Tveggja milljarða hagnaður á þremur mánuðum hjá HB Granda

HB Grandi hagn­að­ist um 13,8 millj­ónir evra, eða sem nemur rúm­lega tveimur millj­örðum króna, á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Rekstr­ar­tekjur sam­stæð­unnar námu 53,3 millj­ónum evra, tæp­lega átta millj­örðum króna, á þessum fyrstu þremur mán­uðum árs­ins en rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 21,4 millj­ónum evra, eða sem nemur 3,2 millj­örðum króna.

Þetta er eitt besta upp­gjör í sögu fyr­ir­tæk­is­ins, enda EBITDA fram­legð upp á 40,1 pró­sent, eins og upp­gjörið sýnir, fáheyrð í rekstri skráðra fyr­ir­tækja. Upp­gjörið er í takt við rekstur fyr­ir­tæk­is­ins á síð­ustu árum, sem hafa hverið bestu rekstr­arár í sögu fyr­ir­tæk­is­ins.

Heild­ar­eignir félags­ins námu 393,2 millj­ónum evra í lok mars 2015, eða sem nemur um 60 millj­örðum króna. Þar af voru fasta­fjár­munir 300,1 millj­ónir evra, eða um 45 millj­arðar króna. Veltu­fjár­munir voru 93,1 millj­ónir evra, eða tæp­lega fjórtán millj­arðar króna. Eigið fé nam 233,6 millj­ónum evra, eða um 35 millj­örðum króna. Eig­in­fjár­hlut­fall í lok mars var 59,4%, en var 59,7% í lok árs 2014. Heild­ar­skuldir félags­ins voru í mars­lok 159,6 millj­ónir evra, eða sem nemur 23,9 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár