„Ólíðandi að bjóða lýðræðinu upp á þetta“

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sleit þing­fundi í morgun og tók út af dag­skrá öll þau mál sem fjalla átti um í dag eftir gagn­rýni frá þing­manni Pírata.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pirata.
Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pirata. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, gagn­rýndi þing­for­seta, Stein­grím J. Sig­fús­son, í pontu á Alþingi í upp­hafi þing­fundar í dag fyrir að halda dag­skrá þings­ins áfram þrátt fyrir sam­komu­bann.

„Nú segja lög í land­inu skýrt að það sé lög­bundin skylda hvers ein­asta ein­stak­lings – með leyfi for­seta – að gera sér allt far um að sýkja hvorki sjálfan sig né aðra að svo miklu leyti sem fram­kvæm­an­legt er. Það er komin stefna hér innan alþingis að það megi ekki vera nema 20 þing­menn á þess­ari efri deild hérna,“ sagði Jón Þór.

Þing­mað­ur­inn taldi síðan 26 mann­eskjur í kringum sig, „og það eru bara þeir sem ég sé“.

Karpað við þingforseta í allan gærdag

„Þetta er vegna þess að við þurfum að koma hingað og benda þing­for­seta á að hann er ekki að fara í sam­ræmi við það sem búið er að gefa yfir­lýs­ingar um í sam­fé­lag­inu um að virða þetta sam­komu­bann. Það var karpað við hæst­virtan for­seta í allan gær­dag í gegnum tölvu­pósta og hann veit það að ef hann sé að fara að setja mál á dag­skrá sem ágrein­ingur er um að þá að sjálf­sögðu mætum við þing­menn hér og virðum lýð­ræðið,“ sagði Jón Þór.

Samt héldi þing­for­seti þessu til streitu. „Að halda þing­fund­inn svona og halda dag­skránni svona, en hann hefur dag­skrár­valdið. Þetta er ólíð­andi að bjóða starfs­fólki Alþingis upp á þetta sem er komið í enn meiri sýk­ing­ar­hættu vegna þessa. Það er ólíð­andi að bjóða þing­inu upp á þetta, það er ólíð­andi að bjóða lýð­ræð­inu upp á þetta. Forseti þarf að afmá þessa dag­skrá sem ágrein­ingur er um og virða sótt­varna­lög.“

Sleit fundinum um hæl

Stein­grímur svar­aði og sagði að út af dag­skrá yrðu tekin fyrsta til og með níunda dag­skrár­málið. „Fleira liggur þá ekki fyrir á þessum fundi. Til næsta fundar verður boðað með dag­skrá. Fundinum er slitið,“ sagði þing­for­seti og sleit fund­inum.

Óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir til ráð­herra voru á dag­skrá við upp­haf þing­fundar í morgun. Þá áttu að vera til svara for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra, félags- og barna­mála­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra.

Ekki liggur ljóst fyrir hvenær næsti þing­fundur verður settur á dag­skrá.

Staðan grafalvarleg

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að þing­for­seti hafi slökkt á þing­inu.

„Und­an­farnar vikur hafa þing­menn verið hvattir til þess að vera sem minnst á þingi og í þing­sal. Ein­hverjir þing­menn eru í sótt­kví og geta því ekki komið í þing­húsið. Staðan hefur óneit­an­lega áhrif á getu okkar til að taka þátt í lýð­ræð­is­legum umræðum. Hingað til hefur þetta sloppið því það hefur verið sam­eig­in­legur skiln­ingur þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar að fyrir utan fasta liði eins og óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir og störf þings­ins verða ein­ungis til umræðu og afgreiðslu brýn mál sem tengj­ast kóvid,“ skrifar hún.

Hún segir að nú horfi þing­menn fram á það að þrátt fyrir að aðstæður hafi ekki breyst varð­andi getu þing­manna til að taka þátt í umræðum og þrátt fyrir mót­mæli meiri­hluta stjórn­ar­and­stöð­unnar hafi for­seti sett á dag­skrá hrúgu af rík­is­stjórn­ar­málum sem ekki séu brýn COVID-mál og eitt­hvað af þeim séu umdeild mál.

„Staðan er grafal­var­leg þegar for­seti mis­notar aðstæður til að koma málum rík­is­stjórn­ar­innar í gegn. Málum sem eru umdeild og þarfn­ast aug­ljós­lega umræðu. Þetta gerir hann með þöglu sam­þykki rík­is­stjórn­ar­innar og þegar við tölum um það í fund­ar­stjórn for­seta þá slekkur for­seti á þing­inu,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár