Eigið fé Síldarvinnslunnar nú 50 milljarðar króna

Síld­ar­vinnslan hefur verið dug­leg við að kaupa upp afla­heim­ildir síð­ust ár. Hún er að uppi­stöðu í eigu Samherja og fjöl­skyldu­fyr­ir­tækis ann­ars for­stjóra Samherja. Saman halda útgerðir sem tengj­ast for­stjórum Samherja á um 20 pró­sent af öllum kvóta.

Þorsteinn Már Baldvinsson, annar forstjóri Samherja, er stjórnarformaður Síldarvinnslunnar.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóri Samherja, er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar. Mynd: Hringbraut

Síld­ar­vinnslan ehf. átti eigið fé upp á 360,5 millj­ónir dala um síð­ustu ára­mót. Á með­al­gengi síð­asta árs gerir það 44 millj­arða króna en á gengi dags­ins í dag er eigið fé um 50 millj­arðar króna. Veiking á gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal það sem af er árinu 2020 hefur því aukið virði þess eig­in­fjár sem Síld­ar­vinnslan átti um ára­mót um næstum sex millj­arða króna þar sem félagið gerir upp í Banda­ríkja­dal.

Þetta má lesa úr árs­reikn­ingi Síld­ar­vinnsl­unnar.

[links]Fyr­ir­tækið til­kynnti um síð­ustu helgi að dótt­ur­fé­lag þess, Bergur-Huginn ehf., hefði keypt allt hlutafé í útgerð­ar­fé­lag­inu Bergi ehf. í Vest­manna­eyjum. Við kaupin 0,36 pró­sent af heild­ar­kvóta yfir­stand­andi fisk­veiði­árs yfir til Bergs-Hug­ins. Við kaupin fer afla­hlut­deild Bergs-Hug­inn upp í 2,7 pró­sent af heild­ar­kvóta til umráða.

Kaup­verðið var ekki gefið upp en Bergur ehf. hefur verið í mjög góðum rekstri og kaupin á útgerð­inni hafa því ekki verið ódýr. Rekstr­ar­tekjur hennar í fyrra voru 505 millj­ónir króna og juk­ust um 36 pró­sent milli ára. Hagnaður var 117 millj­ónir króna og á grunni hans var sam­þykkti stjórn Bergs að greiða hlut­höfum 100 millj­ónir króna í arð vegna árs­ins 2019. Eignir félags­ins voru metnar á 513 millj­ónir króna og eigið fé þess sagt 406 milj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 79,1 pró­sent. Bergur ehf. var að uppi­stöðu í eigu Sævalds Páls­sonar og barna hans.

Veiði­heim­ildir Bergs voru bók­færðar á 252 millj­ónir króna í árs­reikn­ingi en lík­legt verður að telja að þær hafi verið metnar á meira í við­skipt­unum, ef miðað er við algengt virði á kvóta í við­skiptum. Ef horft er til að mynda til þess verðs sem Brim greiddi fyrir afla­heim­ildir Ögur­víkur síðla árs 2018 þá var það 15 sinnum yfir bók­færðu verði.

Miðað við algengt virði á kvóta í við­skiptum, og upp­lausn hans, þá hefur verið talið að heild­ar­virði alls úthlut­aðs kvóta sé um 1.200 millj­arðar króna. Vert er að taka fram að sumar teg­undir eru verð­mæt­ari en aðrar og því er ekki að öllu leyti hægt að ákvarða vænt mark­aðsvirði þess kvóta sem hver útgerð heldur á út frá heild­ar­út­hlutun.

Sterk tengsl við Samherja

Veiði­heim­ildir Síld­ar­vinnsl­unnar voru bók­færðar á 228,3 millj­ónir dala um síð­ustu ára­mót. Á gengi dags­ins í dag gera það um 32 millj­arðar króna. Félagið hefur á und­an­förnum árum keypt mikið magn af kvóta á mark­aði og sam­stæðan hefur einnig fjár­fest mikið, meðal ann­ars í nýjum skipum.

[adspot]Rekstr­ar­hagn­aður Síld­ar­vinnsl­unnar á síð­asta ári var um 8,8 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag og end­an­legur hagn­aður eftir skatta um 5,6 millj­arðar króna. Eigið féð var, líkt og áður sagði, um 50 millj­arðar króna.

Síld­ar­vinnslan heldur beint á 5,2 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla. Auk þess heldur Bergur-Huginn, sem er að öllu leyti í hennar eigu, nú á á um 2,7 pró­sent alls kvóta. Auk þess á Síld­­ar­vinnslan 75,20 pró­­sent hlut í Run­ólfi Hall­freðs­­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta.

Stærsti ein­staki eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Samherji hf. með 44,6 pró­sent eign­ar­hlut. Auk þess á Kald­bak­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Samherji á því, beint og óbeint, 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni. Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóri Samherja, er stjórn­ar­for­maður félags­ins. Auk þess á Síld­ar­vinnslan 0,92 pró­sent í sjálfri sér, sem þýðir að sam­an­lagður eig­in­hlutur hennar og eign­ar­hluti stærsta eig­and­ans fer nálægt 51 pró­senti.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­sögu allra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­­sent. ­Út­­­­­gerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­­sent hans.

Sam­an­lagt er þessi blokk Samherja og Síld­ar­vinnsl­unnar með að minnsta kosti 17,5 pró­­­sent afla­hlut­­­deild.

Ekki tengdir aðilar samkvæmt lögum

Næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er félagið Kjálka­nes ehf. Á meðal helstu hlut­hafa þess er Björgólfur Jóhanns­son, hinn for­stjóri Samherja, og fjöl­skylda hans. Sami hópur á einnig útgerð­ar­fé­lagið Gjögur, sem heldur á 2,29 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum. Ef sá kvóti er talin með ofan­greindu er ljóst að rétt undir fimmt­ungur (19,79 pró­sent) af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum lands­ins eru á höndum fyr­ir­tækja sem eru að ein­hverju leyti í eigu þeirra tveggja manna sem sitja í for­stjóra­stólum Samherja.

Gildandi lög skil­­greina aðila í sjá­v­­­ar­út­­­vegi þó ekki tengda nema einn eigi meiri­hluta í öðr­­um. Því eru Sam­herji og Síld­­ar­vinnslan ekki skil­­greind sem tengdir aðil­ar og Gjögur og Síld­ar­vinnslan ekki heldur, enda undir 50 pró­sent mörk­unum líkt lög heim­ila. Í til­felli Samherja er hann eins lítið undir þeim og mögu­legt er, eða 0,01 pró­sent. Það að skil­greina aðila tengda út frá meiri­hluta­eign eru mjög há mörk í sam­an­burði við það sem tíðkast ann­ars staðar hér­lend­is.

Í lögum um skrán­ingu raun­veru­­legra eig­enda og í frum­varpi til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna skatt­lagn­ingar tekna erlendra lög­­að­ila í lág­skatta­­ríkj­um, sam­skött­unar félaga, tak­­mörk­unar á frá­­drætti vaxta­gjalda og skatt­lagn­ingar útsendra starfs­­manna er til dæmis miðað við 25 pró­­sent beinan eða óbeinan eign­­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­­legur eig­and­i.

Rannsókn hætt vegna anna

Fiski­stofa réðst í frum­kvæð­is­rann­sókn á árunum 2009 og 2010 á því hvort að telja ætti Samherja, Gjögur (hlutur Gjögurs í Síld­ar­vinnsl­unni var færð yfir í Kjálka­nes árið 2015) og Síld­ar­vinnsl­una sem tengda aðila. Nið­ur­staðan var sú að engin rök væru fyrir því að Samherji og Gjögur færu með raun­veru­leg yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni.

[adspot]Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákvað í kjöl­farið að kanna hvort að Samherji, Gjögur og Síld­ar­vinnslan væru ótengd líkt og þau hefðu haldið fram. Rannsókn máls­ins leiddi í ljós umtals­verða sam­vinnu milli þess­ara fyr­ir­tækja í útgerð, fisk­vinnslu og sölu afurða auk þess sem við blasti að Samherji og Gjögur áttu full­trúa í stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar. Í ljósi þessa var það nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að óhjá­kvæmi­legt væri að hefja nýtt stjórn­sýslu­mál til að rann­saka tengslin frekar.

Nærri fimm árum síðar spurð­ist blaða­maður Frétta­blaðs­ins fyrir um gang rann­sókn­ar­innar. Svörin sem hann fékk voru þau að rann­sókn­inni hefði verið hætt. Ekki vegna þess að til­efnið skorti, heldur vegna þess að málið hafði dagað uppi hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna seina­gangs og því þótti ekki for­svar­an­legt annað en að ljúka því án nið­ur­stöðu. Það hefði ein­fald­lega verið of mikið að gera hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Kjarn­inn greindi frá því fyrir ári síðan að þegar Sam­herji kynnti sam­­stæðu sína erlendis, tveimur árum eftir að þessi nið­ur­staða Fiski­stofu lá fyrir, hafi Síld­­ar­vinnslan verið kynnt sem upp­­­sjá­v­­­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta sýndu glæru­kynn­ingar sem voru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks birti vegna Sam­herj­­a­­máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár