Drottningarmaður dregur sig í hlé

Eitt helsta umræðu­efni Dana nú um ára­mótin var sú ákvörðun Hinriks drottn­ing­ar­manns að draga sig til baka, minnka við sig vinnu. Fara á eft­ir­laun eins og Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing orð­aði það þegar hún til­kynnti þetta í nýársávarpi sínu að kvöldi gaml­árs­dags.

Margrét Þór­hildur hefur iðu­lega sagt að starf danska þjóð­höfð­ingj­ans sé lífs­tíð­ar­starf, þar sé ekk­ert sem heiti eft­ir­launa­aldur. Sjálf verður drottn­ingin 76 ára í apríl og hefur, eftir nokkra daga, verið þjóð­höfð­ingi lands­ins í 44 ár. Henri de Monpeza, sem Danir nefna Henrik en við Íslend­ingar Hinrik, er sex árum eldri en Margrét Þór­hildur, fæddur 11. júní 1934. Þau kynnt­ust í veislu í London árið 1964, Hinrik var þá starfs­maður franska sendi­ráðs­ins þar í borg.

Hann hafði tveimur árum fyrr lokið her­skyldu sinni og magister­prófi í frönskum bók­menntum og asískum tungu­málum. Hinrik hafði mik­inn áhuga á listum og það hafði sessu­naut­ur­inn í fyrr­nefndri veislu líka og því eng­inn skortur á umræðu­efni. Hinrik sagði síðar að sér hefði aðeins brugðið þegar sessu­naut­ur­inn sagð­ist vera prinsessa og rík­is­arfi Dan­merkur. Þau hitt­ust svo aftur skömmu síðar, líka í veislu, og „uppúr því hæfði Amor okkur með örvum sínum“ sagði Hinrik síðar í við­tali.

Hann er franskur

Þegar sam­band rík­is­arfans og franska diplómatans spurð­ist út gerðu dönsku blöðin frétta­menn út af örk­inni til að afla upp­lýs­inga og margar greinar og myndir birt­ust í blöð­unum um þennan mann. Danir voru mjög for­vitnir. Ekki verður með sanni sagt að allir hafi orðið yfir sig hrifnir af manns­efn­inu og það tók dönsku þjóð­ina reyndar mörg ár að taka Hinrik í sátt. Þótt hann sé mik­ill tungu­mála­maður og tali meðal ann­ars bæði kín­versku og víetnömsku var hann mjög lengi að ná tökum á dönsk­unni og talar enn í dag með greini­legum frönskum hreim. Hann hefur síðar sagt að hann hefði átt að leggja meiri áherslu á dönsk­una í upp­hafi. Svo er hann Frakki, sögðu sumir, örugg­lega snobb, vill helst ost og rauð­vín og svo á hann það til að ganga í rauðum buxum.

Þau Margrét Þór­hildur og Hinrik voru gefin saman í Hólmsins kirkju í Kaup­manna­höfn 10. júní 1967. Hinrik sem var eftir það kall­aður prins sagði í við­tölum að sér væri mjög vel ljóst hlut­skipti sitt sem maka rík­is­arfans og hann sætti sig fylli­lega við að ganga alltaf tveimur skrefum á eftir henni, eins og hann orð­aði það. Þau Margrét Þór­hildur og Hinrik eign­uð­ust á næstu tveimur árum eftir að þau gengu í hjóna­band tvo syni, krón­prins­inn Friðrik 1968 og Jóakim 1969.

Margrét Þór­hildur varð þjóð­höfð­ingi Dana 14. jan­úar 1972, en faðir hennar Friðrik IX lést kvöldið áður. Þessi breyt­ing varð til þess að þau hjónin höfðu í mörg horn að líta og Hinrik hefur síðar sagt að hann sakni þess að hafa ekki getað varið meiri tíma med drengj­unum meðan þeir voru að vaxa úr grasi. Það reynir hann nú að bæta upp með barna­börn­unum og segir að sér líki afa­hlut­verkið vel, syn­irnir eiga fjögur börn hvor.

Prinsgemal - drottingarmaður

Eftir að barna­börnin komu til sög­unnar var prinsa- og prinsessu­kraða­kið á Amali­en­borg orðið svo mikið að ákveðið var að Hinrik prins fengi tit­il­inn prins­gemal, drottn­ing­ar­maður. Ekstra blaðið sagði frá því fyrir nokkrum árum að drottn­ing­ar­mað­ur­inn hefði í við­tali við franskt blað lýst óánægju með að vera ekki titl­aður kóngur. Hinrik hefur síðan stundum verið spurður um þetta og hefur þá svarað því til að það sé ein­kenni­legur siður (einsog hann kemst að orði) að kona sem gift er þjóð­höfð­ingja sé drottn­ing en maður sem giftur er þjóð­höfð­ingja sé ekki kall­aður kóngur. Þetta sé ekki jafn­rétti.

Vínbóndi

Þrátt fyrir skyldur og kvaðir sem fylgja eig­in­manni þjóð­höfð­inga hefur Hinrik drottn­ing­ar­maður haft mörg önnur járn í eld­inum.

Árið 1974 keyptu drottn­ingin og hann vín­bú­garð­inn Chateau de Cayx skammt frá æsku­heim­ili Hinriks í Suður- Frakk­landi. Þegar hjónin eign­uð­ust búgarð­inn þótti vínið frá Cayx ekk­ert til að hrópa húrra fyrir en Hinrik setti sér það mark­mið að fram­leiða gæða­vín og á síð­ustu árum hefur það unnið til fjölda verð­launa og við­ur­kenn­inga. Drottn­ingin hefur ekki komið nálægt fram­leiðsl­unni en iðu­lega dvalið þar á sumrin. Á síð­asta ári ákvað Hinrik að láta þrúgu­rækt­ina og fram­leiðsl­una í ann­arra hendur en þau hjónin eiga áfram búgarð­inn. Vínið frá Cayx mun eftir sem áður vera auð­kennt með kór­ónu og á flösku­mið­ana letrað „vin du prince de Danemark.“

Hinrik hefur allt frá æsku feng­ist við ljóða­gerð og sent frá sér átta ljóða­bækur, sumar þeirra hefur hann sjálfur mynd­skreytt og einnig notið aðstoðar drottn­ingar, sem er afkasta­mik­ill mynd­list­ar­maður.

Árum saman sótti hann tíma í högg­mynda­gerð á Kon­ung­lega lista­há­skól­anum og eftir hann er til fjöld­inn allur af brons­verkum. Í hitteð­fyrra efndi AROS lista­safnið í Árósum til stórrar sýn­ingar á verkum drottn­ingar og Hinriks. Sýningin, sem tæp­lega 300 þús­und manns sáu vakti mikla athygli.

Drottn­ing­ar­mað­ur­inn er áhuga­samur um mat og mat­ar­gerð, hann hefur, einn og í sam­vinnu við aðra, skrifað þrjár mat­reiðslu­bækur, og margoft komið fram í mat­ar­gerð­ar­þáttum í sjón­varpi. Þar nýtur kímni­gáfa hans sín vel, og öllum sem til þekkja ber saman um að hann sé mik­ill húmoristi. Ekki má gleyma því í þess­ari upp­taln­ingu að Hinrik er mik­ill áhuga­maður um tón­list og prýði­legur píanó­leik­ari. Hann hefur og samið nokkur tón­verk.

Eigin ákvörðun

Þegar Margrét Þór­hildur skýrði frá því að eig­in­mað­ur­inn færi nú á eft­ir­laun tók hún fram að þá ákvörðun hefði hann sjálfur tekið og hún virti hana að sjálf­sögðu. Drottn­ingin sagði jafn­framt að Hinrik yrði sér áfram sú ómet­an­lega stoð og stytta sem hann hefði verið í ára­tugi og tæki áfram þátt í mörgum opin­berum athöfnum og heim­sóknum. Hann væri semsé að minnka við sig en ekki að hætta.

Kom á óvart

Til­kynn­ing drottn­ingar vakti mikla athygli og hennar getið í fjöl­miðlum víða um heim. Dönsku blöðin fjöll­uðu ítar­lega um þessa ákvörðun Hinriks og sér­fræð­ingar og áhuga­fólk um fjöl­skyld­una á Amali­en­borg hafa rætt málið í útvarpi. Allir virð­ast sam­mála um að ákvörðun Hinriks sé skilj­an­leg, mað­ur­inn sé jú orð­inn nokkuð við aldur. Lögin um eft­ir­launa­aldur (67 ár) gildi ekki um kónga­fólkið og því verði það sjálft að meta og ákveða hvenær tími sé til kom­inn að hægja á. Mikla athygli vakti að Hinrik tók ekki þátt í opin­berum hátíða­höldum vegna 75 ára afmælis Mar­grétar Þór­hildar í apríl síð­ast­liðnum, hún til­kynnti að hann hefði fengið slæma inflú­ensu. Nokkrum dögum síðar sást hann hins­vegar í Feneyjum og danska Ekstra blaðið gat þess sér­stak­lega að hann hefði þar spíg­sporað í rauðum buxum.

Enginn er spá­maður í sínu föð­ur­landi segir mál­tækið. Þetta á að nokkru leyti við Frakkann Henri de Monpeza sem gerði Danmörku að sínu föð­ur­landi. Danir voru lengi að taka hann í sátt, það tók þá ára­tugi að sætta sig við að drottn­ing­ar­mað­ur­inn er ekki Dani, hann er á margan hátt öðru­vísi en makar margra ann­arra þjóð­höfð­inga. Iðulega hefur verið gert grín að hinum franska hreimi sem ein­kennir fram­burð Hinriks. Einn við­mæl­enda dag­blaðs­ins Politi­ken sagði að Danir ættu kannski að líta sér nær í þeim efnum, þeir væru nú ekki slíkir tungu­mála­snill­ingar. Og bætti svo við að það þyrfti að minnsta kosti ekki að texta það sem Hinrik segði í sjón­varpi, það væri meira en hægt væri að segja um marga danska leik­ara, jafn­vel í vin­sælum sjón­varps­þáttum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár