Ísland eftirbátur Norðurlandaþjóða í réttindum barna til dagvistunnar

Það er mat BSRB að núver­andi skipan dag­vist­un­ar­mála hér­lendis standi í veg fyrir jöfnum mögu­leikum kynj­anna til þátt­töku á vinnu­mark­aði þar sem ábyrgð á umönnun barna lendi að mestu leyti á mæð­rum.

Samkvæmt nýút­gef­inni skýrslu BSRB eru rétt­indi íslenskra barna til dag­vist­unar við lok fæð­ing­ar­or­lofs skert miðað við á öðrum Norð­ur­landa­þjóðum. Er það mat BSRB að núver­andi skipan dag­vist­un­ar­mála standi í veg fyrir jöfnum mögu­leikum kynj­anna til þátt­töku á vinnu­mark­aði þar sem ábyrgð á umönnun barna lendi að mestu leyti á mæðrum.

Ekki er kveðið á um í íslenskum lögum við hvaða aldur börn eigi rétt á dag­vistun eftir lok fæð­ing­ar­or­lofs. Þessu er öfugt farið á hinum Norð­ur­lönd­unum, en þar standa opin­ber dag­vist­un­ar­úr­ræði til boða stax að loknu orlofi.

Á Íslandi eru leik­skólar eina dag­vist­un­ar­úr­ræðið á vegum hins opin­bera fram að sex ára aldri, en ekki er kveðið á um við hvaða aldur börn eigi rétt á inn­töku í leik­skóla. Því er sveita­fé­lög­unum í sjálfs­vald sett að ákveða þann aldur sem stuðn­ingur við for­eldra hefst. Í flestum sveit­ar­fé­lögum er inn­töku­aldur barna í leik­skóla 12 mán­uðir en vegna skorts á leik­skóla­plássi eru íslensk börn að með­al­tali 20 mán­aða gömul við inn­tökum, 11 mán­uðum eftir að fæð­ing­ar­or­lofi þeirra lýkur.

Umönnun barna milli loka fæð­ing­ar­or­lofs og inn­töku í leik­skóla hefur að mestu leyti verið í höndum ætt­ingja og dag­for­eldra sem sveit­ar­fé­lögum ber engin skylda til þess að nið­ur­greiða. Líkt og með leik­skóla­pláss er að með­al­tali 3-6 mán­aða bið eftir dag­vistun þar sem algengt er að dag­for­eldrar anni ekki eft­ir­spurn.

Af skýrsl­unni má lesa að bilið milli loka fæð­ing­ar­or­lofs og dag­vist­unar, sem kallað er umönn­un­ar­bil, auki ójafna stöðu karla og kvenna á vinnu­mark­aði. Þar sem umönn­un­ar­bilið er að mestu leyti brúað af mæðrum eykst munur milli for­eldra á fjar­veru frá vinnu. Að bil­inu með­töldu má gera ráð fyrir því að mæður séu fjórum sinnum lengur frá vinnu vegna barns­eigna en feður. Í ljósi þessa leggur BSRB áherslu á að breyta núver­andi fyr­ir­komu­lagi „til að upp­ræta kynja­mis­rétti”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár