Stuðningslánum mögulega of naumt skammtað

Eft­ir­lits­nefnd með lánum með rík­is­á­byrgð telur að ætla megi að innan við helm­ingur þeirra fyr­ir­tækja sem sóst hafa eftir stuðn­ings­lánum fái út úr úrræð­inu það fé sem þau telji sig þurfa. Nefndin skil­aði skýrslu til ráð­herra á dög­unum.

Stóru viðskiptabankarnir þrír hafa borið þungann af því að deila út ríkisábyrgðarlánunum sem skýrslan fjallar um.
Stóru við­skipta­bank­arnir þrír hafa borið þung­ann af því að deila út rík­is­á­byrgð­ar­lán­unum sem skýrslan fjallar um. Mynd: Samsett

Rúmur helm­ingur þeirra fyr­ir­tækja sem tekið hafa stuðn­ings­lán nær ekki að nýta sér hámarks­láns­heim­ild stuðn­ings­láns með fullri rík­is­á­byrgð og fær enga láns­heim­ild með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð, vegna ákvæðis um að hámarks­láns­upp­hæðin nemi 10 pró­sentum af tekjum árs­ins 2019, sam­kvæmt því sem fram kemur í nýrri skýrslu sem eft­ir­lits­nefnd með lánum með rík­is­á­byrgð hefur unnið um útfærslu við­bót­ar­lána og stuðn­ings­lána.

Í skýrsl­unni segir nefndin að ætla megi að í mesta lagi 47 pró­sent umsækj­enda um þessi lán fái lán­aða þá fjár­hæð í gegnum úrræðið sem þeir telja sig í raun þurfa.

„Þetta háa hlut­fall umsækj­enda sem reka sig á skil­yrðið um 10% hámark af tekjum vekur eft­ir­lits­nefnd­ina til umhugs­unar um það hvort hámarkið kunni að vera lægra en ástæða væri til, einkum í því ljósi að þau erlendu úrræði sem nefndin hefur kynnt sér gera alla jafna ráð fyrir hærra hlut­falli af tekjum,“ segir nefndin í skýrslu sinni.

Mest lánað til ferðaþjónustunnar

Rúmur helm­ingur allra stuðn­ings­lána sem höfðu verið veitt fyr­ir­tækjum í lok sept­em­ber­mán­aðar fóru til ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja. Alls voru stuðn­ings­lánin orðin 654 tals­ins á þeim tíma­punkti og 338 þeirra, að and­virði sam­tals rúm­lega 2,8 millj­arða króna, fóru til fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu, sam­kvæmt því sem fram kemur í skýrslu nefnd­ar­innar.[links]

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækin höfðu að með­al­tali orðið fyrir 86 pró­sent tekju­tapi frá fyrra ári. Að auki fóru 177 lán til fyr­ir­tækja sem starfa í þjón­ustu og ætla má að mörg þeirra séu í ferða­þjón­ustu­tengdri starf­semi.

Stuðn­ings­lánin virka þannig að fyr­ir­tæki í vanda sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­tapi á milli ára geta fengið 10 millj­ónir króna að láni með 100 pró­sent rík­is­á­byrgð. Þetta fé fæst lánað á vöxtum sem eru þeir sömu og stýri­vextir Seðla­bank­ans, sem hafa verið 1 pró­sent síðan í vor en eru nú 0,75 pró­sent.

Lánin geta að hámarki orðið 40 millj­ónir og eru seinni 30 millj­ón­irnar þá með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð, en lánin eru veitt í gegnum lána­stofn­anir. Opnað var fyrir umsóknir í byrjun júlí, en með­al­upp­hæð þeirra stuðn­ings­lána sem veitt höfðu verið í lok sept­em­ber var 7,9 millj­ónir króna.

Einungis 62 fyr­ir­tæki höfðu þá fengið stuðn­ings­lán sem voru hærri en 10 millj­ónir króna og þar af leið­andi að hluta á ábyrgð lána­stofn­ana og á hærri vöxtum - eða 3,7 pró­sent að með­al­tali. Þar af voru 35 ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki. Að með­al­tali fengu fyr­ir­tækin 62 19,3 millj­ónir króna lán­aðar með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð.

Í skýrslu eft­ir­lits­nefnd­ar­innar er farið yfir hvernig lánin skipt­ast á milli geira eins og sjá má í töfl­unni hér að ofan en einnig er farið yfir það hvernig lánin skipt­ast á milli fyr­ir­tækja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á lands­byggð­inni. Fleiri fyr­ir­tæki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en í lands­byggð­unum hafa tekið stuðn­ings­lán.

Arion banki með lægstu vextina á stærri lánunum

Stóru við­skipta­bank­arnir þrír hafa haft milli­göngu um lang­flest stuðn­ings­lánin, eins og við mátti búast. Sjá má hvernig þau skipt­ast í töfl­unni hér að neðan. Arion banki hafði veitt flest stærri lán­anna sem búið var að veita í lok sept­em­ber, eða alls 38 af 62.

Lán bank­ans námu 688 millj­ónum af þeim alls tæp­lega 1,2 millj­örðum sem búið var að lána með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð, eða röskum helm­ingi.

Arion banki var einnig með hag­stæð­ari vexti en hinir bank­arnir sem veittu þessi lán, en vegið með­al­tal vaxta bank­ans á lánum umfram 10 millj­ónir var 3,3 pró­sent á meðan að það var 3,9 pró­sent hjá Íslands­banka, sem hafði veitt 15 lán og 4,8 pró­sent hjá Lands­bank­anum, sem hafði veitt 8 lán með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð í lok sept­em­ber­mán­aðar.

Bankarnir lítið búnir að hugsa út í mögulega endurfjármögnun

Eft­ir­lits­nefndin spurði fjár­mála­fyr­ir­tækin nokk­urra spurn­inga um fram­kvæmd­ina, meðal ann­ars út í mögu­lega end­ur­fjár­mögnun á þessum stuðn­ings­lánum, ef upp kæmi að lán­takar réðu ekki við end­ur­greiðslur sam­kvæmt því end­ur­greiðslu­ferli sem samn­ingar lán­veit­enda við Seðla­bank­ann mæla fyrir um.

Flestir bank­arnir höfðu lítið velt þessu fyrir sér, sam­kvæmt svörum til nefnd­ar­innar. Einn bank­inn sagð­ist þó frá upp­hafi hafa lýst yfir áhyggjum af því að láns­tími bæði við­bót­ar­lána og stuðn­ings­lána væri of stuttur, en hámarks­láns­tími lána upp að 10 millj­ónum eru 30 mán­uðir og hærri lána allt að 48 mán­uðir.

Bankinn sem hafði áhyggjur fyrir sagði að þær hefðu síst minnkað í ljósi þess hvernig far­ald­ur­inn hefði þró­ast. Bankinn hafði hins vegar ekki mótað sér almenna afstöðu til end­ur­fjár­mögn­unar án rík­is­á­byrgðar og taldi það ótíma­bært. Mikil óvissa væri um hver end­ur­greiðslu­getan yrði í byrjun árs 2022 þegar fyrstu end­ur­greiðslur ættu að hefj­ast.

Í ábend­ingum sem eft­ir­lits­nefndin veitir stjórn­völdum í nið­ur­lagi skýrsl­unnar er bent á þann mögu­leika að tekið verði til skoð­unar að fram­lengja rík­is­á­byrgð vegna við­bót­ar­lána og stuðn­ings­lána inn í árið 2021, en umsókn­ar­frestur um þessi rík­is­á­byrgð­ar­lán rennur óbreyttu út núna um ára­mót. Nefndin bendir einnig á þann mögu­leika að taka til skoð­unar að lengja láns­tíma lán­anna og rýmka end­ur­greiðslu­tíma þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár