ÁTVR hætt við að áfrýja niðurstöðu í máli gegn vefverslunum vegna afstöðu ráðherra

Hér­aðs­dómur vís­aði fyrr í mán­uð­inum frá máli ÁTVR gegn tveimur vef­versl­unum sem selja áfengi en stofn­unin sagð­ist ætla að áfrýja. Tveir ráð­herrar sögðu í kjöl­farið að breyta þyrfti fyr­ir­komu­lagi áfeng­is­sölu á Íslandi.

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR) hefur ákveðið að áfrýja ekki nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms Reykja­víkur um frá­vísun mála gegn tveimur vef­versl­unum sem höfðuð voru í þeim til­gangi að stöðva sölu áfengis í gegnum þær inn­an­lands.

Í til­kynn­ingu á vef ÁTVR segir að stofn­unin telji að slík vef­verslun sam­rým­ist ekki lögum, gangi gegn einka­leyfi ÁTVR og sé í beinni and­stöðu við gild­andi áfengis- og lýð­heilsu­stefnu. Hér­aðs­dómur vís­aði hins vegar öllum kröfum ÁTVR í mála­rekstr­inum frá. Í ljósi þess að bæði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem fer með mál­efni laga um verslun með áfengi og tóbak, og Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra, sem fer með áfeng­is­lögin, hafi lýst því yfir að þeir telji nauð­syn­legt að end­ur­skoða og skýra lög og reglu­verk um smá­sölu áfengis hafi ÁTVR „ákveðið að una nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í trausti þess að lög­gjaf­inn og eft­ir­lits­að­ilar taki á mál­inu.“

Töldu brotið á einkarétti sínum

Kjarninn greindi frá nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í mál­unum tveimur, sem höfðuð voru gegn vef­versl­un­unum Sante og Bjór­landi, þann 18. mars síð­ast­lið­inn.

ÁTVR, sem er rík­is­fyr­ir­tæki en heyrir samt sem áður ekki undir sér­staka stjórn, taldi að fyr­ir­tækin hafi brotið gegn áfeng­is­lögum með starf­semi sinni og brotið á einka­rétti sínum til smá­sölu á áfengi. Rík­is­fyr­ir­tækið vildi að Sante og Bjór­land myndu láta af við­skiptum með áfengi og að bóta­skylda fyr­ir­tækj­anna gagn­vart sér yrði við­ur­kennd.

[adspot]Sante og Bjór­land fóru bæði fram á að málum gegn sér yrði vísað frá dómi meðal ann­ars á þeim grund­velli að ÁTVR ætti ekki lögvarða hags­muni af úrlausn þess. Þá töldu lög­menn þeirra að grein­ar­gerð ÁTVR hefði ekki upp­fyllt kröfur rétt­ar­farslaga um skýr­leika. Auk þess hafði ÁTVR ekki sýnt fram á tengsl meintrar hátt­semi stefndu fyr­ir­tækj­anna tveggja við „ætlað skaða­verk eða leitt nokkrar líkur að tjóni sín­u.“

Ekki hlut­verk ÁTVR að hafa eft­ir­lit með einka­rétti

Í nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í mál­unum tveimur kom fram sam­hljóma nið­ur­staða. Þar var tekið undir sjón­ar­mið Sante og Bjór­lands um að ÁTVR hafi ekk­ert með svona mála­rekstur að gera.

Lög feli ÁTVR það mark­mið að vinna gegn mis­notkun áfengis og tak­marka í því skyni aðgengi að og fram­boð á áfengi. „En þó að stefn­anda sé að lögum fal­inn einka­réttur eða einka­leyfi til smá­sölu á áfengi telst það ekki meðal verk­efna hans að við­halda einka­rétt­inum eða vernda hann með mál­sóknum fyrir dóm­stól­um. Allt eft­ir­lit sam­kvæmt lögum er falið öðrum stjórn­völd­um. Lög­gjaf­inn hefur þannig ákveðið í hvaða far­veg brot gegn einka­rétti stefn­anda eigi að fara og sú eft­ir­fylgni eða eft­ir­lit er ekki í höndum stefn­anda.“

ÁTVR sýndi ekki fram á tjón

Varð­andi við­ur­kenn­ingu á skaða­bóta­kröfu þá komst dóm­ur­inn að þeirri nið­ur­stöðu að ÁTVR hafi ekki í mála­til­bún­aði sínum „freistað þess að upp­lýsa nánar eða leggja fram gögn um það tjón sem hann kveðst hafa orðið fyrir vegna hátt­semi stefnda […] Að mati dóms­ins skorti því veru­lega á að full­nægt sé þeim skil­yrðum sem gerð eru til sönn­unar á til­vist tjóns í málum sem höfðuð eru til við­ur­kenn­ingar á bóta­skyld­u“.

[adspot]Til við­bótar tók dóm­ur­inn fram að sam­kvæmt lögum um starf­semi ÁTVR eigi hún að vera sem hag­kvæmust og afla tekna sem nægi til að greiða rekstr­ar­kostn­aði og skila hæfi­legum arði til rík­is­sjóðs. „Fjár­mögnun stofn­un­ar­innar er þannig á grund­velli almennrar tekju­öfl­unar og arð­ur­inn er íslenska rík­is­ins, en ekki stefn­anda. Er því ekki unnt að líta svo á að stefn­andi, sem er rík­is­stofn­un, hafi af því fjár­hags­lega hags­muni að við­halda einka­rétti á sölu áfengis í smá­sölu enda er það lög­gjafans að ákveða fyr­ir­komu­lag á sölu áfengis í smá­sölu í land­in­u.“

Að end­ingu sagði í dómunum að ann­markar og van­kantar á mála­til­bún­aði ÁTVR hafi leitt, „hver og einn og allir í senn, til þess að óhjá­kvæmi­legt er að vísa máli þessu frá í heild sinni frá dómi“.

ÁTVR var gert að greiða Arn­ari Sig­urðs­syni, Sante ehf. og Sante SAS sam­tals 1.650 þús­und krónur í máls­kostnað og Bjór­landi 950 þús­und krón­ur.

Tveir ráðherrar stigu inn

Upp­haf­lega til­kynnti ÁTVR að stofn­unin ætl­aði að áfrýja nið­ur­stöð­unni. Bjarni Bene­dikts­son, sem stýrir því ráðu­neyti sem ÁTVR heyrir undir, sagði hins vegar 22. mars síð­ast­lið­inn að hann sæi ekki ástæðu til að áfrýja nið­ur­stöð­unni og að honum þætti „þetta ágæt­lega rök­studd­ur dóm­ur.“

Hann teldi að vef­versl­un með áfengi væri að breyta leik­regl­un­um og að nú­ver­andi áfeng­is­lög hefðu ekki að öllu leyti verið smíðuð með hlið­sjón af þeim veru­leika. „Í mín­um huga er þetta þó nokkuð skýrt, þ.e. að það væri mjög ein­kenni­legt að líta þannig á að vef­versl­un inn­an EES væri heim­il en vef­versl­un inn­lendra aðila væri sér­stakt vanda­mál.“ Tímabært væri að heim­ila vef­verslun með áfengi.

Daginn eftir sagði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra við RÚV að núver­andi fyr­ir­komu­lag áfeng­is­sölu í land­inu væri komið að þol­mörkum. Hann ynni að frum­varpi um breyt­ingu á áfeng­is­lögum þar sem erfitt væri að við­halda ein­okun ÁTVR á sölu áfengis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár