Segir óbreytt ASÍ ekkert nema uppvakning sem þurfi að „kveða í gröfina“

Sólveig Anna Jóns­dóttir segir verk að vinna í bar­átt­unni við auð­stétt­ina og sér­hags­muna­öflin. Eina vopnið sem geti leitt til árang­urs séu verk­föll eða hótun um beit­ingu þeirra. Hún vill að verka­lýðs­hreyf­ingin nýti líf­eyr­is­sjóð­ina í þágu sinna mark­miða.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að ef Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) ætli sér ekki að móta stefnu sína ekki út frá skoð­unum og veru­leika félags­manna í aðild­ar­fé­lögum sam­bands­ins „heldur útfrá veru­leikafirrtum hug­myndum mennt­aðrar milli­stéttar sem komið hefur sér fyrir í ráðu­neytum, hjá hags­muna­sam­tökum hálaun­aðra rík­is­starfs­manna og í sam­tökum atvinnu­rek­enda þá er sam­bandið ekk­ert nema upp­vakn­ingur sem við skulum öll taka höndum saman um að kveða í gröf­ina.“

Þetta kemur fram í fjórðu og síð­ustu grein Sól­veigar Önnu um átökin innan ASÍ sem birt­ist á Kjarn­anum í morgun.

Hún telur ein­ungis tvær leiðir séu færar fyrir ASÍ sem stendur. Önnur sé að horfast í augu við þá breyttu stöðu sem upp sé komin í íslenskri verka­lýðs­bar­áttu með til­komu nýrra afla inn í hana, laga sig að þeirri stöðu og breyta um kúrs. „Takist ASÍ ekki að breyta um kúrs er aðeins ein önnur leið fær: Hún er sú að þau félög sem vilja starfa í verka­lýðs­hreyf­ingu sem er raun­veru­legt fram­fara- og mót­stöðu­afl skilji sig frá sam­band­inu.“

Verkföll eina vopnið sem getur leitt til árangurs

Sólveig Anna segir að ASÍ þurfi að fara í djúpa og alvar­lega vinnu við að end­ur­meta stefnu sína.

[adspot]Í grein­inni leggur hún til að í þeirri vinnu verði við­ur­kennt að verk­efni íslenskrar verka­lýðs­hreyf­ingar sé ekki lokið. „Þvert á móti er raun­veru­legt og stórt verk að vinna í bar­áttu við auð­stétt­ina og sér­hags­muna­öflin. Skylda sam­bands­ins er að þróa og leiða þetta verk­efni, og vera óhrætt við að skora á hólm þær ýmsu stofn­anir valds­ins sem standa vörð um óbreytt ástand, sama hvort það eru líf­eyr­is­sjóðir, fjár­mála­kerfið, Samtök atvinnu­lífs­ins eða rík­is­stjórnin. Þá þarf Alþýðu­sam­bandið að við­ur­kenna fyrir sjálfu sér að eina vopnið sem getur leitt til árang­urs í verka­lýðs­bar­áttu eru verk­föll eða trú­verðug hótun um beit­ingu þeirra.“

Mögulega sé allt of margt fólk undir einum hatti

Sólveig Anna segir að ef ASÍ tak­ist ekki að breyta um kúrs sé óum­flýj­an­legt að þau félög sem vilji starfa í verka­lýðs­hreyf­ingu sem er raun­veru­legt fram­fara- og mót­stöðu­afl skilji sig frá sam­band­inu. Þar á hún meðal ann­ars við tvö stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins, VR og Eflingu.

[links]ASÍ er í dag eina lands­sam­band launa­fólks á almennum vinnu­mark­aði, með um 130 þús­und félags­menn. Sólveig Anna segir að hugs­an­lega sé þetta alltof margt félags­fólk undir einum hatti, sér­stak­lega ef horft sé til sam­an­burðar við opin­beru félögin og lands­sam­bönd þeirra. „Opin­berir starfs­menn deil­ast niður á þrjú félög (KÍ, BSRB og BHM) sem eru hvert um sig með á bil­inu 10-24 þús­und félags­menn. Slíkur fjöldi er miklu við­ráð­an­legri, og þetta fyr­ir­komu­lag hefur hvorki hamlað opin­beru félög­unum frá því að eiga í sam­starfi sín á milli né við Alþýðu­sam­bandið eða aðra aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Tvö eða fleiri heild­ar­sam­tök á almenna vinnu­mark­aðnum gætu auð­veld­lega starfað hlið við hlið og sam­eig­in­lega í þeim málum þar sem sam­komu­lag næð­ist um slíkt.“

Mörgum þyki vænt um nafn og sögu Alþýðu­sam­bands Íslands, sem sé skilj­an­legt að mati Sól­veigar Önnu, en á hinn bóg­inn geti það ber­sýni­lega ekki gengið að sam­bandið aftri eðli­legri fram­þróun og nauð­syn­legum breyt­ingum í hags­muna­bar­áttu félags­fólks. „Það þarf að nálg­ast hlut­ina með opnum hug og kasta af sér fjötrum íhalds­semi og for­tíð­ar­dýrk­unar.“

Verkalýðshreyfingin á að nýta lífeyrissjóðina í þágu sinna markmiða

Það að leiða íslenskt verka­fólk í bar­áttu fyrir betra þjóð­fé­lagi krefj­ist þess ekki endi­lega að öll verka­lýðs­hreyf­ingin sé sam­mála um loka­mark­mið bar­átt­unnar. „Á tutt­ug­ustu öld náðu verka­lýðs­hreyf­ingar um heim allan oft miklum árangri með sam­vinnu sós­í­alde­mókrata og komm­ún­ista, sem voru á köflum ósam­mála um lang­tíma­mark­mið en gátu engu að síður starfað vel og náið saman um brýnni skamm­tíma­mark­mið. Ekkert segir að þetta sé ekki hægt, en hins vegar ljóst að hinir betur settu hópar innan ASÍ og ann­arra lands­sam­banda þurfa að láta af hug­myndum um fast­setn­ingu kjara­bils á milli verka­lýðs­stéttar og milli­stéttar, sem birt­ist bæði í Salek-hug­mynda­fræð­inni og í stefn­unni um pró­sentu­hækk­anir launa.“

Þá telur Sólveig Anna að það þurfi að láta af kreddu­bund­inni varð­stöðu um líf­eyr­is­sjóða­kerfið, sem sé löngu orðin að kvöð og byrði á verka­lýðs­hreyf­ing­unni. „Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru tæki sem verka­lýðs­hreyf­ingin sjálf lét á sínum tíma smíða. Hreyf­ingin á að nýta sjóð­ina í þágu sinna mark­miða, hvort sem það er í hús­næð­is­málum, varð­andi sam­fé­lags­á­byrgð fyr­ir­tækja eða jafn­að­ar­stefnu í launum innan fyr­ir­tækja, en ekki láta sér­fræð­inga­veldi sjóð­anna eða rödd atvinnu­rek­enda í stjórnum sjóð­anna segja sér fyrir verkum. Þegar þessum kreddum hefur verið hent á rusla­hauga sög­unnar ættu okkur að vera fleiri leiðir færar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár