Ætla að taka sýni úr hótelstarfsmönnum til að tryggja öryggi ferðamanna

Aust­ur­rík­is­menn komust í heims­frétt­irnar þegar upp komst að rekja mátti fjölda smita í nokkrum löndum til skíða­bæj­ar­ins Ischgl. Nú vilja þeir fá ferða­menn til sín á ný og ætla að skima fyrir veirunni meðal fólks sem starfar í ferða­þjón­ustu.

Yfir 3.500 tilfelli greindust í Týrol-héraði í Austurríki, þar af nokkur hundruð í skíðabænum Ischgl.
Yfir 3.500 til­felli greindust í Týrol-hér­aði í Aust­ur­ríki, þar af nokkur hund­ruð í skíða­bænum Ischgl. Mynd: EPA

Yfirvöld í Aust­ur­ríki ætla að hefja skimun fyrir kór­ónu­veirunni meðal starfs­manna hót­ela í þeirri von að lokka Þjóð­verja og aðra ferða­menn til lands­ins í sumar. Skíða­svæði í land­inu varð að gróðr­ar­stíu fyrir útbreiðsl­una í febr­úar og bár­ust smit meðal ann­ars þaðan til Íslands.

Til harðra aðgerða var gripið í Aust­ur­ríki til að hefta útbreiðsl­una. Aflétt­ing tak­mark­ana hófst í skrefum fyrir um mán­uði síðan. Versl­anir, veit­inga­hús, barir og sum söfn hafa verið opnuð á ný og til stendur að opna hótel frá 29. maí.

Sebast­ian Kurz, kansl­ari Aust­ur­ríkis, sagði á ráð­stefnu í dag að sýni verði tekin úr sem flestum hót­el­starfs­mönnum og sem oft­ast til að tryggja að þeir breiði ekki út veiruna meðal ferða­manna.

Ferða­þjón­usta er risa­vaxin atvinnu­grein í Aust­ur­ríki. Flestir ferða­menn koma frá nágranna­rík­inu Þýska­landi þar sem nokkuð vel hefur tek­ist að fækka smitum síð­ustu vikur, fyrir utan nokkur hópsmit, m.a. í kjöt­vinnslum.

Landa­mæri milli Aust­ur­ríkis og Þýska­lands verða opnuð að fullu í júní.

Skíða­bær­inn Ischgl varð miðja útbreiðslu veirunnar í febr­úar og í mars var hann afkví­aður til að ná tökum á ástand­inu. Hundruð ferða­manna frá Þýska­landi, Íslandi og Noregi sýkt­ust þar og báru veiruna til sinna heima­landa.

Í frétt New York Times segir að í byrjun júlí hefj­ist sýna­töku­her­ferð meðal um 65 þús­und hót­el­starfs­manna. Á hverjum degi eru nú tekin um 6-8.000 sýni í Aust­ur­ríki.

Kurz segir að með umfangs­miklum sýna­tökum meðal starfs­manna í ferða­þjón­ustu skapi Aust­ur­ríki sér sér­stöðu á heims­vísu.

[links]Í Aust­ur­ríki er þeim sem koma frá Schengen-svæð­inu heim­ilt að fara inn í landið án þess að fara í sótt­kví ef þeir sýna lækn­is­vott­orð um nei­kvætt COVID-19-próf. Prófið má ekki vera eldra en 4 daga gam­alt og þarf að vera útgefið af lækni á ensku eða þýsku.

Frá 4. maí hafa ferða­menn sem lenda á flug­vell­inum í Vín­ar­borg getað farið í sýna­töku til að fá úr því skorið hvort þeir séu sýktir af nýju kór­ónu­veirunni. Þannig geta þeir kom­ist hjá því að fara í tveggja vikna sótt­kví.

Svipað fyr­ir­komu­lag stendur fyrir dyrum á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Slóvenía hefur tekið upp annað fyr­ir­komu­lag sem vakið hefur athygli. Öllum sem koma til Slóveníu er gert að fara í sjö daga sótt­kví. Á síð­asta degi sótt­kvíar er skylt að fara í COVID-19-próf. Sóttkví er aflétt þegar nið­ur­staða prófs liggur fyrir ef próf er nei­kvætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár