Utanríkisráðherra vill að Íslendingar endurskoði hvalveiðar

Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, segir Íslend­inga vera litna horn­auga í alþjóða­sam­fé­lag­inu vegna hval­veiða við stendur Íslands og tíma­bært sé að end­ur­skoða hval­veið­arnar vegna þessa. Frá þessu er sagt á vef Skessu­horns í dag.

Gagnrýni alþjóða­sam­fél­gs­ins kemur fram á fundum sem starfs­menn stjórn­ar­ráðs­ins og full­trúar Íslands sækja erlendis. „Við hér í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu verðum vör við það frá fyrstu hendi á fundum sem við sækjum að Ísland er stundum litið horn­auga vegna þess­ara veiða,“ segir Gunnar Bragi í við­tali við Skessu­horn. Ísland hafi jafn­vel verið skilið útundan og ekki boðið á fundi um mál­efni hafs­ins vegna veið­anna.

Gunnar Bragi seg­ist hins vegar merkja breyt­ingar á þessu enda hafi íslenskar sendi­nefndir lagt sig fram um að færa rök fyrir veið­unum, velta upp lausnum og passað sig á að gera ekki lítið úr áhyggjum erlendis frá.

„Við eigum ekki að gefa eftir rétt­inn til að nýta þessa auð­lind frekar en hverja aðra. En það er umhugs­un­ar­efni fyrir okkur hvort við ættum ekki að koma til móts við alþjóða hval­veiði­ráðið til að mynda með því að veiða færri hvali árlega en við gerum nú,“ segir Gunnar Bragi.

Ísland fór fram á það á ráð­stefnu alþjóða hval­veiði­ráðs­ins árið 2010 að alþjóð­legu banni við hval­veiðum yrði létt, ásamt Noregi og Japan. Alls eru 88 ríki aðilar að ráð­inu sem hefur til dæmis lagt til mála­miðlun þar sem hval­veiði­kvóti þeirra þjóða sem veiða verði minnk­aður tals­vert. Margir vís­inda­menn hafa hins vegar sagt slíkar mála­miðl­anir frá­leitar. Hval­veiði­bannið var sett á árið 1986.

[caption id="attachment_34508" align="alignleft" width="1024"] Hval­veiði­kvóti árs­ins 2015 er 154 lang­reyðar og 229 hrefnur.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár