Skylda að hvetja fólk til að hjóla eða nota almenningssamgöngur í bílaauglýsingum

Franskar bíla­aug­lýs­ingar munu brátt breyta um svip. Samkvæmt nýrri reglu­gerð sem tekur gildi í mars verða aug­lýsendur að hvetja fólk til þess að ferð­ast með öðrum leiðum en sínum eigin einka­bíl í öllum bíla­aug­lýs­ingum.

Brátt eiga allar bílaauglýsingar í Frakklandi að fela í sér hvatningu um að ferðast með öðrum hætti en á bíl.
Brátt eiga allar bíla­aug­lýs­ingar í Frakk­landi að fela í sér hvatn­ingu um að ferð­ast með öðrum hætti en á bíl. Mynd: EPA

Bíla­aug­lýs­ingar í Frakk­landi munu breyt­ast tals­vert á næstu mán­uðum, en ný reglu­gerð sem ráð­gert er að taki þar gildi í mars mun skylda bíla­fram­leið­endur til þess að hvetja fólk til þess að ferð­ast með öðrum hætti en á sínum einka­bíl í öllum bíla­aug­lýs­ingum.

Nánar til­tekið geta þeir sem eru að aug­lýsa bíla valið á milli þriggja skila­boða sem eiga, að kröfu yfir­valda, að fylgja með bíla­aug­lýs­ingum; „íhugið að sam­ein­ast í bíl“, „fyrir styttri ferðir, veldu göngu eða hjól­reiðar“ eða „not­aðu almenn­ings­sam­göngur fyrir dag­legar ferðir“.

Þetta mun eiga við allar bíla­aug­lýs­ingar, óháð því hvort þær birt­ast í útvarpi, sjón­varpi, í prent­miðlum, á net­inu, í kvik­mynda­húsum eða á umhverf­is­skiltum.

Ef aug­lýsendur fara ekki eftir reglu­gerð­inni bíður þeirra sekt sem numið getur allt að 50 þús­und evrum, jafn­virði um 7 millj­óna íslenskra króna, sam­kvæmt því sem segir í frétt banda­ríska blaðs­ins Washington Post um þetta mál.

Orkuskipti snúist ekki bara um rafmótora

Barbara Pompili, ráð­herra vist­vænna umbreyt­inga í frönsku rík­is­stjórn­inni, sagði um þessar breyt­ingar í færslu á Twitter á dög­unum að orku­skipti í sam­göngum sner­ust ekki ein­ungis um að „skipta yfir í raf­mótor“, heldur einnig um að nota almenn­ings­sam­göngur eða reið­hjól þegar það væri mögu­legt.

Svipaðar hömlur og nú er verið að setja á bíla­aug­lýs­ingar eru þegar í gildi í Frakk­landi þegar kemur að mat­ar­aug­lýs­ingum, en þeim þurfa að fylgja skila­boð til neyt­enda um að borða minna af drasl­fæði og meira af græn­meti og ávöxtum.

Hin nýja reglu­gerð er sögð sett á í kjöl­far ára­langrar bar­áttu frá nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum, sem hafa kraf­ist þess að bíla­aug­lýs­ingar verði bann­aðar með öllu í land­inu.[links]

Samkvæmt reglu­gerð­inni sem tekur gildi í mars verða los­un­ar­tölur bíla einnig að fylgja með öllum bíla­aug­lýs­ingum og frá og með árinu 2028 verður bannað að aug­lýsa þá bíla sem mest losa í Frakk­landi.

Talsmenn bíla­fram­leið­enda hafa tjáð sig um fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar nú í upp­hafi árs og hafa við­brögðin verið blendin.

Æðsti yfir­maður Hyundai í Frakk­landi sagði við AFP-frétta­veit­una að fyr­ir­tækið myndi aðlaga sig að þessu, en kvart­aði þó undan því að þessi aðgerð „setti smán­ar­blett á bíla“, auk þess sem hann lýsti yfir von­brigðum með að regl­urnar ættu einnig að gilda um aug­lýs­ingar á raf­bílum, á sama tíma og frönsk stjórn­völd væru að búa til hvata til að auka hlut þeirra í nýskrán­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár