Skora á landbúnaðarráðherra að auka grænmetisræktun á Íslandi

Samkaup hefur sent Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra sér­staka áskorun um að auka græn­met­is­ræktun á Íslandi.

Samkaup sendi Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni land­bún­að­ar­ráð­herra sér­staka áskorun um að auka græn­met­is­ræktun á Íslandi í gær. Í bréfi til ráð­herra er hvatt til þess að í boð­uðum aðgerðum stjórn­valda til þess að hamla gegn efna­hag­skreppu verði sér­stak­lega ýtt undir inn­lenda græn­met­is­fram­leiðslu með opin­berum ráð­stöf­unum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Í bréf­inu segir að fram­leiðsla á græn­meti á heims­vísu kunni að drag­ast saman þar sem fram­leið­endur ytra eigi erfitt með að starf­rækja fyr­ir­tæki sín á fullum afköstum. Nú þegar séu tafir á flun­ings­leiðum farnar að hafa mikil áhrif á fram­boð auk þess sem miklar verð­hækk­anir eru í kort­unum. Því skipti mestu að hægt verði að tryggja aukna fram­leiðslu inn­an­lands.

Þá kemur enn fremur fram í bréfi Samkaupa að stjórn­völd geti hvatt til þess að inn­lend græn­met­is­fram­leiðsla verði aukin og fylgt því eftir með hag­rænum hvötum og stuðn­ings­að­gerðum. „Þær ein­stöku aðstæður sem við er að glíma um þessar mundir kalla á að gripið sé til fram­leiðslu­hvetj­andi aðgerða eins og til að mynda nið­ur­greiðslna á raf­orku­verði til græn­met­is­bænda, auk­inna bein­greiðslna eða sölu­trygg­ingar af ein­hverju tagi. Samkaup beina því til ráð­herra að stjórn­völd og aðrir opin­berir aðilar geri sitt til þess að inn­lendir fram­leið­endur geti sem best annað spurn eftir græn­meti á Íslandi,“ segir í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár