Glæpahundarnir gæta hans

Rasmus Paludan, umdeild­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur, vill breyta nafn­inu á flokki sínum til að geta boðið fram í næstu kosn­ingum. Lög­reglan, sem Rasmus kallar glæpa­hunda, gætir hans allan sól­ar­hring­inn, með ærnum til­kostn­aði.

Rasmus Paludan.
Rasmus Paludan. Mynd: EPA

Árið 2017 stofn­aði Rasmus Paludan stjórn­mála­flokk­inn Stram Kurs, Stífa stefnu. Í bæja og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum það ár bauð flokk­ur­inn fram í öllum bæja- og sveit­ar­fé­lögum en fékk lítið fylgi og náði hvergi að fá full­trúa kjör­inn. Rasmus Paludan lét þó engan bil­bug á sér finna, sagði fall far­ar­heill. Flokk­ur­inn væri rétt að byrja að fóta sig og ekki myndi líða á löngu uns allir Danir þekktu hann. Það reynd­ust orð að sönnu þótt það hafi kannski ekki orðið með þeim hætti sem flestir bjugg­ust við.

Hver er hann, þessi Rasmus Paludan?

Þótt fæstir Danir hafi kannski kann­ast við Rasmus Paludan áður en hann skaust upp á fjöl­miðla­him­in­inn árið 2017 þekkir hvert manns­barn hann í dag.

Rasmus Paludan er fæddur 2. jan­úar 1982. Hann ólst upp í Hornbæk á Norður- Sjálandi og lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum á Hels­ingja­eyri árið 2000. Að lok­inni her­skyldu hóf hann nám í lög­fræði við Hafn­ar­há­skóla og útskrif­að­ist árið 2008 og fékk rétt­indi sem hér­aðs­dóms­lög­maður árið 2014. Á árunum 2015 -2018 var Rasmus Paludan stunda­kenn­ari við lög­fræði­deild Hafn­ar­há­skóla. Á þeim tíma bár­ust yfir­stjórn skól­ans fjöl­margar kvart­anir vegna fram­komu og kennslu­hátta hans.

[adspot]Rasmus Paludan fékk ungur áhuga á stjórn­málum. Átján ára að aldri varð hann félagi í Radikale Ungdom, ung­liða­hreyf­ingu Radikale flokks­ins. Síðar var hann um tíma félagi í Radikale flokknum og einnig í Venstre flokknum. Í hvor­ugum þess­ara flokka festi Rasmus Paludan rætur. Árið 2009 bauð hann sig fram til Evr­ópu­þings­ins fyrir hönd Juni­Bevægel­sen en náði ekki kjöri. Helstu bar­áttu­mál hreyf­ing­ar­innar var að berj­ast gegn síauknum áhrifum Evr­ópu­sam­bands­ins á mál­efni Dan­merkur. Juni­Bevægel­sen voru stofnuð árið 1993 og áttu full­trúa á Evr­ópu­þing­inu frá stofnun og fram til árs­ins 2009 en logn­uð­ust þá út af.

Rasmus Paludan var um tíma félagi í sam­tökum sem kennd voru við sænska lista­mann­inn Lars Vilks, og stóðu fyrir umræðu­fundum um þjóð­fé­lags­mál. Á fundi sam­tak­anna í sam­komu­hús­inu Krudttønden á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn 14. febr­úar 2014 hugð­ist vopn­aður maður, Omar El-Hussein ráð­ast inn á fund­ar­stað­inn. Fyrir utan húsið varð Omar El-Hussein manni að bana og flýði síðan af vett­vangi. Um mið­nætti sama dag varð Omar El-Hussein öðrum manni að bana, í mið­borg Kaup­mann­hafnar. Sjálfur féll hann svo í skot­bar­daga við lög­reglu. Lars Vilks sam­tökin leyst­ust upp árið 2019 en þá var Rasmus Paludan löngu róinn á önnur mið. Hafði haft stutta við­komu í stjórn­mála­flokknum Nye Borgerlige en var rek­inn úr flokknum vegna ummæla sem hann hafði við­haft á fundi sam­tak­anna For Frihed. Þar sagði Rasmus Paludan í ræðu að í Danmörku ríkti borg­ara­styrj­öld vegna inn­rásar frá fram­andi fjendum, múslimum.

Stram Kurs – Stíf stefna

Eins og áður var nefnt stofn­aði Rasmus Paludan nýjan flokk, Stram Kurs, Stífa Stefnu árið 2017. Aðal bar­áttu­mál flokks­ins (sem oft hefur verið kall­aður eins manns flokkur) var bar­átta gegn múslimum og að hálfri milljón fólks, sem ekki væri af vest­rænum upp­runa (orða­lag flokks­for­manns­ins) en byggi í Danmörku yrði vísað úr landi. Í kosn­ingum til bæja- og sveita­stjórna það sama ár fékk Stíf Stefna engan full­trúa kjör­inn. Ýmsir töldu að þessi nýi flokkur væri þar með úr sög­unni. Það reynd­ist ekki rétt.

Árið 2018 hélt Rasmus Paludan fjölda úti- og mót­mæla­funda, í nafni flokks­ins. Fund­ar­efnið var ætíð hið sama, bar­átta gegn múslimum. Fram­ferði hans vakti mikla reiði múslima í Danmörku, hann kveikti í Kór­an­inum, hvatti fólk til að spræna á þessa helg­ustu bók múslima, og trampa á henni. Stundum átti Rasmus Paludan fótum fjör að launa og lög­regla bann­aði oft á tíðum fundi sem hann hugð­ist halda. Stuðn­ings­menn Stífrar Stefnu birtu á net­inu, td. YouTube, mynd­bönd sem sýndu flokks­for­mann­inn flytja ræður, þar sem hann fór mik­inn. Þetta dró athygli að flokknum og þeim sem fylgdu honum að málum fjölg­aði mjög.

Fyrir kosn­ing­arnar í Danmörku árið 2019 fékk Stíf Stefna nægan fjölda með­mæl­enda til að geta boðið fram í þing­kosn­ing­unum sem fram fóru 5. júní. Fyrir kosn­ingar bentu kann­anir til að flokk­ur­inn myndi ná manni á þing, en sú varð þó ekki raunin.

Meðmælendasvindl og hugsanleg nafnbreyting

Fljót­lega að kosn­ingum loknum fóru að heyr­ast raddir um að ekki hefði allt verið með felldu varð­andi með­mæl­enda­lista sem lagður var fram og heim­il­aði Stífri Stefnu að bjóða fram. Nefnd sem hefur eft­ir­lit með und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd kosn­inga hefur þetta mál nú til athug­unar og mun til­kynna nið­ur­stöðu sína í lok þessa mán­aðar.

[adspot]Rasmus Paludan er sann­færður um að Stíf Stefna fái ekki að bjóða fram í næstu kosn­ingum og und­ir­býr nú nafn­breyt­ingu á flokknum til að geta boðið fram. Flokks­for­mað­ur­inn er jafn­framt viss um að sér verði ekki heim­ilað að vera í for­ystu „nýja“ flokks­ins, ástæða þess eru dómar sem hann hefur hlotið, ekki síst brot gegn yfir­völdum, nánar til­tekið lög­regl­unni. Hann hefur ráð­ist á lög­reglu­menn að störfum, kallað þá glæpa­hunda, og ýmis­legt þaðan af verra.

Glæpahundarnir gæta hans

Í æviminn­ingum sínum sagði Paul Schluter fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dana frá því að fyrsta dag­inn í emb­ætti sem for­sæt­is­ráð­herra (árið 1982) mætti bíl­stjór­inn ekki á réttum tíma við heim­ili hans. „Ég tók þá bara strætó eins og ég var vanur“ sagði Paul Schluter. Þetta myndi ekki ger­ast í dag, og þarf ekki for­sæt­is­ráð­herra til.

Samkvæmt dönskum lögum ber lög­regl­unni að gæta öryggis stjórn­mála­manna. Hversu mikil sú gæsla skuli vera er metin í hverju til­viki. Í sam­ræmi við þetta gæta nú lög­reglu­þjónar Rasmus Paludan og fylgja honum hvert fót­mál, nótt sem nýtan dag. Honum hefur margoft verið hótað líf­láti vegna skoð­ana sinna.

Í októ­ber í fyrra flutti Rasmus Paludan til smá­bæj­ar­ins Rød­kærs­bro, smá­bæjar á Mið- Jótlandi. Á dag­vinnu­tíma eru það starfs­menn Leynilög­regl­unnar, PET, sem gæta flokks­for­manns­ins en á nótt­unni eru tveir lög­reglu­þjónar frá Mið- og Vestur Jótlandi á vakt við húsið. Rød­kærs­bro er ekki bein­línis í þjóð­leið og sú ákvörðun Rasmus Paludan að setj­ast þar að kallar því á mikil útgjöld lög­regl­unnar.

Danska útvarpið, DR, fjall­aði nýlega ítar­lega um kostn­að­inn sem fylgir lög­reglu­vernd nokk­urra stjórn­mála­manna, þar á meðal Rasmus Paludan. Þar kom fram að frá októ­ber í fyrra og til 1. mars í ár nema útgjöld lög­regl­unnar á Mið- og Vestur Jótlandi vegna Rasmus Paludan (síðan hann flutti til Rød­kærs­bro) um það 180 þús­und dönskum krónum (3.6 millj­ónum íslenskum). Kostn­aður dönsku Leynilög­regl­unnar vegna gæsl­unnar liggur ekki fyrir en þó er vitað að hann er umtals­vert hærri. Við þetta bæt­ist svo kostn­aður ann­arra lög­reglu­um­dæma þegar Rasmus Paludan er að heiman, að sögn frétta­manna DR er það meira en önnur hver nótt.

Samkvæmt upp­lýs­ingum DR voru heild­ar­út­gjöld lög­reglu á árinu 2019, vegna gæsl­unnar í kringum Rasmus Paludan rúm­lega 100 millj­ónir danskra króna (rúmir 2 millj­arðar íslenskir).

Rasmus Paludan hefur ekki tjáð sig mikið um lög­gæsl­una og kostn­að­inn við hana. Segist bara halda sínu striki, og sofa vel. Þegar hann var spurður hvernig honum lík­aði að hafa lög­regl­una á vappi fyrir utan húsið á nótt­unni svar­aði hann „það er alltaf gott að hafa varð­hunda, hvort sem þeir eru fjór­fættir eða tví­fættir“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár