Um milljarður af séreignarsparnaði hefur farið í húsnæðisútborgun

Mun færri hafa nýtt sér það úrræði að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn sem útborgun fyrir hús­næði en stjórn­völd reikn­uðu með. Nokkur þús­und manns hafa nýtt sér úrræðið og notað sam­tals 1,1 millj­arð króna til að afla sér hús­næðis.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson kynntu áætlun ríkisstjórnarinnar sem kölluð var Fyrsta fasteign.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son kynntu áætlun rík­is­stjórn­ar­innar sem kölluð var Fyrsta fast­eign. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls hafa 3.514 ein­stak­lingar nýtt sér heim­ild til að nota sér­eign­ar­sparnað sinn sem útborgun fyrir íbúð frá miðju ári 2014 og fram til loka mars 2017. Samtals hefur þessi hópur nýtt 1,1 millj­arð króna til að afla sér hús­næðis. Um er að ræða bæði þá sem höfðu átt hús­næði áður og þá sem voru að kaupa sér sína fyrstu fast­eign. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

[links]

Um er að ræða sam­blöndu tveggja úrræða. Annars vegar heim­ild sem allir Íslend­ingar fengu, sem hluta af Leið­rétt­ing­unni, til að nota sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn skatt­frjálst sem útborgun vegna hús­næð­is­kaupa. Sú heim­ild gildir frá miðju ári 2014 og fram til júníloka 2019. Hins vegar er um að ræða úrræði stjórn­valda fyrir fyrstu fast­eign­ar­kaup­endur, sem kall­ast „Fyrsta fast­eign“. Það snýst um að leyfa þeim sem eru að kaupa fyrstu fast­eign að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn skatt­frjálst til að greiða niður lán, nota sem útborgun eða lækka afborg­anir í tíu ár.

Ljóst er að nýt­ing á ofan­greindum úrræðum er langt frá því sem lagt var upp með þegar þau voru kynnt.

„Fyrsta fasteign“ átti að skila 15 milljarða skattafslætti

Fyrra úrræði, sem heim­il­aði notkun á sér­eign­ar­sparn­aði sem útborgun vegna hús­næð­is­kaupa frá miðju ári 2014 til júníloka 2019, hefur ekki nýst mörgum lands­mönnum. Kjarninn greindi frá því í fyrra að þegar tvö ár voru liðin af þeim tíma sem heim­ild til slíkra nota voru liðin höfðu lands­menn nýtt 520 millj­ónir króna í þeim til­gangi.

[adspot]

15. ágúst í fyrra, rúmum tveimur mán­uðum fyrir kosn­ingar, kynntu Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra síðan áætlun rík­is­stjórnar sinnar fyrir fyrstu fast­eigna­kaup­endur, sem kölluð var „Fyrsta fast­eign“. Í áætl­un­inni fólst að rík­is­sjóður myndi gefa fyrstu fast­eign­ar­kaup­endum 15 millj­arða króna skatta­af­slátt á tíu ára tíma­bili, ef þeir myndu kjósa að nota sér­eign­ar­sparnað til að kaupa hús­næði. Fyrstu fast­eign­ar­kaup­endum yrði auk þess gert kleift að nota sér­eign­ar­sparnað til að lækka mán­að­ar­legar afborg­anir lána sinn til við­bótar við að greiða hann beint inn á höf­uð­stól þeirra. Heild­ar­á­hrif aðgerð­anna, þ.e. sam­tala sér­eign­ar­sparn­aðar sem not­aður yrði sem útborgun og þess skatta­af­sláttar sem ríkið ætl­aði að gefa, átti að vera 50 millj­arðar króna.

Ef skatt­afslátt­ur­inn átti að ná að verða 15 millj­arðar króna þurftu 14 þús­und manns að nýta sér úrræðið strax á árinu 2017 og svo þyrftu um tvö þús­und manns að bæt­ast við á hverju ári.

Kjarninn kall­aði eftir tölum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu um hversu margir væru að nýta sér úrræðin tvö. Samkvæmt þeim tölum er nýt­ingin mun minni en reiknað var með í kynn­ingum stjórn­mála­mann­anna. Samtals hafa 3.514 ein­stak­lingar nýtt sér úrræðin tvö og þeir hafa sam­tals notað 1,1 millj­arð króna sem útborgun fyrir hús­næði. Samkvæmt því má ætla að veittur skatt­afsláttur rík­is­ins vegna úrræð­anna tveggja sé nú um 400 millj­ónir króna.

Ætluðu að banna „Íslandslán“ til sumra

Það var ýmis­legt fleira kynnt sem hluti af „Fyrstu fast­eign“. Bjarni og Sigurður Ingi kynntu til að mynda að lagt yrði fram frum­varp sem myndi banna völdum Íslend­ingum að taka 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán, svokölluð „Íslands­lán“. Stór hluti þjóð­ar­innar yrði reyndar und­an­skilin því banni því ungt fólk, tekju­lágir og ein­stak­lingar sem taka lán með lágu veð­setn­ing­ar­hlut­falli myndu áfram geta tekið þessi lán. Því var alls ekki verið að afnema verð­trygg­ingu með neinum hætti með stjórn­valds­á­kvörð­un­um með þess­ari aðgerð líkt og sumir vildu láta í veðri vaka.

Frum­varpið var lagt fram en umsagn­ar­að­ilar og þeir sér­fræð­ingar sem kall­aðir voru fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd voru flestir sam­mála um að mark­mið þess væri óljóst og að algjör­lega óvíst væri hvort þær leiðir sem lagðar voru til myndu skila nokkrum árangri. Stjórn­ar­þing­mað­ur­inn Vil­hjálmur Bjarna­son, sem sat í nefnd­inni, skil­aði sér­á­liti um málið og kall­aði frum­varpið „bjána­skap“. Það dag­aði á end­anum uppi og hefur ekki verið lagt fram aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár