Bréf í TM lækkuðu mikið eftir uppgjör sem olli fjárfestum vonbrigðum

Gengi bréfa í Trygg­inga­mið­stöð­inni (TM) lækk­aði um 5,81 pró­sent í dag í alls 187,2 millj­óna króna við­skiptum. Alls var veltan í Kaup­höll­inni í dag 736,6 millj­ónir króna og því voru við­skipti með bréf í TM fjórð­ungur allra við­skipta. Bréf í TM lækk­uðu mun meira en bréf í öðrum skráðum félögum.

Gengi bréfa í TM, sem var skráð á markað í maí 2013, hefur lækkað tölu­vert und­an­farnar vikur og er nú 20,25 krónur á hlut. Þegar gengið var hæst, í des­em­ber 2013, var það 33 krónur á hlut. Síðan þá hefur gengi bréfa í TM því lækkað um tæp 39 pró­sent. Vert er þó að taka fram að ákveðið var að lækka hlutafé Í TM þann 12. mars síð­ast­liðnum, sem hafði þau áhrif að gengið féll skarpt strax dag­inn eftir.

Vont veður kostaði rúman hálfan milljarð


TM birti árs­hluta­upp­gjör fyrir fyrstu þrjá mán­uði árs­ins eftir lokun mark­aða síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Það var síð­asti við­skipta­dagur síð­ustu viku þar sem lokað var fyrir við­skipti föstu­dag­inn 1. maí.

Upp­gjörið olli miklum von­brigðum á mark­aði, heild­ar­hagn­aður félags­insvar ein­ungis 72 millj­ónir króna á árs­fjórð­ungnum eða um tíu pró­sent af því sem hann var á sama tíma árið áður. Ástæðan er ein­föld: 542 millj­óna króna tap af vátrygg­inga­starf­semi TM. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna upp­gjörs­ins segir m.a.: „Rúmlega 500 m.kr tap af vátrygg­inga­starfs­semi skýrist meðal ann­ars af mik­illi aukn­ingu í fjölda eigna- og öku­tækjatjóna þar sem slæmt tíð­ar­far skiptir mestu. Fjórð­ung­ur­inn hefur verið bæði ill­viðra- og úrkomu­samur með þeim afleið­ingum að marg­földun hefur orðið í fjölda mála tengdum erf­iðum akst­urs­skil­yrðum, foki og óveðri. Því til stuðn­ings má nefna að tjón af völdum foks og óveð­urs voru tæp­lega 300 á fyrsta fjórð­ungi árs­ins 2015 en aðeins 2 á sama tíma í fyrra. Afkoma ábyrgðar- og slysa­trygg­inga var einnig nei­kvæð og undir vænt­ingum. Aðeins tveir greina­flokkar vátrygg­inga, sjó- og líf­trygg­ingar, skila hagn­aði. Í ljósi afleitrar afkomu af vátrygg­inga­starf­semi á fjórð­ungnum er ekki útlit fyrir að mark­mið um 95% sam­sett hlut­fall í lok árs náist.“

Á móti skil­uðu fjár­fest­ingar 872 millj­óna króna tekjum. Þær tekjur vógu því að ein­hverju leyti upp tap félags­ins af vátrygg­inga­starf­semi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár