„Sjálfstæðisflokkurinn og VG eiga ekki að vera saman í ríkisstjórn“

Fyrr­ver­andi þing­flokks­for­maður VG segir að ástæðan fyrir því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og VG eigi ekki að starfa saman sé sú að „þar með svíkja þeir kjós­endur sína“. Það ger­ist nán­ast óhjá­kvæmi­lega.

Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður VG.
Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi þing­maður VG. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ögmundur Jónasson fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­flokks­for­maður Vinstri grænna telur að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og VG eigi ekki að vera saman í rík­is­stjórn nema „ef vera skyldi í Móðu­harð­indum eða heims­styrj­öld“. COVID dugi ekki til.

Þetta skrifar hann á blogg­síðu sína í dag. Fram kom í fjöl­miðlum í síð­ust viku að ný rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins yrði mynduð í þess­ari viku. Katrín Jak­obs­dóttir for­maður VG benti á í sam­tali við Kjarnann að flokk­arnir þrír væru ólíkir og auð­vitað ekki með sömu stefnu­skrá. „Það er krefj­andi verk­efni að búa til stjórn­ar­sátt­mála þó að við séum búin að vinna lengi sam­an. Svo þekkj­umst við nátt­úru­lega miklu betur en fyrir fjórum árum. Við vitum hvar pytt­irnir eru,“ sagði Katrín.

Ögmundur segir að COVID hafi dulið und­an­slátt stjórn­ar­flokk­anna gagn­vart lof­orðum sínum við kjós­endur. Það kall­ist mála­miðlun og hljómi betur.

„Samkvæmt mínum skiln­ingi hefur sú mála­miðlun á nýliðnu kjör­tíma­bili fyrst og fremst verið á kostnað félags­legra vinstri sjón­ar­miða. Það á við um mark­aðsvæð­ingu orkunnar, einka­væð­ingu og einka­fram­kvæmd víðs vegar um kerfið, eigna­söfnun í landi, aðgangur seldur að þjóð­garði og nátt­úru, kvóta­kerfið styrkt í sessi, grunn­net og bankar á markað, þátt­taka í her­væð­ingu og þjónkun við heimsauð­valdið í viður­eign þess við ríki sem neita að ger­ast því und­ir­gefin ...“ skrifar hann.

Hann bætir því við að ástæðan fyrir því að þessir stjórn­mála­flokkar eigi ekki að starfa saman sé sú að þar með svíkja þeir kjós­endur sína. Það ger­ist nán­ast óhjá­kvæmi­lega. „Þeir gefa sig nefni­lega út fyrir að vera merk­is­berar stefnu sem stang­ast á nán­ast að öllu leyti. Svo hefur það verið til þessa. Framsókn gætir þess að vera opin í báða enda þannig að hún svíki bara annan end­ann í einu.“

VG verði að kúvenda

Ögmundur segir að rauði þráð­ur­inn í aðdrag­and­anum að stofnun VG hafi einmitt verið sá að þráð­ur­inn yrði að vera rauður.

„Okkur fannst mörgum að áhuga­fólk um sam­fylk­ingu félags­hyggju­fólks í einum stjórn­mála­flokki sværi sig í ætt alþjóð­legs krat­isma sem á þessum árum gerð­ist mark­aðs­sinn­aðri með hverju árinu og hefði fjar­lægst mjög félags­legar rætur sínar, gerst hallur undir einka­væð­ingu og einka­fram­kvæmd, stutt alþjóða­væð­ingu á for­sendum fjár­magns­ins. Síðan voru það grænu áhersl­urnar. Þær voru að sjálf­sögðu mót­andi við hreið­ur­gerð hins nýja flokks. Samspil hins rauða og græna þótti eft­ir­sókn­ar­vert. Kröfur um jafn­rétti kynj­anna, jöfnuð og lýð­ræði setti og sitt mark á hina nýju hreyf­ingu og það ekki lítið.“

Hann segir að VG verði að kúvenda. „Sumt af þessu er enn til staðar hjá VG en aðrir þættir – þeir sem ég legg mest upp úr – hafa þynnst svo út að lit­grein­ingar er þörf til að koma auga á póli­tískan lit þeirra. Ef VG ætlar sér fram­halds­líf með skírskotun til vinstri í heiti sínu þarf flokk­ur­inn að kúvenda og ger­ast alvöru vinstri flokkur á ný. Það mun ekki ger­ast með fram­haldi á núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starfi.“

Nokkrir valkostir

Þá spyr Ögmundur: „Hvað þá?“

„Stjórn­ar­and­staða er val­kostur – og hann er ekki slæmur – það er að segja ef hann yrði til þess að tekin yrði upp bar­átta fyrir vinstri stefnu. VG, Sam­fylk­ing og Framsókn gætu líka myndað meiri­hluta ásamt Flokki fólks­ins. Slík sam­setn­ing yrði miklu skárri en núver­andi mynstur, synd að hafa ekki sós­í­alista í þingsalnum í stjórn eða utan stjórnar til að hvetja til veg­ferðar til vinstri. Viðreisn stendur lengst til hægri og því frá­leitur val­kostur og Píratar vilja ekki láta kenna sig við félags­hyggju. Þeirra meg­in­mál er að opið sé fram á gang svo allir heyri allt sem sagt er inni. En sama er hvað sagt er, það er vand­inn. Krafa Pírata um gagn­sæi er góð og hún er virð­ing­ar­verð en meira þarf að koma til fyrir minn smekk. Mér sýn­ist Mið­flokk­inn helst langa til að standa til hægri og það gerir hann. Mið­flokk­ur­inn hefur þó átt góða spretti og nefni ég þar orku­pakka­málið.“

Hann telur að Framsókn sé kleif­huga flokkur með „sumt það versta úr íslenskri hags­munapóli­tík inn­an­borðs (áhrifin úr þeirri átt fara að vísu dvín­andi) en líka margt það besta“. Í þá átt þurfi að horfa og virkja sam­vinnu­taug­ina. Svo þurfi að minna Sam­fylk­ing­una á allar yfir­lýs­ingar hennar um að hún sé jafn­að­ar­manna­flokkur.

„Það þarf að hjálpa þeim flokki að trúa því að svo sé í raun. Og viti menn eini þing­mað­ur­inn á Alþingi sem greiddi atkvæði gegn einka­fram­kvæmd­ar­frum­varpi Sigurðar Inga for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins (sem flutt var í nafni rík­is­stjórn­ar­innar) var þegar allt kemur til alls Sam­fylk­ing­ar­konan Oddný Harð­ar­dóttir. Aldrei myndu þau greiða þannig atkvæði núver­andi og fyrr­ver­andi for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins þau Bjarni Bene­dikts­son og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir.

Hin sem sátu í rík­is­stjórn á nýliðnu kjör­tíma­bili gerðu það ekki heldur. En einmitt því þarf að breyta,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár