Anonymous réðst á þekktar íslenskar vefsíður vegna hvalveiða Íslendinga

Á meðal þeirra síðna sem ráð­ist var á voru heima­síða for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Símans og Mbl.is. Árás­irnar ollu miklum trufl­unum á net­þjón­ustu. Net­ör­ygg­is­sveit PFS hefur verið upp­lýst um málið.

Atlaga var gerð að ein­stökum vef­síðum á Íslandi í síð­ustu viku. Upp­lýs­ingum var dreift á inter­net­inu þess efnis að um væri að ræða skipu­lagðar árásir Anonymous sam­tak­anna á Ísland vegna hval­veiða Íslend­inga.

Atlagan olli miklum trufl­unum á net­þjón­ustu og þjón­ustu­að­ilar til­kynntu við­skipta­vinum sínum um þær fyrir helgi. Á meðal þeirra síðna sem með­limir sem segj­ast tengj­ast Anonymous hreykja sér af á Twitter að hafa náð að loka tíma­bundið fyrir erlendri umferð eru síða for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Mbl.is, Símans, Menn.is, Iceland.is og Visiticeland.is.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Símanum, sem á net­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sensa, lág­mark­aði Sensa áhrif atlagn­anna á við­skipta­vini sína. Sensa upp­lýsti CERT-ÍS, net­ör­ygg­is­sveit Póst- og fjar­skipta­stofn­unar (PFS), um málið fyrir helgi.

Anonymous eru nokk­urs konar laus­leg regn­hlíf­ar­sam­tök aðgerð­ar­sinna og hakk­ara út um allan heim.

Stýrðu umferð inn á vefsíður í því magni að þær lágu niðri

Tækni­borð Sensa sendi skila­boð á við­skipta­vini sína á föstu­dag þar sem sagt var frá því að net­trufl­anir sem hefðu verið í gangi í síð­ustu viku hefðu verið umfangs­meiri en talið væri í fyrstu. Í skila­boð­unum, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir einnig: „Upp­lýs­ingum hefur verið deilt á inter­net­inu þess efnis að um sé að ræða skipu­lagðar árásir „Anonymous“ hóps­ins vegna stuðn­ings Íslands við hval­veiðar. Tækni­menn Sensa eru á staðnum að verj­ast þessu á ástandi og vinna að lausn. Flókið getur verið að verj­ast slíkum árásum og erfitt er að vita hversu lengi ástandið varir. Búast má við þjón­ustu­trufl­unum eða þjón­ust­urofi. Til­kynn­ingar munu ber­ast um stöð­una eftir atvikum. Við þökkum fyrir sýnda bið­lund“.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Símans, eig­anda Sensa, um málið. Í svari upp­lýs­inga­full­trúa hans segir að Sensa hafi upp­lýst við­skipta­vini sína á föstu­dag um trufl­anir á net­þjón­ustu í kjöl­far „atlaga að ein­staka vef­síðum hér á landi. Tækni­menn Sensa lág­mörk­uðu áhrif þeirra og eru á vakt­inni verði vart við meiri slíka umferð“.

Síminn segir atlögur á net­inu af þessu tagi snú­ast um að stýra umferð inn á vef­síður í því magni að þær taka ekki lengur við heim­sóknum og liggja því niðri.

Sensa upp­lýsti CERT-ÍS, net­ör­ygg­is­sveit Póst- og fjar­skipta­stofn­unar, um málið. Hjá CERT-ís feng­ust þær upp­lýs­ingar að sveitin viti af mál­inu.

Upplýstu um aðgerðir á Twitter

Upp­lýs­ingum um aðgerð Anonymous vegna hval­veiða Íslend­inga, sem kall­ast #OpWhales, hefur verið dreift á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter. Þar kemur meðal ann­ars fram að síða for­sæt­is­ráðu­neytis Íslands hafi ekki verið aðgengi­leg erlendis frá um tíma í síð­ustu viku vegna árásar á hana frá þeim sem stóðu að aðgerð­inni.

Aðrar síður sem Anonymous-með­limir hreyktu sér af því að hafa ráð­ist á voru:

Iceland.is:

Mbl.is:

Síminn.is:

Menn.is:

Visiticeland.is:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár