Bjarni segist hafa trú á að ný ríkisstjórn verði mynduð í næstu viku

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að myndun rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sé á loka­metr­unum. Hann von­ast til að vinnan við það fari að klár­ast. Gengið út frá því að Katrín Jak­obs­dóttir verði áfram for­sæt­is­ráð­herra.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist hafa trú á að það verði unnt að mynda nýja rík­is­stjórn flokks hans með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki í næstu viku. Nýta þurfi kom­andi helgi og dag­anna þar á eftir vel og þá trúi hann því að vinnan fari að klár­ast. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir enn fremur að þótt tím­inn sé naumur muni ný rík­is­stjórn setja mark sitt á fjár­laga­frum­varp næsta árs, að sögn Bjarna.

Í dag eru 39 dagar frá síð­ustu kosn­ing­um. Einu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar sem átt hafa sér stað eftir þær eru á milli þeirra þriggja flokka sem störf­uðu saman í rík­is­stjórn á síð­asta kjör­tíma­bili. Við­ræður þeirra hafa nú staðið yfir í lengri tíma en það tók að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar 2017, þrátt fyrir að reynt hafi verið við tvö mis­mun­andi form þá.

Yfir­stand­andi við­ræður eru orðnar þær næst lengstu sem staðið hafa yfir í 30 ár. Eina skiptið sem það hefur tekið lengri tíma að mynda rík­is­stjórn á því tíma­bili er eftir kosn­ing­arnar 2016, þegar reynt var við fjöl­mörg stjórn­ar­mynstur áður en rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartar fram­tíðar var mynduð 74 dögum eftir kosn­ingar.

Fengu skýran meirihluta

Sitjandi rík­is­stjórn­ar­flokkar fengu góðan meiri­hluta í síð­ustu kosn­ingum og bættu sam­eig­in­lega við sig þing­mönnum, en þeir voru alls 37 eftir kosn­ingar og urðu 38 eftir að Bigir Þór­ar­ins­son gekk óvænt í Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Vinstri græn töp­uðu þó umtals­verðu fylgi milli kosn­inga og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði einnig lít­il­lega, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætti vel við sig. Sú staða hefur kallað á breytt valda­hlut­föll milli flokk­anna og heim­ildir Kjarnans herma að búast megi við upp­stokkun í því hvaða ráðu­neyti hver flokkur fær og jafn­vel fjölgun ráðu­neyti, eða að minnsta kosti breyttum hlut­verkum sumra þeirra.

[adspot]Fyrir liggur þó að Katrín Jak­obs­dóttir verður áfram for­sæt­is­ráð­herra í næstu rík­is­stjórn.

Ólíkt því sem var eftir kosn­ing­arnar 2017 áttu flokk­arnir líka aðra nokkuð skýra mögu­leika í stjórn­ar­myndun sem gætu, að minnsta kosti á blaði, átt meiri hug­mynda­fræði­lega sam­leið. Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur gætu myndað rík­is­stjórn frá miðju til Vinstri með aðkomu Sam­fylk­ingar og Pírata. Sömu­leiðis væri hægt að mynda rík­is­stjórn frá miðju til hægri með Fram­sókn­ar­flokki, Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn, eða jafn­vel Mið­flokki. Þessir kostir hafa þó ekki verið kann­aðir sem neinu nemur af sitj­andi stjórn­ar­liðum sem hafa ein­beitt sér að því að end­ur­nýja hið óvenju­lega sam­starf frá vinstri, yfir miðju og til hægri sem stofnað var til fyrir fjórum árum.

Loftslagsmál og aðgerðir vegna þeirra ásteytingarsteinn

Í frétta­skýr­ingu sem Kjarninn birti á mánu­dag kom fram að stór og krefj­andi verk­efni væru framundan og það lit­aði við­ræð­urnar. End­­ur­reisn efna­hags­lífs­ins eftir kór­ón­u­veiru­far­aldur og næsta stóra lota kjara­­samn­inga­við­ræðna, sem hefst á fullu á næsta ári, skipta þar miklu.

Svo eru það skatta- og lofts­lags­­mál og sam­­spili þeirra við efna­hags­­stefnu næstu rík­­is­­stjórn­­­ar.

Þar eiga stjórn­ar­flokk­arnir erf­ið­ara að ná saman en ann­ars­staðar. Hug­myndir Vinstri grænna um aðgerðir til að bregð­ast við loft­lags­vánni eru allt aðrar en hug­myndir hinna flokk­anna tveggja, sem snú­ast um að uppi­stöðu um að virkja meira til að auka það magn af end­ur­nýj­an­legri orku sem Ísland getur nýtt, eða selt. Í stefnu­skrá Vinstri grænna er hins vegar sagt að neyð­ar­á­stand ríki vegna loft­lags­mála, að flokk­ur­inn vilji við­halda ramma­á­ætlun sem stjórn­tæki til að ákveða hvað verði virkjað og ef það þurfi nýjar virkj­anir þurfi að ríkja sátt um það hvernig orkunnar er afl­að. „Mestu skiptir að það verði gert af var­færni gagn­vart við­kvæmri nátt­úru lands­ins og í takti við vax­andi notk­un, til að mæta fólks­fjölgun og þörfum grænna og með­al­stórra fyr­ir­tækja en ekki í ein­staka stórum stökk­um.“

Uggur vegna loft­lags­mála­skýrslu

Það hversu við­kvæm þessi mál eru sést vel á því að þegar íslensk stjórn­­völd skil­uðu skýrslu sinni um lang­­tíma­á­ætlun í loft­lags­­málum til Lofts­lags­­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNFCCC) í aðdrag­anda COP26, lofts­lags­fundar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem hefst í Glasgow í Skotlandi í dag. Skýrslan var birt fyrir helgi og olli miklum titr­ingi á bak­við tjöld­in, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

[links]Í frétt stjórn­ar­ráðs­ins vegna birt­ingu skýrsl­unnar segir að hún byggi á fyr­ir­liggj­andi stefnu­mörkun og áætl­unum og varpi „ljósi á þær ákvarð­anir sem þarf að taka á næstu árum til að mark­mið Íslands um kolefn­is­hlut­leysi náist. Í skýrsl­unni er greint frá þegar sam­þykktum mark­miðum stjórn­valda og síðan fjallað um mögu­legar leiðir að kolefn­is­hlut­leysis.

Í skýrsl­unni, sem birt var af umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­inu sem lýtur stjórn Guð­mundar Inga Guð­brands­son­ar, vara­for­manns Vinstri grænna, var gerð grein fyrir fimm mis­­mun­andi sviðs­­myndum um þróun sam­­fé­lags­ins og rýnt í áhrif þeirra á losun gróð­­ur­húsa­­loft­teg­unda og bind­ingu kolefnis fram til árs­ins 2040. Í einni sviðs­mynd­inni er gert ráð fyrir að álf­ram­leiðsla á Íslandi drag­ist saman um helm­ing og í annarri að hún hverfi alveg. Þetta hefur farið öfugt ofan í hags­muna­sam­tök atvinnu­lífs­ins, sér­stak­lega þau sem gæta hags­muna áliðn­að­ar­ins, og ýmsa innan stjórn­ar­flokk­anna sem líta á orku­skipti sem tæki­færi til auk­ins hag­vaxt­ar, en ekki sem tæki­færi til að draga úr starf­semi meng­andi iðn­aðar á Ísland­i. Heim­ildir Kjarn­ans herma að þessar sviðs­myndir hafi ekki verið ræddar sem neinu nemur milli stjórn­ar­flokk­anna áður en þær voru settar fram.

Skatta­mál, aukin kostn­aður og heil­brigð­is­mál

Skatta­mál verða líka erfið viður­eignar hjá næstu rík­is­stjórn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lof­aði til að mynda því að taka upp þrepa­skipt trygg­inga­gjald og fleiri þrep í tekju­skatti fyr­ir­tækja þar sem hreinn hagn­aður fyr­ir­tækja umfram 200 millj­­ónir króna verður skatt­lagður á móti lækkun til lít­illa og með­­al­stórra fyr­ir­tækja.

[adspot]Vinstri græn lof­uðu því að taka upp þrepa­­skiptan fjár­­­magnstekju­skatt, nota skatt­­kerfið frekar til að jafna kjör og nýta það til að styðja við mark­mið í loft­lags­­mál­­um.

Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn er enda með ólíkar áherslur en ofan­­greindar í flestum þessum mála­­flokk­­um.

Heil­brigð­is­málin eru líka flókið við­fangs­efni. Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn hefur mik­inn áhuga á að taka yfir heil­brigð­is­ráðu­­neytið og hefur talað fyrir auknum einka­rekstri innan þess kerf­is.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tók að hluta til undir þær áherslur í aðdrag­anda kosn­inga og sagð­ist vilja skoða „hvort frek­­ari til­­efni sé til auk­ins einka­­rekst­­urs innan heil­brigð­is­­geirans.“

Vinstri græn vilja hins vegar auka fjár­­­fest­ingu í innviðum heil­brigð­is­­kerf­is­ins og auka geta opin­bera hluta þess, í stað þess að auka hluta einka­­geirans. Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra þurfti að sæta mik­illi gagn­rýni frá Sjálf­stæð­is­flokknum á síð­asta kjör­tíma­bili vegna stefnu sinnar í mála­flokknum og þykir ólík­leg til að sam­þykkja kúvend­ingu innan hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár