Barir fá að opna á ný 25. maí og sundlaugar verða á hálfum afköstum í fyrstu

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir til­kynnti á upp­lýs­inga­fundi í dag að hann ætl­aði að leggja til við heil­brigð­is­ráð­herra að vín­veit­inga­staðir fengju að opna á ný 25. maí. Hann mun einnig leggja til að sam­komu­bann verði rýmkað í 200 manns, úr 50 nú.

Þórólfur Guðnason á upplýsingafundinum í dag.
Þórólfur Guðnason á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir ætlar að leggja til við heil­brigð­is­ráð­herra að barir og aðrir staðir með vín­veit­inga­leyfi og hafa þurft að vera lok­aðir und­an­farnar vikur, fái að hefja rekstur á ný 25. maí og megi hafa opið til kl. 23 á kvöldin.

Þetta kom fram í máli Þórólfs á upp­lýs­inga­fundi í dag, en einnig sagð­ist hann ætla að leggja til við ráð­herra að fjölda­tak­mark­anir yrðu rýmkaðar upp í 200 manns í næsta skrefi aflétt­inga, þann 25. maí. Í dag mega í mesta lagi 50 manns koma saman á sama stað.

Á börum og krám mun þurfa að virða tveggja metra regl­una eins og kostur er, rétt eins og þarf í dag á veit­inga­stöðum og ann­ars staðar. Hið sama mun þurfa að gera í lík­ams­rækt­ar­stöðvum og sund­laugum, þegar almenn­ingur fer að flykkj­ast á slíka staði á nýjan leik.

Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar á helmingsafköstum til að byrja með

Á fund­inum í dag fór Þórólfur yfir það fyr­ir­komu­lag sem áætlað er að verði í sund­laugum lands­ins og lík­ams­rækt­ar­stöðvum þegar þeim verður gefið grænt ljós á að bjóða gesti vel­komna á nýjan leik.

Þórólfur sagð­ist ætla að leggja það til við ráð­herra að heild­ar­fjöldi gesta á hverjum tíma færi ekki yfir helm­ing­inn af leyfi­legum fjölda í sund­laugum og lík­ams­rækt­ar­stöðvum sam­kvæmt starfs­leyfum þeirra.

Hann sagði að mögu­lega yrði hægt að auka leyfi­legan fjölda gesta í skrefum fram til 15. júní. Á þeim tíma­punkti yrði von­andi hægt, ef far­ald­ur­inn yrði áfram í lág­marki, að leyfa hámarks­fjölda gesta á þessum stöðum.

Sund­laug­arnar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar verða þannig, sam­kvæmt orðum Þórólfs, á 50 pró­sent afköstum fyrst um sinn, ef heil­brigð­is­ráð­herra felst á til­lögur hans.

Yfirgnæfandi líkur á að neikvætt próf sé í raun neikvætt

Þórólfur var spurður út í þær fyr­ir­ætl­anir sem stjórn­völd kynntu í gær, að opna landa­mæri Íslands 15. júní og bjóða þeim ferða­mönnum sem vilja koma til lands­ins upp á veiru­skimun.

Hann var spurður hvort ekki væri hætta á að falskt öryggi feng­ist með þeim prófum sem stjórn­völd áætla, þar sem hætta væri á að fólk fengi rangt nei­kvætt sýni við kom­una til lands­ins.

Þórólfur ját­aði því að svo væri og það hefði alltaf verið áhættan með þessi próf, að fólk væri akkúrat á þeim stað í með­göngu­tíma veirunnar þar sem það væri ekki komið með ein­kenni og fengi nei­kvæða nið­ur­stöðu úr sýna­töku.

Hann sagði þó að lík­urnar á því að fólk yrði akkúrat í þeim „glugga“ við kom­una til lands­ins væru mjög litlar og áhættan því „algjör­lega í lág­marki“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár