Frábærir tímar fyrir þá sem eiga hlutabréf - Markaðurinn hækkað um þriðjung á árinu

Margfalt meiri hækkun hér­lendis en á helstu mörk­uðum erlendis. Ljóst að margir hafa hagn­ast gíf­ur­lega.

Það sem af er árinu 2015 hefur úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands, sem mælir gengi á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði, hækkað um 35 pró­sent. Á einu ári, frá því í októ­ber 2014, hefur hún hækkað um 52 pró­sent.

Hluta­bréf sumra félaga sem skráð eru í kaup­höll­ina hafa hækkað um tugi pró­senta á skömmum tíma. Miðað við stöð­una i lok síð­ustu viku hafði gengi N1 hækkað um 88,8 pró­sent frá ára­mótum, gengi bréfa í Marel um 55,8 pró­sent, gengi bréfa í Icelandair um 50 pró­sent, í móð­ur­fé­lagi Vodafone um 44,3 pró­sent, í fast­eigna­fé­lag­inu Reginn um 31,6 pró­sent og í HB Granda um 26,2 pró­sent. Hluta­bréf í Sjóvá, Eim­skipum, Högum og VÍS höfðu einnig hækkað um 4,4 -9,5 pró­sent á árinu.

Eina félagið sem skráð er í kaup­höll­ina sem er minna virði í dag en það var um síð­ustu ára­mót er trygg­inga­fé­lagið TM, en rúm­lega hálfs millj­arðs króna tap var af vátrygg­ing­ar­starf­semi TM á fyrstu þremur mán­uðum þessa árs vegna aukn­ingu á eigna- og öku­tækjatjóna sem rekja mátti til slæms tíð­ar­fars að mestu. TM hagn­að­ist samt um 72 millj­ónir króna á árs­fjórð­ungnum.

Miklar hækk­anir hluta­bréfa eru í raun ekk­ert nýtt fyrir okkur Íslend­inga. Á árunum fyrir hrun setti íslenskur hluta­bréfa­mark­aður heims­met í hækk­unum. Þær reynd­ust, að mati rann­sókn­ar­nefndar Alþingis og síðar Hæsta­réttar, byggja á mark­aðs­mis­notkun.

Í þetta sinn er eng­inn opin­ber grunur um að slík eigi sér stað, þótt þing­menn hafi kallað eftir því að það verði kannað. Því er hins vegar velt mjög fyrir sér hvort hluta­bréfa­mark­aður örríkis í höftum hafi nægj­an­lega dýpt til að starfa eins og hluta­bréfa­mark­aður á að gera. Og hvort aðstöðu­munur val­inna fjár­festa geri þeim kleift að hagn­ast óheyri­lega á upp­gangi hans.

Miklu meiri hækkun en í útlöndum

Sú mikla hækkun sem orðið hefur á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum það sem af er ári er mun hærri en hækk­anir almennt á stærstu hluta­bréfa­mörk­uðum heims­ins. FTSE-vísi­talan í London hefur t.d. lækkað um 5,6 pró­sent. Banda­ríska vísi­talan Dow Jones hefur hækkað um 4,5 pró­sent og S&P 500-vísi­talan um ell­efu pró­sent. Hin þýska DAX-vísi­tala hefur hækkað um 6,5 pró­sent og jap­anska Nikkei-vísi­talan hefur hækkað um 11,3 pró­sent.

Engin þess­arra alþjóð­legu vísi­talna, sem mæla ástand stærstu hluta­bréfa­mark­aða heims, kemst nálægt því að hafa hækkað jafn mikið og íslenska úrvals­vísi­talan. Og alls hefur íslenska úrvals­vísi­talan nán­ast tvö­fald­ast frá því að hún var end­urstillt nokkrum mán­uðum eftir hrunið. Auðvitað verður þó að taka til­lit til þess að íslenski mark­að­ur­inn hefur verið end­ur­reistur nán­ast frá grunni á þeim tíma.

Síðasta vika var sér­stak­lega góð á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. Öll félög nema HB Grandi hækk­uðu í verði. Mest hækk­uðu bréf í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum, sam­tals um 9,0 pró­sent. Mark­aðsvirði félags­ins hækk­aði um 4,5 millj­arða króna á einni viku.

Vikan var líka góð fyrir trygg­inga­fé­lögin þrjú sem skráð eru á markað. Sjóvá, VÍS og TM hækk­uðu öll um 5,5 til 5,9 pró­sent.

Um 93 prósent af markaðsvirði bréfa hvarf

Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn á Íslandi var í skötu­líki eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins og krón­unnar. Um 93 pró­sent af mark­aðsvirði hluta­bréfa hvarf við fall bank­anna. Þau félög sem eftir voru á mark­aði var hægt að telja á fingrum ann­arrar handar. Í raun voru við­skipti ein­ungis virk með bréf tveggja félaga á aðal­mark­aði, Marel og Össurar.

Það var ekki aug­ljóst hvernig ætti að standa að end­ur­reisn hluta­bréfa­mark­að­ar­ins og hversu hratt hún gæti átt sér stað. Auk þess var það rætt í fullri alvöru innan bank­anna, hjá hags­muna­sam­tökum í atvinnu­líf­inu og í nefndum Alþingis hvort hluta­bréfa­mark­aður á Íslandi geti mögu­lega illa þjónað til­gangi sínum vegna þess hve dýptin er lítil í við­skipt­unum og aðilar á mark­aði fáir. Þessar raddir voru nokkuð háværar eftir hrunið og ekki síst eftir útkomu skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis í apríl 2010. Í fjórða bindi þeirrar skýrslu var fjallað sér­stak­lega um verð­bréfa­mark­að­inn og var þar dregin upp mynd af mark­aði þar sem mark­aðsvirðið virt­ist aðeins fara í eina átt – upp á við. Þar til bólan sprakk.

Í umfjöllun um þróun hluta­bréfa­mark­að­ar­ins segir rann­sókn­ar­nefndin að ekk­ert dæmi sé til um álíka hækk­anir og hér sáust:„Frá árs­byrjun 2004 og þar til úrvals­vísi­talan náði sínu hæsta gildi í 9016,48 stigum 18. júlí 2007 nam hækk­unin alls 328,76 pró­sent og var sú almenna hækkun úrvals­vísi­töl­unnar eins­dæmi meðal þró­aðra hag­kerfa eins og sam­an­burður við erlendar vísi­tölur sýnir glöggt“.

Afleið­ing­arnar af þess­ari miklu bólu og tætl­unum sem hún skildi eftir sig um allt hag­kerfið sátu enn í fjár­festum, stórum og smáum. Skuld­sett hluta­bréfa­kaup í for­dæma­lausu magni í alþjóð­legum sam­an­burði voru drif­kraft­ur­inn að baki hluta­bréfa­við­skipt­unum fyrir hrunið og grun­semdir voru uppi um stór­fellda mark­aðs­mis­notkun innan föllnu bank­anna fyrir hrunið. Embætti sér­staks sak­sókn­ara fékk mörg slík meint brot til rann­sóknar skömmu eftir hrunið, hefur ákært í nokkrum slíkum málum og þyngstu efna­hags­brota­dómar Íslands­sög­unnar hafa fallið í hluta þeirra mála.

Bankarnir fengu að endurskipuleggja atvinnulífið

Það varð þó ofan á að end­ur­reistu bank­arnir Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn fengu það hlut­verk að end­ur­skipu­leggja íslenskt atvinnu­líf. Þeir hafa not­ast við aðal­markað Kaup­hallar Íslands þegar þeir hafa minnkað við sig, eða selt að öllu leyti, fyr­ir­tæki sem þeir fengu í vöggu­gjöf í kjöl­far hruns­ins.

Veislan hófst með skrán­ingu Haga undir lok árs 2011. Um var að ræða fyrstu nýskrán­ingu eftir hrun og skrán­ing­ar­gengið var 13,5 krónur á hlut. Þeir sem tóku þátt í útboð­inu, sem voru færri en vildu, sjá ekki eftir þeirri fjár­fest­ingu. Virði Haga hefur rúm­lega þre­fald­ast síðan að skrán­ingin átti sér stað þrátt fyrir að Hagar hafi greitt hlut­höfum sínum 3,7 millj­arða króna í arð á síð­ustu þremur árum á sama tíma og félagið hefur greitt hratt niður skuldir.

Lífeyrissjóðirnir ýkja völd einkafjárfesta

Alls eru nýskrán­ing­arnar orðnar tólf eftir hrun auk þess sem hlutafé í Icelandair var aukið í kjöl­far fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar á því félagi. Ljóst var að líf­eyr­is­sjóð­irnir myndu alltaf leika stórt kaup­enda­hlut­verk í end­ur­reistum hluta­bréfa­mark­aði. Þeir þurfa að koma um 120 millj­örðum króna á ári í fjár­fest­ingar og innan fjár­magns­hafta þá hefur ekki verið neitt rosa­lega mikið um fjár­fest­inga­mögu­leika, sér­stak­lega eftir að Íbúða­lána­sjóður hætti að gefa út skulda­bréf fyrir tveimur árum síðan.

Það varð enda raunin. Í rann­sókn sem Hersir Sig­ur­geirs­son, dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, birti fyrir um ári síðan kom fram að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir ættu, beint eða óbeint, um 43 pró­sent af skráðum félögum hér­lendis.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru með þá opin­beru afstöðu að sækj­ast ekki eftir því að vera virkir eig­endur. Þ.e. að þeir séu ekki að taka virkan þátt í stjórnun þeirra fyr­ir­tækja sem þeir eiga stóra hluti í. Það eru reyndar afar skiptar skoð­anir um það í við­skipta­líf­inu hvort allir full­trúar líf­eyr­is­sjóð­anna í stjórnum fyr­ir­tækja fari eftir þess­ari afstöðu. Til dæmis er Helgi Magn­ús­son, vara­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, í stjórn þriggja félaga: N1, Marel og Símans. Helgi á sjálfur hluta­bréf í N1 og Marel. Í stjórn þess fyrr­nefnda situr hann fyrir hönd líf­eyr­is­sjóðs­ins. Helgi er til að mynda talin hafa beitt sér mjög fyrir því að Orri Hauksson var ráð­inn for­stjóri Símans fyrir tveimur árum síðan.

En á meðan að líf­eyr­is­sjóð­irnir ætla sér ekki, að minnsta kostið opin­ber­lega, að vera virkir hlut­hafar þá aukast völd hinna sem eiga hluti í félögum með þeim. Þ.e. áhrif þeirra verða mun meiri en eign­ar­hlut­ur­inn segir til um.

Hverjir eru að græða?

Sá hópur ein­stak­linga er ekki mjög sýni­legur. Eina úttektin sem hefur verið gerð á honum var í áður­nefndri rann­sókn Hersis, sem mið­aði við stöð­una eins og hún var í árs­lok 2013. Þar var að finna lista yfir þá 20 ein­stak­linga sem áttu mest af hluta­bréfum í skráðum félögum á Íslandi á þeim tíma. Samtals áttu þessir 20 ein­stak­lingar 5,32 pró­sent allra hluta­bréfa á þeim tíma. Samkvæmt rann­sókn­inni var mark­aðsvirði bréfa, sem hóp­ur­inn átti þá, um 26,2 millj­arðar króna. Síðan hefur úrvals­vísi­talan hækkað um meira en 66 pró­sent. Ef hóp­ur­inn hefur ávaxtað hluta­bréfa­eign sína í takt við þá hækkun væri mark­aðsvirði hluta­bréfa þess­ara 20 ein­stak­linga um 43,6 millj­arðar króna.

Það er erfitt að átta sig á því hversu stóran hlut ein­stak­lingar, þ.e. ekki fag­fjár­festar eins og líf­eyr­is­sjóðir, eða félög í þeirra eigu eiga af íslenskum hluta­bréfum. Kaup­höllin birtir ein­ungis lista yfir 20 stærstu hlut­hafa hverju sinni og þar er ekki mikið um slíka.

Þar er hins vegar fullt af sjóðum í stýr­ingu sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækja bank­anna. Þeir ein­stak­lingar sem eru umsvifa­mestir á hluta­bréfa­mark­aði kaupa oft hlut­deild­ars­kirteini í þeim sjóðum. Ekki þarf að upp­lýsa um hverjir eig­endur slíkra hlut­deild­ars­kirteina eru.

Hinir ríku eiga hlutabréfin

Í tölum sem Hagstofa Íslands birti nýverið er hægt að sjá vís­bend­ingar um hversu mikið íslenskir fjár­magns­eig­endur hafa verið að hagn­ast á und­an­förnum árum. Sá fimmt­ungur Íslend­inga sem hafði hæstar tekjur á árinu 2014, alls tæp­lega 40 þús­und manns, jók hreina eign sína um 142,2 millj­arða króna á því ári. Tæpur helm­ingur aukn­ingar á auði íslenskra heim­ila á síð­asta ári féll í skaut þessa hóps. Tekju­hæsta tíund lands­manna, 19.711 manns, sá auð sinn vaxa um 88,2 millj­arða króna á árinu 2014. Á sama tíma óx hrein eign þess helm­ings þjóð­ar­innar sem er með lægstu tekj­urnar, alls um eitt hund­rað þús­und manns, um 72 millj­arða króna, eða 16,2 millj­arða króna minna en rík­asti hluti þjóð­ar­innar.

Auk þess á rík­asta tíund þjóð­ar­innar yfir helm­ing allra verð­bréfa, en virði þeirra í þess­ari sam­an­tekt er skráð á nafn­virði. Mark­aðsvirði þeirra verð­bréfa, sem eru til dæmis hluta­bréf í fyr­ir­tækjum lands­ins, er mun hærra en upp­gefið nafn­virði. Því er eigið fé þessa hóps, alls 19.711 ein­stak­linga, því lík­lega mun meira en tölur Hagstofu Íslands gefa til kynna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár