Logi og Hilda Jana efst á lista Samfylkingar í Norðausturkjördæmi

Listi Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi var sam­þykktur á fundi kjör­dæm­is­ráðs flokks­ins í kvöld. Hilda Jana Gísla­dóttir bæj­ar­full­trúi á Akureyri verður í öðru sæti list­ans, á eftir flokks­for­mann­inum Loga Ein­ars­syni.

Efstu fjóru frambjóðendurnir á lista Samfylkingarinnar.
Efstu fjóru fram­bjóð­end­urnir á lista Sam­fylk­ing­ar­innar.

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Hilda Jana Gísla­dóttir bæj­ar­full­trúi á Akureyri og for­maður Samtaka sveit­ar­fé­laga á Norð­ur­landi eystra leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi til kosn­inga í haust. Í þriðja sæti list­ans er Eydís Ásbjörns­dóttir, fram­halds­skóla­kenn­ari og bæj­ar­full­trúi í Fjarða­byggð.

Listinn var sam­hljóða sam­þykktur á fundi kjör­dæm­is­ráðs Sam­fylk­ing­ar­innar í kvöld, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef flokks­ins. Logi og Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir eru í dag þing­menn flokks­ins í kjör­dæm­inu en Albertína ákvað að gefa ekki kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu. Hún skipar eitt af neðstu sætum list­ans.

Á vef Sam­fylk­ing­ar­innar er haft eftir Loga að han sé stoltur af því að leiða áfram list­ann í kjör­dæm­inu. Hann telur það list­anum til tekna að efstu fjórir fram­bjóð­endur hafi allir bak­grunn úr sveit­ar­stjórn.

„Öll höfum við setið í sveit­ar­stjórnum og þekkjum vel mik­il­vægi nær­þjón­ust­unnar og nauð­syn þess að auka sam­vinnu og traust milli ríkis og sveit­ar­fé­laga. Ég hlakka til kosn­inga­bar­átt­unnar með þessum góða hópi,“ er haft eftir Loga.

Efstu sæti á listanum:

  1. Logi Ein­ars­son, Akureyri- Alþing­is­maður og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar
  2. Hilda Jana Gísla­dóttir, Akureyri- Bæj­ar­full­trúi og for­maður SSNE
  3. Eydís Ásbjörns­dóttir, Eski­firði- Fram­hald­s­kóla­kenn­ari og bæj­ar­full­trúi
  4. Kjartan Páll Þór­ar­ins­son, Húsavík- Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúi
  5. Margrét Bene­dikts­dóttir, Akureyri- Háskóla­nemi
  6. Sigurður Vopni Vatnsdal, Vopna­firði- Deild­ar­stjóri á leik­skóla
  7. Ísak Már Jóhann­es­son, Akureyri- Umhverf­is­fræð­ingur
  8. Lilja Guðný Jóhann­es­dóttir, Nes­kaup­stað- Skóla­meist­ari

Eins og Kjarninn fjall­aði um yfir pásk­ana mælist Sam­fylk­ingin í nýj­ustu könn­unum MMR með umtals­vert meira fylgi á Norð­ur­landi en fyrir kosn­ing­arnar 2017, eða tæp 18 pró­sent. Í sam­bæri­legum könn­unum MMR fyrir tæpum fjórum árum var fylgið í lands­hlut­anum að mæl­ast í tæpum 10 pró­sentu­stig­um. Á Aust­ur­landi hafa hart­nær 13 pró­sent þeirra sem taka afstöðu sagst ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una – fyrir kosn­ing­arnar 2017 voru það rúm 8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár