Sjálfstæðisflokkurinn tapar fjórum prósentustigum milli kannana

Vinstri græn og Píratar bæta við sig fylgi milli kann­ana en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir umtals­vert af þeirri fylg­is­aukn­ingu sem hann mæld­ist með í mars.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist 23,5 pró­sent í nýj­ustu könnun MMR. Það hafði rokið upp í síð­ustu könnun á undan, sem birt var 23. mars, og mæld­ist þá 27,4 pró­sent, sem var mesta fylgi sem flokk­ur­inn hafði mælst með frá því um sum­arið 2017, eða fyrir síð­ustu kosn­ingar.

Þeir flokkar sem bæta mest við sig nú eru Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, sem mælist með 12,3 pró­sent fylgi og bætir við sig 2,5 pró­sentu­stigum, og Píratar, sem njóta stuðn­ings 12,2 pró­sent kjós­enda sem er tveimur pró­sentu­stigum meira en þeir mæld­ust með í mars.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina jókst milli mæl­inga um þrjú pró­sentu­stig og er nú 56,2 pró­sent. Alls hefur hann auk­ist um 17,4 pró­sentu­stig frá því í lok febr­úar, þegar sú krísa sem nú stendur yfir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum var ekki hafin að fullu hér­lendis.

[adspot]Sam­fylk­ingin mælist áfram næst stærsti flokkur lands­ins með 14,1 pró­sent fylgi sem er aðeins minna en flokk­ur­inn var með í mars. Mið­flokk­ur­inn, sem mæld­ist með 15,1 pró­sent fylgi í jan­úar, er nú með 10,7 pró­sent sem er undir kjör­fylgi hans.

Viðreisn stendur nán­ast í stað milli kann­ana og mælist með 9,6 pró­sent fylgi og fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins tekur aðeins við sér en nær samt ein­ungis 8,8 pró­sentum. Það er tölu­vert frá kjör­fylgi flokks­ins sem fékk 10,7 pró­sent í kosn­ing­unum 2017.

Flokkur fólks­ins er eina stjórn­mála­aflið sem á full­trúa á Alþingi í dag sem mælist ekki inni sem er. Fylgi flokks­ins er nú 3,4 pró­sent sam­kvæmt könnun MMR. Það er sama fylgi og Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með, en hann tapar 1,3 pró­sentu­stigi frá síð­ustu könnun.

Könnunin var fram­kvæmd 3. - 7. apríl 2020 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 987 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Allir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir eru þó enn að mæl­ast undir kjör­fylgi. Sam­an­lagt fengu þeir 52,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í októ­ber 2017 en mæl­ast nú með 44,6 pró­sent fylgi.

Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn mæl­ast hins vegar öll með meira fylgi en þau fengu í síð­ustu kosn­ingum. Sam­an­lagt nutu þessir þrír flokkar þá stuðn­ings 28 pró­sent kjós­enda en nú segj­ast 35,6 pró­sent þeirra styðja ein­hvern flokk­anna þriggja.

Mið­flokk­ur­inn er aðeins undir kjör­fylgi – fékk 10,9 pró­sent árið 2017 og mælist nú með 10,7 pró­sent – en stuðn­ingur við Flokk fólks­ins hefur helm­ing­ast.

Eins og staðan er í dag, sam­kvæmt könnun MMR, eru allar líkur á því að 8,9 pró­sent kjós­enda myndu kjósa flokka sem ólík­legt er að næðu inn manni á þing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár