daninn sem stundar þetta nám.

Hvað gerir forsvarsattaché?

Margir Danir klór­uðu sér í koll­inum þegar fregnir bár­ust af þessu starfi sem Jóakim prins hefði fengið. Orða­bækur segja attaché, sem er komið úr frönsku, merkja sendi­ráðs­rit­ara, eða full­trúa í sendi­ráði, sem oft­ast sinnir sér­stöku til­teknu sviði innan sendi­ráðs­ins. Sá sem ber starfs­heitið forsvarsattaché í sendi­ráði kemur langoft­ast (eða alltaf) úr hernum og sinnir mál­efnum sem varða hern­að­ar­sam­vinnu Dan­merkur og við­kom­andi lands. Sem sé eins­konar tengiliður á hern­að­ar­svið­inu.

Ekki í jakkafötum í vinnunni

Þegar Jóakim byrjar í nýju vinn­unni, 1. sept­em­ber næst­kom­andi, getur hann ekki mætt í jakka­fötum, með háls­tau. Sá klæðn­aður er ekki gjald­gengur hjá forsvarsattaché. Í vinn­unni skal sá sem gegnir stöð­unni klæð­ast ein­kenn­is­fatn­aði hers­ins, fatn­aði sem sýnir stöðu hans innan hers­ins. Ekki er víst að Jóakim dugi einn umgangur af her­klæð­unum, ráðn­ingin er til þriggja ára.

Hefur Jóakim það sem til þarf í starfið?

Þessa spurn­ingu lagði frétta­maður danska útvarps­ins, DR, fyrir Henrik Breitenbauch, sér­fræð­ing á sviði hern­að­ar­mála. Sér­fræð­ing­ur­inn svar­aði spurn­ing­unni ját­andi: Jóakim hefði 33 ára reynslu í hernum, hann hefði hægt og rólega „klifrað upp stig­ann“ eins og sér­fræð­ing­ur­inn orð­aði það. Hvort sú stað­reynd að Jóakim er sonur Dana­drottn­ingar taldi Henrik Breitenbauch ekki skipta máli varð­andi ráðn­ing­una.

Launin

Danska útvarpið spurð­ist fyrir um laun Jóakims í nýja starf­inu. Svarið við þeirri spurn­ingu kom frétta­manni á óvart. Jóakim fær engin laun meðan hann gegnir starf­inu. „Þarf hann þá að lifa á pasta og tómatsósu, og korn­flexi með vatni útá“ var spurt. Nei, ekki er það svo. Prinsinn heldur nefni­lega fram­færslu­launum (apanage) sínum hjá hirð­inni. Þau nema 330 þús­und dönskum krónum (6,7 millj­ónir íslenskar) á mán­uði. Herinn leggur til vinnu­fatn­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár