Ekki „haldbærar ástæður“ til að ætla að hvalveiðar hafi áhrif á samskipti Íslands við önnur ríki

Ekki eru hald­bærar ástæður til að ætla að hval­veiðar Íslend­inga muni hafa meiri áhrif á sam­skipti Íslands við önnur ríki en verið hefur fram að þessu. Hins vegar má draga þá ályktun að að seint skap­ist sátt um hval­veiðar Íslend­inga á alþjóða­vett­vangi miðað við óbreytt ástand. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra um áhrif hval­veiða á sam­skipti Íslands og ann­arra ríkja sem birt var í dag. Skýrslan var unnin að beiðni Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, og ann­arra þing­manna stjórn­ar­and­stöðu­flokka. Beiðnin var lögð fram í októ­ber í fyrra.

Í skýrsl­unni segir einnig að ekki sé „loku fyrir það skotið að með því að draga saman í veiðum á stór­hvelum náist aukin sátt um stefnu Íslend­inga í þessum mála­flokki á alþjóða­vett­vangi á yfir­stand­andi kvóta­tíma­bili. Þá má ætla að efna­hags­legar for­sendur og aðgangur að erlendum mörk­uðum verði hafður til hlið­sjónar við mat á fram­haldi stór­hvala­veiða þegar núver­andi kvóta­tíma­bili lýkur.“

Skýrslan tekur til þeirra atriða er nefnd eru í skýrslu­beiðn­inni þ.á m.: Áhrif ákvarð­ana for­seta Banda­ríkj­anna um að beita Ísland diplómat­ískum refsi­að­gerðum vegna hval­veiða í atvinnu­skyni; mat á þeim lag­ara­mma sem gildir um hval­veiðar í Banda­ríkj­unum; mat á stefnu núver­andi Banda­ríkja­for­seta gegn alþjóð­legri verslun með dýr í útrým­ing­ar­hættu; upp­lýs­ingar um hvaða ríki heims hafa opin­ber­lega mót­mælt veiðum á hrefnu og lang­reyði við Ísland; mat á því hvort alþjóð­leg verslun Íslands með hvala­af­urðir hafi haft áhrif á sölu og mark­aðs­setn­ingu íslenskra gæða­mat­væla í versl­unum erlendis; og mat á því hvort orð­spor Íslands í ríkjum sem eru aðilar að CITES-samn­ingnum hafi skað­ast vegna alþjóð­legrar versl­unar með hvala­af­urðir.

Hægt er að lesa hana í heild sinni hér.

Eitt dýrasta áhugamál sem hægt er að eiga

Hval­veiðar voru bann­aðar árið 1986 á Íslandi en ákveðið var að hefja þær aftur í vís­inda­skyni árið 2003 þrátt fyrir mikla and­stöðu alþjóða­sam­fé­lags­ins. Hval­veiðar hófust síðan aftur í atvinnu­skyni árið 2006. Hval­veiðar á Íslandi hafa aðal­lega verið stund­aðar af fyr­ir­tæk­inu Hvali hf., sem á og rekur hval­stöð­ina í Hval­firði og heldur úti hval­veiði­bátum. Stærsti eig­andi Hvals hf. er Fisk­veiði­hluta­fé­lagið Venus sem er að stórum hluta í eigu Krist­jáns Lofts­sonar, for­stjóra Hvals. Fyr­ir­tækið veiddi 134 lang­reyðar árið 2013 og 137 árið 2014. Árs­reikn­ingur þess fyrir árið 2015 hefur ekki verið birtur en á árinu 2014 tap­aði Hvalur hf. um einum millj­arði króna á hval­veiðum sínum. Félagið skil­aði hins vegar þriggja millj­arða króna, sem að mestu er til­komin vegna eign­ar­hlta Hvals hf. í einus stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, HB Granda.

Vegna þess að hval­veið­arnar hafa ekki skilað Hvali hf. neinum hagn­aði, heldur þvert á móti kostað fyr­ir­tæki gríð­ar­lega háa fjár­muni ár eftir ár, hafa hval­veiðar fyr­ir­tæk­is­ins verið kall­aðar eitt dýrasta áhuga­mál sem nokkur gæti haft.

Fyrir helgi til­kynnti Kristján Loftsson svo í Morg­un­blað­inu að Hval hf. verði að óbreyttu lokað í sumar. Ástæðan sem hann gaf var þó ekki alþjóð­leg and­staða við hval­veiðar eða slæ­legar rekstr­ar­for­sendur. Hann hafi ein­fald­lega gef­ist upp í bar­átt­unni við skrifræði emb­ætt­is­manna í Japan, sem er aðal­mark­aður Hvals fyrir afurðir sínar. Utan­rík­is­ráð­herra sagði á sama stað að ráðu­neyti hans hafi reynt það sem það gat til að gæta hags­muna Hvals í Japan, en að það hafi lítið þok­ast.

Naumur meirihluti styður hvalveiðar

Íslend­ingar hafa lengi verið litnir horn­auga af alþjóða­sam­fé­lag­inu vegna hval­veiða lands­ins Gunnar Bragi sagði til að mynda frá því í við­tali við Skessu­horn í fyrra að gagn­rýni alþjóða­sam­fé­lags­ins væri sett fram á fundum sem starfs­menn stjórn­ar­ráðs­ins og full­trúar Íslands sækja erlendis. „Við hér í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu verðum vör við það frá fyrstu hendi á fundum sem við sækjum að Ísland er stundum litið horn­auga vegna þess­ara veiða.“

Kannanir hafa sýnt að stuðn­ingur við hval­veiðar á meðal íslensku þjóð­ar­innar hefur einnig farið hratt minnk­andi á und­an­förnum miss­erum. Í könnun sem Gallup gerði í októ­ber 2015 fyrir Alþjóða­dýra­vel­ferð­ar­sjóð­inn(IFAW) í sam­starfi við Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands kom fram að mjög naumur meiri­hluti Íslend­inga styður veiðar á hrefnu og 42,6 pró­sent þeirra styðja veiðar á lang­reyði. Stuðn­ingur við hval­veiðar hefur dreg­ist mjög saman á síð­ustu tveimur árum en er samt sem áður enn meiri en and­staða við þær. Einungis 18,3 pró­sent Íslend­inga segj­ast and­vígir veiðum á hrefnu og 23,3 pró­sent eru and­vígir veiðum á lang­reyðum. Alls segj­ast 31,6 pró­sent lands­manna hvorki vera and­vígur né fylgj­andi veiðum á hrefnum. 34,1 pró­sent segj­ast ekki hafa neina sér­staka skoðun á veiðum á lang­reyðum.

Þótt fleiri Íslend­ingar styðji hval­veiðar en eru á móti þeim hefur orðið mark­tæk breyt­ing á hlut­falli þeirra á síð­ustu tveimur. Þegar Gallup spurði sömu spurn­inga í októ­ber 2013 sögð­ust 56,9 pró­sent vera fylgj­andi því að veiða lang­reyði og 65,7 pró­sent fylgj­andi hrefnu­veiðum. Stuðn­ingur við veið­arnar hefur því farið hratt minnk­andi. Sá hópur sem styður hval­veiðar síst eru yngstu íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og konur.

Anonymous hefur ítrekað gert árásir vegna hvalveiða

Und­an­farna mán­uði hafa með­limir í aðgerð­ar­hópnum Anonymous gert árásir á vef­síður íslenska stjórn­ar­ráðs­ins og ann­arra inn­lendra aðila til að mót­mæla hval­veiðum Íslend­inga. Í jan­úar tókst hópnum til að mynda að loka heima­síðum allra ráðu­neyta um stund. Á Twitter kom fram að árásin var hluti af svo­kall­aði #OpWhales her­ferð, sem með­limir í Anonymous standa á bak við. Á Twitter-reikn­ingnum fyrir aðgerð­ina var mikið fjallað um Ísland og hval­veiðar. Þar mátti meðal ann­ars sjá mynd af Krist­jáni Lofts­syni og hann sagður and­lit skammar­innar á Íslandi. Þá voru birtar upp­lýs­ingar um fyr­ir­tækið Hval og fólk er hvatt til að senda því línu.

Árásin var sams­konar og tvær tölvu­árásir sem gerðar voru í nóv­em­ber. Í annarri þeirra var vef­síðum fimm ráðu­neyta lokað og í hinni var ráð­ist ávef­síðu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Símans og Morg­un­blaðsins, meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár