Fyrirtæki snúa baki við NRA

Barátta ung­menna frá Flórída hefur breitt úr sér um öll ríki Banda­ríkj­anna.

Fyr­ir­tæki eru farin að snúa baki við Samtökum byssu­eig­enda í Banda­ríkj­unum (NRA). Flug­fé­lög­in United og Delta bætt­ust í hóp bíla­leig­anna Hertz og Enter­prise sem buðu báðar upp á af­slætti fyr­ir fé­lags­menn sam­tak­anna. Meg­in­á­stæðan fyrir ákvörð­un­inni er sú, að vax­andi þrýst­ingur er nú á öll fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum, sem bjóða félags­mönnum NRA vild­ar­kjör, að draga stuðn­ing­inn til baka.

Nemendur við Stoneman Douglas High School í Flórída, þar sem 17 voru myrtir 14. febr­úar síð­ast­lið­inn, hafa skipu­lagt mót­mæli og fundi, til að beita stjórn­mála­menn og fyr­ir­tæki þrýst­ingi, svo að byssu­lög­gjöf­inni verði breytt. Hefur bar­átta þeirra náð inn í Hvíta húsið, þar sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti tók á móti nem­endum og aðstand­endum, skömmu eftir atburð­inn.

Á sam­fé­lags­miðlum hefur bar­áttan farið fram undir myllu­merk­inu #BoycottNRA, og hefur spjót­unum þannig verið beint gegn þessum valda­miklu sam­tökum. Þau voru stærsti styrkj­andi kosn­inga­bar­áttu Donalds Trumps, með meira en 30 millj­ónir Banda­ríkja­dala í heild­ar­styrki.

Opinber tala yfir heild­ar­fjölda félaga í NRA í Banda­ríkj­unum hefur aldrei verið gefin upp, en talið er að 5 til 6 millj­ónir manna séu í sam­tök­unum, og njóti meðal ann­ars víð­tæku vild­ar­kjara­kerfi víðs vegar um Banda­ríkin, ekki síst í byssu­versl­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár