Hlaupið í kringum hnöttinn er hafið

Hópur fólks sem vildi gera eitt­hvað upp­byggi­legt á þessum dæma­lausu tímum hefur sett í loftið vef­síðu þar sem öllum gefst kostur á að taka þátt í leik sem snýst um að hlaupa í sam­ein­ingu hring­inn í kringum hnött­inn.

Hópur fólks, sem vildi gera eitt­hvað upp­byggi­legt á meðan heims­far­aldur geisar, hefur sett í loftið vef­síð­una Hlaupum kringum hnött­inn. Þar getur fólk tekið þátt í sam­eig­in­legu hlaupi í kringum hnött­inn, með því að skrá inn kíló­metrana sem það hleypur eða gengur á degi hverjum.

Hver og einn þátt­tak­andi í leiknum, sem fólk teng­ist í gegnum Facebook, getur sett inn sinn kíló­metra­fjölda einu sinni á dag og þannig lagt sín lóð á vog­ar­skál­arnar og hjálpað til við að kom­ast allan hring­inn í kringum jörð­ina. Síðan hefur verið í loft­inu frá því í gær og þegar þetta er skrifað eru þátt­tak­endur þegar búnir að hlaupa sam­an­lagt alla leið­ina til Glasgow í Skotlandi.

Þór­lindur Kjart­ans­son er einn þeirra sem stendur að baki síð­unni. Hann segir við Kjarnann að það sé nauð­syn­legt á þessum tímum – og verði enn nauð­syn­legra þegar líður á sam­komu­bannið – að fólk hugi að lík­am­legri og and­legri heilsu og drífi sig út úr húsi til hreyf­ingar þrátt fyrir allt það sem gengur á.

En hvað ger­ist þegar það verður búið að hlaupa í kringum jörð­ina?

„Það kemur í ljós, en það er búið að ákveða það. Það klár­lega verður mjög áhuga­vert að kom­ast að því!“ segir Þór­lindur, en leik­ur­inn verður í loft­inu þar til neyð­ar­stigi almanna­varna vegna COVID-19 far­ald­urs­ins hér á landi verður aflétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár