Óvissa í dönskum stjórnmálum

Þing­kosn­ingar verða í Danmörku eftir tíu daga, skoð­ana­kann­anir benda til stjórn­ar­skipta. Málefni inn­flytj­enda og flótta­fólks hafa mjög sett svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una, kosn­ingar til Evr­ópu­þings fá litla athygli.

Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur og Mette Frederiksen leiðtogi jafnaðarmanna.
Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og Mette Frederik­sen leið­togi jafn­að­ar­manna. Mynd: EPA

Það gengur á með kosn­ingum í Danmörku. Þar fara kosn­ingar til Evr­ópu­þings­ins fram í dag, 26. maí, og þing­kosn­ingar 5. júní. Evr­ópu­þings­kosn­ing­arnar voru löngu ákveðnar en Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra dró það fram á síð­ustu stundu að boða til þing­kosn­ing­anna. Fyrir fjórum árum var kjör­dag­ur­inn 18. júní og lögum sam­kvæmt yrðu kosn­ing­arnar nú að fara fram eigi síðar 17. júní. Ástæða þess að for­sæt­is­ráð­herr­ann dró svo lengi að ákveða, og til­kynna, kjör­dag er vafa­lítið sú að flokkur ráð­herr­ans, Venstre, hefur um langa hríð komið illa út úr skoð­ana­könn­unum. Það er alþekkt í Danmörku, og víðar, að sá sem hefur vald til að ákveða kjör­dag vill helst gera það þegar byr­lega blæs.

[adspot]Ýmsir hafa gagn­rýnt að svo skammt skuli líða milli þing­kosn­ing­anna og kos­ing­anna til Evr­ópu­þings­ins og jafn­vel nefnt að rétt­ast hefði verið að hafa bara einn kjör­dag, slá tvær flugur í einu höggi og draga með því úr kostn­aði. Sömu­leiðis var á það bent að þegar svo skammt liði milli áður­nefndra kosn­inga myndu kosn­ing­arnar til Evr­ópu­þings­ins algjör­lega hverfa í skugg­ann. Það hefur líka komið á dag­inn. Danir virð­ast hafa sára­lít­inn áhuga fyrir Evr­ópu­þings­kosn­ing­unum og umfjöllun fjöl­miðla um þær verið afar tak­mark­aðar. Allt púðrið fer í þing­kosn­ing­arnar.

Litið til baka, og kosningarnar 2015

Rík­is­stjórn Jafn­að­ar­manna undir for­ystu Helle Thorning-Schmidt tók við völdum eftir kosn­ing­arnar árið 2011. Auk jafn­að­ar­manna, Socialdemokratiet, áttu aðild að stjórn­inni Sos­i­alistisk Fol­ke­parti og Radikale Venstre. Á ýmsu gekk í stjórn­ar­sam­starf­inu, einkum vegna fyr­ir­ætl­ana um sölu 19% hlutar rík­is­ins í orku­fyr­ir­tæk­inu DONG. Bjarne Corydon þáver­andi fjár­mála­ráð­herra (úr flokki for­sæt­is­ráð­herr­ans) lagði ofurá­herslu á söl­una og hafði sitt fram. Kaup­and­inn var banda­ríski fjár­fest­inga­bank­inn Goldman Sachs. Síðar kom í ljós að danska ríkið fékk allt of lítið fyrir hlut­inn og nú er iðu­lega talað um söl­una sem ein stærstu efna­hags­mi­s­tök í sögu Dan­merkur. Vegna söl­unnar sagði Sos­i­alistisk Fol­ke­parti skilið við stjórn­ina og Annette Vil­helm­sen for­maður flokks­ins sagði af sér.

Þing­kosn­ingar árið 2015 fóru fram 17. Júní. Úrslitin ein­kennd­ust af miklum sveiflum. Jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn undir stjórn Helle Thorning bætti við sig 3 þing­mönnum frá kosn­ing­unum 2011 og hafði nú 47 full­trúa á þingi. Hinn stjórn­ar­flokk­ur­inn Radikale Venstre fékk 8 þing­menn, tap­aði 9, Sos­i­alistisk Fol­ke­parti, sem hafði sagt sig úr stjórn­inni, tap­aði líka 9 mönnum og fékk 7 menn kjörna. Þessi úrslit þýddu að rauða blokkin svo­nefnda (miðju- og vinstri flokkar) gátu ekki myndað meiri­hluta­stjórn en þing­menn á danska þing­inu, Fol­ket­inget, eru sam­tals 179.

Venstre flokkur Lars Løkke Rasmus­sen tap­aði 13 og hafði nú 34 þing­menn.

Litla minnihlutastjórnin

Þrátt fyrir þetta mikla tap tókst Lars Løkke Rasmus­sen að mynda stjórn, litla minni­hluta­stjórn, eins og fjöl­miðlar komust að orði. Síðar gengu Liberal Alliance og de Konservative til liðs við stjórn­ina. Samtals höfðu þessir flokkar, bláa blokkin svo­nefnda, (miðju og hægri flokkar) 53 þing­menn. Það sem mestu skipti fyrir Lars Løkke var stuðn­ingur Dansk Fol­ke­parti, sem vildi þó ekki eiga beina aðild að rík­is­stjórn­inni.

[adspot]Flokk­ur­inn bætti við sig 15 þing­mönnum og hafði eftir kosn­ingar 37 full­trúa á þingi, næst stærsti þing­flokk­ur­inn. En sá stuðn­ingur hefur ekki verið án fórna fyrir stjórn­ar­flokk­ana. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn hefur iðu­lega verið kall­aður aft­ur­sæt­is­bíl­stjór­inn, vit­andi að Lars Løkke myndi gera allt til að halda völd­unum. Þess hafa reyndar sést merki í ýmsum ákvörð­unum stjórn­ar­innar þar sem ráð­herrar hafa bein­línis lýst yfir að til­teknar ákvarð­anir hafi verið teknar að kröfu „aft­ur­sæt­is­bíl­stjór­ans“. Nægir þar að nefna nið­ur­skurð danska útvarps­ins en menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann lýsti yfir að ákvörðun um hann væri ófrá­víkj­an­leg krafa Danska þjóð­ar­flokks­ins

Innflytjendur og hælisleitendur

Fyrir tveim vikum birti Danska útvarpið, DR, lista yfir þau mál sem oft­ast og mest hefur verið fjallað um í dönskum fjöl­miðlum á kjör­tíma­bil­inu sem er að ljúka. Í öllum stærstu fjöl­miðlum lands­ins hafa mál­efni flótta­fólks og hæl­is­leit­enda verið lang fyr­ir­ferð­ar­mest öll árin og eru það líka nú, í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna. Í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins, árið 2015 náði straumur hæl­is­leit­enda hámarki, rúm­lega 21 þús­und manns, straum­ur­inn stríð­astur á haust­mán­uðum. Margir þeirra sem komu til Dan­merkur hugð­ust halda áfram til Sví­þjóðar, Danmörk væri bara áfanga­staður. Í árs­byrjun 2016 tóku sænsk yfir­völd upp strangt landamæra­eft­ir­lit og nokkrum dögum síðar komu Danir á gæslu við landa­mærin að Þýska­landi. Gæslan var í upp­hafi sögð tíma­bundin en hefur síðan verið fram­lengd, oft­ast til þriggja mán­aða í senn. Kostn­að­ur­inn við gæsl­una hefur verið umtals­verður og vegna margra ára nið­ur­skurðar í lög­regl­unni hefur reynst nauð­syn­legt að fá her­inn til aðstoðar. Nú hefur hins­vegar hægt mjög á straumnum en umræðan heldur áfram og nú snýst hún ekki hvað síst um aðbúnað þeirra sem ekki fá land­vist­ar­leyfi í Danmörku en búa tíma­bundið í sér­stökum búðum (udrejsecentre) áður en fólkið fer úr landi. Slík dvöl getur varað árum saman.

Eins og fram kom hér að framan jókst fylgi Danska þjóð­ar­flokks­ins mikið í kosn­ing­unum 2015. Því olli ekki síst hörð og afger­andi stefna flokks­ins í mál­efnum flótta­fólks og inn­flytj­enda. Nú hefur fylgi Danska þjóð­ar­flokks­ins hins vegar hrunið og ef nið­ur­staða kosn­ing­anna verður í sam­ræmi við kann­anir geldur flokk­ur­inn afhroð. Fylgi jafn­að­ar­manna hefur auk­ist, stjórn­mála­skýrendur telja hluta þeirrar aukn­ingar vera á kostnað Danska þjóð­ar­flokks­ins. Jafn­að­ar­menn hafa nefni­lega boðað harð­ari og ákveðn­ari stefnu í mál­efnum hæl­is­leit­enda og flótta­fólks en flokk­ur­inn hefur áður fylgt. Mette Frederik­sen, for­maður flokks jafn­að­ar­manna, hefur þó ekki, enn sem komið er, viljað útlista nákvæm­lega breytta stefnu flokks­ins í þessum málum. Nýlega hafa svo komið til sög­unnar tveir flokkar yst til hægri, og þeir taka, að mati stjórn­mála­skýrenda, fylgi frá DF og stjórn­ar­flokknum Venstre.

Áhyggjur sérfræðinga

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag (23. maí) birti dag­blaðið Berl­ingske langa grein sem 58 manna hópur sér­fræð­inga frá átta löndum skrif­aði. Í grein­inni benda sér­fræð­ing­arnir á rann­sóknir, sem Rauði Krossinn og fleiri sam­tök hafa gert á börnum sem dvelja í tíma­bundnum búðum í Sjæls­mark á Norður-Sjálandi. Sér­fræð­ing­arnir segja nið­ur­stöð­urnar áhyggju­efni en 90 börn dvelj­ast í búð­unum ásamt öðru for­eldri sínu eða báðum. Nær öll börnin þríf­ast illa, þau eru hrædd og óör­ugg og vita ekk­ert hvað bíður þeirra. Í búð­unum er ekk­ert sem heitir eðli­legt fjöl­skyldu­líf, segja sér­fræð­ing­arnir og slíkt hafi mjög skað­leg áhrif á sál­ar­líf barn­anna.

[adspot]For­eldrar í búð­unum hafa ekki leyfi til að elda mat handa sér og börnum sínum, öllum ber að borða í sam­eig­in­legu mötu­neyti búð­anna. Þetta mál var tekið upp í umræðu­þætti í danska sjón­varp­inu, DR, fyrir viku síðan. Inger Støjberg, ráð­herra inn­flytj­enda­mála (Venstre) hélt fast við þá ákvörðun að allir skuli borða í mötu­neyt­inu en í spjall­þætti kvöldið eftir sagði Lars Løkke Rasmus­sen að til greina kæmi að breyta þessu fyr­ir­komu­lagi. Martin Hen­rik­sen, tals­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins í mál­efnum inn­flytj­enda sagði að ekki kæmi til greina að slaka á reglum varð­andi íbú­ana í Sjæls­mark. Mette Frederik­sen leið­togi jafn­að­ar­manna hefur verið beitt þrýst­ingi frá öðrum flokkum í rauðu blokk­inni svo­nefndu að grípa til ráð­staf­ana gagn­vart börn­unum sem dvelja í Sjæls­mark.

Tíu dagar til kosninga

Nú eru tíu dagar til þing­kosn­ing­anna í Danmörku. Spár benda til að Mette Frederik­sen verði næsti for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Hennar biði hins vegar erfitt hlut­skipti, flokkar sem til­heyra rauðu blokk­inni (miðju og vinstri) eru ekki sam­mála jafn­að­ar­mönnum í einu og öllu, til dæmis varð­andi mál­efni hæl­is­leit­enda og flótta­fólks.

Spár eru eitt og nið­ur­stöður annað. Lars Løkke er slyngur stjórn­mála­maður og rétt að ljúka þessum pistli á orðum eins dönsku dag­blað­anna fyrir nokkrum dögum „Løkke hefur áður sýnt að hann gefst ekki upp fyrr en í fulla hnef­ana. Hvort honum tekst að veiða for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn upp úr hatt­inum kemur í ljós að kvöldi 5.júní“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár