Það kraumar í Venstre pottinum

Það ríkir ekki sátt og sam­lyndi innan þing­flokks Venstre í Danmörku. Áhrifa­maður í þing­flokknum krefst afsagnar vara­for­manns flokks­ins og flokks­for­mað­ur­inn Lars Løkke Rasmus­sen mætir and­byr. Á for­mann­inum er hins­vegar ekk­ert far­ar­snið.

Mörgum sem fylgj­ast með dönskum stjórn­málum er í fersku minni „bylt­ing­ar­til­raunin“ á flokks­þingi Venstre árið 2014. Aðal­per­sónur þeirrar orustu voru þeir Lars Løkke Rasmus­sen og Kristian Jensen, sem þá eins og nú gegna for­mennsku og vara­for­mennsku í flokknum.

Venstre var á þessum tíma í stjórn­ar­and­stöðu, stjórn Helle Thorning-Schmidt for­manns flokks Jafn­að­ar­manna tók við stjórn­ar­taumunum eftir kosn­ingar árið 2011. Venstre hafði þá setið óslitið í stjórn frá árinu 2001, síð­ustu tvö árin undir stjórn Lars Løkke Rasmus­sen.

[adspot]„Bylt­ing­ar­til­raunin“ átti sér langan aðdrag­anda. Haustið 2013 var Lars Løkke dögum saman helsta umfjöll­un­ar­efni danskra fjöl­miðla. Ástæðan var að sam­tök sem styðja við efna­hags­upp­bygg­ingu í fátækum löndum, og Lars Løkke var í for­mennsku fyrir, höfðu borgað flug­miða og hót­elgist­ingu fyrir dóttur hans sem hafði ferð­ast með föður sínum. Í tengslum við þetta mál hélt Lars Løkke lengsta frétta­manna­fund í sögu Dan­merkur. Fund­ur­inn, sem var sendur beint í sjón­varpi og útvarpi, stóð í þrjár og hálfa klukku­stund en frétta­menn og aðrir sem fylgd­ust með voru litlu nær.

Nærbuxnamálið

Skömmu eftir áður­nefndan frétta­manna­fund kom upp mál sem mikið var fjallað um í dönskum fjöl­miðlum og sumir köll­uðu „nær­buxna­málið“. Þá varð upp­víst að Venstre (sem þrátt fyrir nafnið er hægri miðju­flokkur) hefði borgað „allt frá hatti oní skó“, þar á meðal nær­buxur fyrir for­mann­inn. Dag­blöðin gerðu stólpa­grín að þessu máli og sögðu að oft liti Lars Løkke frekar út fyrir að hafa fengið lánuð jakka­föt af afa sínum en vera í splunku­nýju jakka­setti úr dýr­ustu verslun lands­ins. Í kjöl­far þess­ara mála dvín­uðu vin­sældir Lars Løkke og hann, sem hafði verið vin­sæl­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur, var skyndi­lega orð­inn sá óvin­sæl­asti, og það stytt­ist í kosn­ingar.

Byltingartilraunin í Óðinsvéum

3. júní 2014 hélt mið­stjórn Venstre fund í Ráð­stefnu­höll­inni í Óðins­véum. And­stæð­ingar Lars Løkke hugð­ust nota þetta tæki­færi og velta honum úr sessi og gera vara­for­mann­inn Kristian Jensen að for­manni. Lars Løkke sagði síðar frá því að hann hafi verið þess full­viss að for­mann­s­tíð sinni lyki á þessum fundi. Litlir kær­leikar voru með honum og Kristian Jensen vara­for­manni og Lars Løkke mátti ekki til þess hugsa að sjá hann í for­manns­stólnum. Ef til kæmi ætl­aði Lars Løkke að tefla fram Søren Gade fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra, hann hafði látið af þing­mennsku árið 2010.

[adspot]Áður en að for­manns­kosn­ingu kom var gert hlé og þeir Kristian Jensen og Lars Løkke, ásamt Lars Krarup, áhrifa­manni í flokknum rædd­ust við drjúga stund í kjall­ara­her­bergi í Ráð­stefnu­höll­inni. Enginn, utan þeirra þriggja veit hvað þar fór fram, en að loknum kjall­ara­fund­inum lýsti Kristian Jensen yfir stuðn­ingi við Lars Løkke til áfram­hald­andi for­mennsku. Þetta kom mörgum á óvart og Ekstra Blaðið sagði að Kristian Jensen hefði verið með lyga­merki á putt­unum. Þannig lauk bylt­ing­ar­til­raun­inni, Kristian Jensen var áfram vara­for­maður.

Løkkesstjórnin 2015 - 2019

Eftir þing­kosn­ing­arnar 2015 tók minni­hluta­stjórn Venstre við völdum og sat út kjör­tíma­bilið. Lars Løkke varð for­sæt­is­ráð­herra og Kristian Jensen fyrst utan­rík­is­ráð­herra og síðar fjár­mála­ráð­herra. Í upp­hafi var Venstre einn í stjórn­inni, en síðar gengu tveir minni flokkar til liðs við stjórn­ina, sem þó var áfram minni­hluta­stjórn. Á þessum árum var mik­ill upp­gangur í dönsku efna­hags­lífi en stjórnin var með „aft­ur­sæt­is­bíl­stjóra“ sem miklu réði.

Þetta var Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, sem eftir kosn­ing­arnar 2015 varð næst fjöl­menn­astur á þingi, stærri en Venstre, en vildi ekki eiga aðild að rík­is­stjórn. Í kosn­ing­unum 2019 galt Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn afhroð og þótt Venstre héldi fylgi sínu, og bætti raunar lít­il­lega við sig, féll rík­is­stjórnin. Í aðdrag­anda kosn­ing­anna sagði Lars Løkke eitt­hvað á þá leið að kannski væri kom­inn tími til að hugsa dönsk stjórn­mál uppá nýtt. Til dæmis hvort hægt væri að mynda stjórn yfir miðj­una, eins og hann komst að orði. Hann gæti vel hugsað sér að kanna þann mögu­leika hvort Venstre og Jafn­að­ar­menn gætu staðið saman að rík­is­stjórn. Þetta vakti tak­mark­aða hrifn­ingu margra flokks­manna Venstre og Mette Frederik­sen leið­togi Jafn­að­ar­manna og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra vís­aði slíkum hug­myndum á bug.

Ólgan innan Venstre

Eftir kosn­ing­arnar sl. vor (2019) fannst ýmsum innan Venstre nauð­syn­legt að líta í eigin barm, meta stöðu og fram­tíð­ar­stefnu flokks­ins. Þegar upp­víst varð að flokks­for­mað­ur­inn Lars Løkke hefði gefið í skyn að hann gæti ef til vill hugsað sér starf hjá Evr­ópu­sam­band­inu mátu sumir flokks­menn það svo að kannski væri hans for­manns­tími brátt lið­inn. Þótt ekk­ert yrði úr þessum Evr­ópu­draumi Lars Løkke, eins og sumir danskir fjöl­miðlar komust að orði, varð þetta til þess að raddir um breyt­ingar urðu nú hávær­ari.

Síð­ast­lið­inn mánu­dag (5. ágúst) fór fram þing­flokks­fundur hjá Venstre. Fund­ar­efnið var kosn­ing í stjórn þing­flokks­ins. Lars Løkke lagði mikla áherslu á að Inger Støjberg fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála fengi sæti í stjórn­inni, en henni var hafnað í kosn­ingu sem fram fór á fund­inum. Þessi nið­ur­staða og ýmis­legt fleira varð til þess að opin­bera þann klofn­ing sem upp er kom­inn í flokknum. Ekki varð við­tal dag­blaðs­ins Berl­ingske við vara­for­mann­inn Kristian Jensen, tveim dögum eftir þing­flokks­fund­inn, til að bæta úr skák. Þar vís­aði hann hug­myndum flokks­for­manns­ins um hugs­an­lega stjórn með Jafn­að­ar­mönnum á bug og sagði þessa yfir­lýs­ingu hafa komið sér á óvart. Í við­tal­inu, sem vakti mikla athygli, sagði Kristian Jensen margt um flokk­starfið, mis­tök sem gerð hefðu verið og hvert bæri að stefna. [adspot]Stjórn­mála­skýrendur segja við­talið lítt dul­búna gagn­rýni á flokks­for­mann­inn Lars Løkke.

Fyrir tveim dögum var hald­inn annar þing­flokks­fundur hjá Venstre, svo­kallað sommermøde. Löng hefð er fyrir slíkum fundum þar sem línur flokks­ins varð­andi þing­störfin á kom­andi þingi eru lagðar. Af fregnum að dæma ríkti ekki sátt og sam­lyndi á þessum fundi. Claus Hjort Frederik­sen, fyrr­ver­andi ráð­herra og einn helsti áhrifa­maður flokks­ins, sagði þar berum orðum að Kristian Jensen ætti að segja af sér sem vara­for­maður. Það gengi ekki að vara­for­maður flokks­ins tal­aði með þessum hætti gegn for­mann­inum. Kristian Jensen dró ekki yfir­lýs­ingar sínar til baka en sagði að kannski hefði hann átt að ræða þetta á flokks­fundum en ekki í blaða­við­tali. Og lýsti yfir stuðn­ingi við Lars Løkke sem flokks­for­mann.

Stjórn­mála­skýrendur dönsku fjöl­miðl­anna segja Kristian Jensen hafa verið nið­ur­lægðan á fund­inum. Hann eigi hins­vegar marga stuðn­ings­menn og margir innan Venstre telji að sá klofn­ingur sem greini­lega sé uppi innan flokks­ins eigi ein­ungis eftir að aukast.

Venstre flokk­ur­inn sé nú í miklum vanda, klof­inn í herðar niður (orða­lag Berl­ingske) og lík­legt megi telja að nú fari í hönd upp­gjörs­tíma­bil í flokknum. Hluti af lausinni hljóti að fel­ast í að skipta um „karl­inn í brúnni“. Lars Løkke hefur hins­vegar ekki sýnt á sér neitt far­ar­snið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár