Eigum ekki að treysta á ferðamenn sem koma með bakpoka og niðursuðudósir

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að það verði að horfast í augu við það að sum fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu hafi ekki verið að ganga nægi­lega vel. Gæta þurfi að því hversu langt gengið sé í að halda lífi í þeim.

Í einka­geir­anum þarf að taka erf­iðar en stefnu­mót­andi ákvarð­anir vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í íslensku efna­hags­lífi, að mati Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Skapa þarf umhverfi fyrir fyr­ir­tæki til að fá við­spyrnu en að passa sig líka að teygja ekki opin­beran stuðn­ing til að bjarga fyr­ir­tækjum sem voru ekki að reka sig án vand­ræða áður en yfir­stand­andi áfall reið yfir.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legu við­tali Kjarnans við Bjarna sem birt var fyrir helgi. Viðtalið er hluti af umfjöll­un­ar­röð Kjarnans þar sem sjónum er beint að þeirri fram­tíð sem gæti sprottið upp úr stöð­unni sem nú blasir við Íslandi efna­hags­lega. Fyrsti hluti þeirrar umfjöll­unar voru við­töl við alla þrjá for­menn stjórn­ar­flokk­anna.

Verður að styðja við lífvænleg fyrirtæki

Bjarni segir að það verði til að mynda að horfast í augu við það að sum fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu hafi ekki verið að ganga nægi­lega vel. „Við verðum að gæta að því hversu langt við göngum í að halda lífi í þeim. Um það snýst meðal ann­ars umræðan um að við viljum fyrst og fremst styðja við líf­væn­leg fyr­ir­tæki. Síðan er það bara þannig að það hafa verið að skjóta rótum nýjar greinar á Íslandi. Ég nefni fisk­eldi sem dæmi. Það er ekk­ert hægt að horfa fram hjá því hversu ofboðs­leg verð­mæta­sköpun er þar að eiga sér stað á fáum árum.

[adspot]Og dæmi um vax­andi atvinnu­grein sem við skrifum í stjórn­ar­sátt­mál­ann að þurfi að vaxa í sátt við nátt­úr­una eins og mögu­legt er. Við viljum byggja þá atvinnu­grein þannig upp að við getum sagt að það sé ekki hægt að gera þetta með betri hætti heldur en við erum að leggja áherslu á hér á Íslandi með til­liti til umhverf­is­sjón­ar­miða.“

Þurfum að læra af reynslunni

Bjarni telur ferða­þjón­ust­una, sem gengur nú í gegnum mikla eyði­merk­ur­göngu, eigi mikla mögu­leika á að ná vopnum sínum aftur. Hægt sé að læra af reynslu síð­ustu ára og af þeim umhverf­is­legu og sam­fé­lags­legu áskor­unum sem fylgdu því að fara úr hálfri milljón ferða­manna á ári í rúm­lega tvær millj­ónir á skömmum tíma. „Út um skrif­stofu­glugg­ann hjá mér í ráðu­neyt­inu þá horfi ég á stærsta fimm stjörnu hót­elið á Íslandi [Marriott-hót­elið sem rís nú við hlið Hörpu]. Nýtt hótel sem er hugsað til þess að draga til lands­ins ferða­menn sem eru að leita að slíkum gisti­mögu­leika. Þarna held ég að við séum að færa okkur aðeins nær því að það verði meira eftir fyrir sam­fé­lagið í heild að fá slíka til lands­ins, ólíkt því sem væri ef við værum ein­göngu að treysta á það sem koma með bak­poka og nið­ur­suðu­dósir.“

Hægt er að lesa við­talið við Bjarna í heild sinni hér og hlusta á það hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár