Björgólfur lætur af störfum sem forstjóri Samherja

Björgólfur Jóhanns­son lætur af störfum for­stjóra Samherja hf. og verður Þor­steinn Már Bald­vins­son nú einn for­stjóri félags­ins.

Björgólfur Jóhanns­son lætur af störfum for­stjóra Samherja hf. Þetta kemur fram á vef Samherja í dag. Björgólfur hefur gegnt starf­inu einn frá nóv­em­ber 2019 en frá mars síð­ast­liðnum sam­hliða Þor­steini Má Bald­vins­syni. Þor­steinn Már verður nú á ný eini for­stjóri félags­ins, að því er fram kemur hjá Samherja.

Samkvæmt Samherja hefur Björgólfur verið kjör­inn for­maður hlít­ing­ar­nefndar Samherja en sú „nefnd hefur yfir­um­sjón með reglu­vörslu og stjórn­ar­háttum innan sam­stæðu Samherja. Mun hann stjórna skrán­ingu og form­legri inn­leið­ingu slíkra reglna ásamt öðrum ráð­gjafa­störfum fyrir Samherja eftir því sem til­efni verður til.“

Þann 12. nóv­em­ber 2019 birt­ist umfjöllun Kveiks, Stund­­­­­ar­inn­­­­­ar, Al Jazeera og Wiki­leaks um mút­­­­u­greiðsl­­­­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­­­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­­­­þús­undum gagna og upp­­­­­­­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­­­­son­­­­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­­­­manns Sam­herja í Namib­­­­­íu.

Tveimur dögum síðar til­kynnti Sam­herji að Þor­steinn Már, sem er aðal­eig­andi Sam­herja ásamt frænda sínum Krist­jáni Vil­helms­syni og fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni Helgu S. Guð­munds­dótt­ur, hefði stigið tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri og að Björgólfur tæki við, sömu­leiðis tíma­bund­ið.

Í til­kynn­ing­unni var haft eftir Eiríki S. Jóhann­essyni, stjórn­­­ar­­for­­manni Sam­herja, að þetta skref væri stigið til að tryggja sem best hlut­­leysi rann­­sókn­­ar­ norsku lög­manns­stof­unnar Wik­borg Rein á ætl­uðum brotum Sam­herja. „Við viljum stunda heið­­ar­­leg við­­skipti og leggjum okkur fram um að starfa í sam­ræmi við gild­andi lög og regl­­ur.“

Reiknaði ekki með því að sitja í forstjórastólnum lengi

Daginn sem Björgólfur tók við starfi for­stjóra Samherja var til­kynnt að hann myndi tíma­bundið láta af störfum sem stjórn­ar­for­maður og stjórn­ar­maður hjá Íslands­stofu og sagði hann í kjöl­farið að hann reikn­aði ekki með því að sitja í for­stjóra­stólnum lengi. „Verk­efnið er skýrt og ég vona að málin leys­ist á sem skemmstum tíma þannig að þessi tíma­bundna ráðn­ing vari ekki mjög leng­i.“

Björgólfur seg­ist í til­kynn­ingu á vef Samherja vera stoltur af því að stjórn Samherja skuli hafa leitað til hans. „Af minni hálfu kom aldrei annað til greina en að verða því kalli. Ég vil þakka öllu starfs­fólki Samherja fyrir sam­starfið. Þar er val­inn maður í hverju rúmi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár