Áætlað mat aðgerðapakkanna var 232 milljarðar en áhrifin í dag eru 85 milljarðar

Beinn kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þeirra aðgerða sem kynntar hafa verið til leiks til að aðstoða fyr­ir­tæki og heim­ili lands­ins er umtals­vert minni en kynnt var á blaða­manna­fundum rík­is­stjórn­ar­innar.

Beinn kostn­aður rík­is­sjóðs vegna úrræða sem kynnt hafa verið til leiks til að hjálpa fyr­ir­tækjum og heim­ilum lands­ins fjár­hags­lega í yfir­stand­andi heims­far­aldri er 38,2 millj­arðar króna til þessa. Til við­bótar hafa 19,5 millj­arðar króna farið í frestun skatt­greiðslna, 20 millj­arðar króna í frestun aðflutn­ings­gjalda og 6,6 millj­arðar króna hafa verið lán­aðir með rík­is­á­byrgð. Allt eru þetta þó fjár­munir sem munu skila sér aftur í rík­is­kass­ann. Því er sam­an­lagður kostn­aður vegna beinna greiðslna og til­færslna eða ábyrgða rík­is­sjóðs um 85 millj­arðar króna. Upp­haf­legt mat á heild­ar­kostn­aði aðgerð­anna, sem sumar hverjar eru ekki á enda runnar, var 232,2 millj­arðar króna.

Þótt enn eigi eftir að falla til kostn­aður vegna aðgerð­ar­pakk­anna er ljóst að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þeirra verður mun minni en kynnt var á blaða­manna­fundum stjórn­valda þegar pakk­arnir voru kynntir til leiks.

Þetta kemur fram í skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um nýt­ingu efna­hagsúr­ræða vegna yfir­stand­andi heims­far­ald­urs COVID-19.

Sú aðgerð sem kostað hefur mest er hluta­bóta­leiðin svo­kall­aða. Beinn kostn­aður vegna hennar til þessa er 19,8 millj­arðar króna, en upp­haf­legt kostn­að­ar­mat var að hún myndi kosta 34 millj­arða króna. Flestir voru á hluta­bótum í apríl, eða alls 33 þús­und manns, en síðan hefur fækkað veru­lega í þeim hópi. Í dag eru um 3.500 manns að nýta leið­ina.

Fyrst voru hámarks­greiðslur allt að 75 pró­sent af launum upp að ákveðnu þaki, en það var síðar lækkað niður í 50 pró­sent. Samhliða þeirri lækkun var tekið fyrir að fyr­ir­tæki sem ætl­uðu að greiða arð, kaupa eigin bréf, greiða óum­s­anda bónusa eða borga helstu stjórn­endum yfir þrjár millj­ónir króna á mán­uði gætu nýtt sér leið­ina.

Tvær aðgerðir 80 prósent af beinum kostnaði

Búið er að greiða 10,5 millj­arða króna í svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki. Þegar frum­varp um upp­­­sagn­­­ar­­­styrki var lagt fram um miðjan maí var gert ráð fyrir því að bein útgjöld rík­­­is­­­sjóðs vegna úrræð­is­ins yrðu 27 millj­­­arðar króna. Því er upp­hæðin sem greidd hefur verið út enn sem komið er ein­ungis 39 pró­sent af ætl­aðri upp­hæð.

Styrkirnir fela í sér að rík­is­sjóðir veitir ákveðnum fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir umfangs­miklu tekju­tapi, eða að minnsta kosti 75 pró­sent, styrki til að eyða ráðn­­­­ing­­­­ar­­­­sam­­­­böndum þeirra við starfs­­­­fólk sitt.

[adspot]Þessar tvær leiðir, hluta­bóta­leiðin og upp­sagn­ar­styrkirnir, hafa því kostað 30,3 millj­arða króna til þessa og eru tæp­lega 80 pró­sent allra beinna fjár­út­láta rík­is­sjóðs vegna aðgerða sem kynntar hafa verið til leiks.

Til við­bótar við þessar aðgerðir voru greiddir út þrír millj­arðar króna í sér­staka barna­bóta­auka upp á 40 þús­und krónur fyrir hvert barn sem for­eldri eða for­eldrar sem eru með undir 11,1 milljón krónur í sam­eig­in­legar tekjur, og 20 þús­und krónur til þeirra sem eru með tekjur yfir þeim mörkum. Þetta átti að gera vegna „rask­ana af völdum far­ald­urs­ins“.

Þessi kostn­að­ar­tala stóðst að næstum öllu leyti enda um bein fjár­út­lát úr rík­is­sjóði að ræða og nokkuð ein­falt að reikna út hvað hvert for­eldri átti að fá út frá skatt­skýrslum þeirra.

Ferðagjöf og gistináttarskattur

Aðrir leiðir eru líka langt undir upp­haf­legu mati á heild­ar­á­hrifum. Greiðslur launa í sótt­kví voru áætl­aðar tveir millj­arðar króna en eru um 300 millj­ónir króna.

Ferða­gjöfin svo­kall­aða hefur útheimt kostnað upp á 600 millj­ónir króna. Þegar aðgerðin var kynnt af stjórn­­völdum kom fram að með þessu fram­taki ætti að gefa Íslend­ingum eldri en 18 ára sam­tals 1,5 millj­­arð króna til að örva vilja þeirra til inn­­­lendrar neyslu og ferða­laga. Í dag hefur þjóðin sam­tals eytt um 40 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem stjórn­völd kynntu að aðgerðin ætti að kosta.

Lok­un­ar­styrkir voru metnir á 2,5 millj­arða króna en fram til þessa er búið að greiða út einn millj­arð króna. Nið­ur­fell­ing gistin­átt­ar­skatts var metin á 1,6 millj­arða króna en hefur kostað 300 millj­ónir króna og nið­ur­fell­ing toll­af­greiðslu­gjalda átti að kosta 600 millj­ónir króna en hefur kostað 200 millj­ónir króna.

Mun færri frestuðu staðgreiðslu en talið var

Ein af fyrstu aðgerð­unum sem íslensk stjórn­völd gripu til vegna efna­hags­legra afleið­inga af kór­ónu­veiru­far­ald­inum var að veita fyr­ir­tækjum í land­inu frest á greiðslu á helm­ingi trygg­ing­ar­gjalds og stað­greiðslu opin­berra gjalda sem voru á gjald­daga í mars. Þetta var ákveðið 12. mars, fjórum dögum áður en að eindagi þeirra gjalda átti að vera. Þeim eindaga var frestað um mánuð upp­haf­lega, og síðar þangað til í jan­úar á næsta ári. Gert var ráð fyrir að þetta myndi seinka tekjum til rík­is­sjóðs upp á 22 millj­arða króna.

Þegar rík­is­stjórnin kynnti svo fyrsta efna­hag­s­pakka sinn 21. mars var ein dýrasta aðgerðin þar sú að fresta mætti þremur gjald­dögum stað­greiðslu og trygg­ing­ar­gjalds á tíma­bil­inu 1. apríl til 1. des­em­ber til við­bótar ef fyr­ir­tæki gæti mætt ákveðnum skil­yrð­um. Áætluð áhrif þess voru 75 millj­arðar króna.

Hingað til hefur frestun stað­greiðslu tálmað greiðslu á 19,5 millj­örðum króna í rík­is­sjóð, eða um 26 pró­sent af upp­haf­legu mats­upp­hæð­inni.

Til við­bótar var boðið upp á að fresta greiðslu aðflutn­ings­gjalda. Þar hefur nýt­ingin, alls 20 millj­arðar króna, verið umfram upp­haf­legu áætl­un­ina sem var 13 millj­arðar króna.

Þá stendur eftir að fólki var gert kleift að taka út sér­eign­ar­sparnað sinn, sem er í raun aðgerð sem eykur tekjur rík­is­sjóðs í dag þar sem útgreiðsl­urnar eru skatt­lagðar. Áætlað var að fólk myndi taka út 9,5 millj­arða króna en reyndin er sú að upp­hæðin hefur verið 18,8 millj­arðar króna.

Lánin sem voru ekki tekin

Ein helsta aðgerðin sem rík­is­stjórnin kynnti til leiks í mars var að veita fyr­ir­greiðslu til að auð­velda við­bót­ar­lán lána­stofn­ana til fyr­ir­tækja. Þetta átti að gera þannig að ríkið semdi við Seðla­banka Íslands um að færa lána­stofn­unum aukin úrræði til að veita við­bót­ar­fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja, í formi brú­ar­lána, sem orðið hefðu fyrir veru­legu tekju­tapi vegna yfir­stand­andi aðstæðna. Seðla­bank­inn myndi þannig veita ábyrgðir til lána­stofn­ana sem þær nýta til að veita við­bót­ar­lán upp að um 70 millj­arða króna.

Aðal­við­skipta­bankar fyr­ir­tækja áttu að veita þessa fyr­ir­greiðslu og aðgerðin var í heild metin á um 80 millj­arða króna að teknu til­liti til auk­innar útlána­getu banka vegna lækk­unar á banka­skatti, sem átti að aukast um tæp­lega 11 millj­arða króna. Ríkið reikn­aði sín áhrif af þessu á 35 millj­arða króna.

[links]Í dag hafa brú­ar­lán verið veitt upp á 700 millj­ónir króna.

Svokölluð stuðn­ings­lán, einnig kölluð sér­stök lán til lít­illa fyr­ir­tækja, voru kynnt í aðgerð­ar­pakka tvö. Til að telj­ast til slíkra fyr­ir­tækja þurfti að vera með tekjur undir 500 millj­ónum króna á ári. Lán­in, sem njóta 100 pró­sent rík­is­á­byrgð­ar, standa ein­ungis fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­falli til boða, sem er sama skil­yrði og gildir fyrir hin svoköll­uðu brú­ar­lán til stærri fyr­ir­tækja sem kynnt voru til leiks mán­uði áður.

Lánin til fyr­ir­tækj­anna átti að verða hægt að sækja um með ein­földum hætti á Island.is en þau nema að hámarki sex millj­ónir krónur á hvert fyr­ir­tæki. Heild­ar­um­fang lán­anna átti að geta orðið allt að 28 millj­arðar króna í heild, að mati stjórn­valda.

Enn sem komið er nemur umfang þeirra 6,3 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár