„Örkin hans Nóa“ stórsköðuð eftir eldana

Á þess­ari stundu veit eng­inn hver áhrif eld­anna í Ástralíu nákvæm­lega eru. Fornir skógar brunnu og heim­kynni fágætra dýra­teg­unda sömu­leiðis. Vist­kerfin þurfa að jafna sig en óvíst er hvort þau fái nægan tíma. Næsta heita sumar nálg­ast þegar.

Hræ kengúru í girðingu á Kengúrueyju. Eyjan hefur oft verið kölluð Örkin hans Nóa.
Hræ kengúru í girð­ingu á Kengúru­eyju. Eyjan hefur oft verið kölluð Örkin hans Nóa. Mynd: EPA

Kengúru­eyju í Suður-Ástralíu hefur verið líkt við Örkina hans Nóa vegna hins ein­staka líf­ríkis sem þar þrífst. En eftir mikla skóg­ar­elda sem log­uðu á eyj­unni vikum saman er ótt­ast hún verði aldrei söm. Rúmlega þriðj­ungur hennar að minnsta kosti er brunn­inn. Dýr sem þar bjuggu eru á lista stjórn­valda yfir þær teg­undir sem eru í hvað mestri hættu eftir ham­fara­eldana. Nú er loks­ins farið að rigna og síð­ustu glæður elda ástr­alska sum­ars­ins að slokkna.

Ástr­alska land­bún­að­ar­ráðu­neytið gaf út lista í gær. Á honum er að finna 113 dýra­teg­undir sem þurfa á nauð­syn­legri hjálp að halda eftir skóg­ar­eldana. Á list­anum eru þrettán teg­undir fugla, 20 teg­undir skrið­dýra, 17 frosk­teg­undir, yfir þrjá­tíu teg­undir ferskvatns­fiska og nítján spen­dýra­teg­undir.

Gróð­ur­eldar kvikna í Ástralíu á hverju ári og hafa gert í árþús­und. „Við erum eldálfan á hnett­inum,“ segir Tom Griffiths, sagn­fræði pró­fessor við Háskól­ann í Nýja Suður-Wales. „Þannig að það er ekki að undra að við höfum áhyggjur af eldum fram­tíð­ar­innar nú þegar spáð er heit­ara loft­lagi.“

En eld­arnir sem logað hafa í land­inu frá því í byrjun sept­em­ber eru for­dæma­lausir. Á fimm mán­uðum brunnu að minnsta kosti um 85 þús­und fer­kíló­metrar lands. Þrjátíu og þrír menn lét­ust, þús­undir heim­ila eyðilögð­ust og kol­svartur og þykkur reykur lagð­ist yfir borgir og bæi. Áhrifin á hið ein­staka líf­ríki Ástralíu eru enn ekki fylli­lega ljós. Það eina sem hægt er að full­yrða er að þau eru mikil.

[links]Þegar Nan Nicholson sá reyk rísa frá Terania Creek-dæld­inni, einu rakasta svæði Nýja Suður-Wales, átt­aði hún sig þegar á því að eitt­hvað óvenju­legt var á seyði. Svæðið er hluti af Nightcap-þjóð­garð­inum þar sem er að finna regn­skóg sem rekja má allt aftur til hinnar fornu heims­álfu, Gondwana. Þjóð­garð­ur­inn er því á heimsminja­skrá UNESCO.

Þann 8 nóv­em­ber í fyrra var engu líka en að þar væri hafið eld­gos. „Þetta er eitt það hræði­leg­asta sem ég hef séð,“ segir Nicholson í sam­tali við Guardian. „Það var ótrú­legt að þetta gæti brunnið yfir­leitt, hvað þá að sjálfur regn­skóg­ur­inn, sá blaut­asti af öllu blautu, log­aði.“

Nicholson hefur búið á svæð­inu í yfir fjóra ára­tugi. Hún og eig­in­maður hennar voru þau sem kröfð­ust þess að skóg­ar­höggi í regn­skóg­inum yrði hætt. Þau gripu til nokkuð rót­tækra aðgerða á átt­unda ára­tugnum, settu meðal ann­ars upp vega­tálma. Það skil­aði árangri og í kjöl­farið var allur hinn forni regn­skógur frið­aður og gerður að þjóð­garði.

Allt frá tímum risaeðlanna

Leifar hins forna Gondwana-regn­skógar eru á um 366 þús­und hekt­urum lands. Sum trén eru mörg hund­ruð ára gömul, jafn­vel yfir þús­und ára, en skóg­ur­inn sjálfur er margra millj­óna ára gam­all. Hann var til á tímum risa­eðl­anna, svo forn er hann.

Nú eru engar risa­eðlur þar en þeirra í stað hafa fjöl­margar aðrar dýra- og plöntu­teg­undir sest að í skóg­inum. Talið er að allt að helm­ingur skóg­ar­ins hafi skemmst í eld­unum síð­ustu mán­uði og þar af leið­andi helm­ingur búsvæðis yfir hund­rað teg­unda planta og dýra sem þegar voru í hættu.

„Hér erum við að horfa á sam­fé­lag sem hefur verið til í 40-50 millj­ónir ára á ástr­alska meg­in­land­inu og hefur í gegnum árþús­undin minnkað um 99%,“ segir Robert Kooyman, sér­fræð­ingur í regn­skógum. Hann hefur helgað starf sitt rann­sóknum á Gondwana-skóg­unum. „Og nú höfum við brennd fimm­tíu pró­sent eða meira af þessu eina pró­senti sem eftir var.“

Hann segir að vissu­lega muni hluti skóg­ar­ins ná sér að nýju. En aðrir hlutar hans ekki. Skóg­ur­inn muni breyt­ast og halda áfram að minnka.

Skógar sem næra sálina

„Þessir skógar sem yfir­leitt iða af lífi, eru grænir og vænir, næra sál okkar,“ segir Mark Graham, vist­fræð­ingur hjá nátt­úru­vernd­ar­ráði Nýja Suður-Wales. „Þú stígur þangað inn, andar djúpt að þér og þú finnur frið.“

Þar sem þessir skógar eru yfir­leitt rakir þá hafa þeir ekki brunnið hingað til. En þegar eldar loga allt umhverfis þá mán­uðum saman og hit­inn verður gríð­ar­legur þá breyt­ist allt. Og þetta sum­arið brunnu þessir skógar mögu­lega í fyrsta skipti.

Árið 2019 var heitasta og þurrasta ár Ástralíu frá því að mæl­ingar hófust fyrir 120 árum.

„Við erum að fara inn í óvissu tíma,“ segir Richard Hobbs, vist­fræð­ingur við háskól­ann í Perth. „Við höfum ekki fengið elda svona snemma [að sumri] fyrr og þeir hafa ekki áður farið yfir svo stórt svæði. Það kvikn­aði í vist­kerfum sem hafa ekki brunnið áður í manna minnum svo við verðum bara að giska á hvernig þau bregð­ast við.“

Saga tegundar

Þau vist­kerfi sem verst verða úti eru þau sem sjaldan eða aldrei hafa áður brunnið. Aðrir skógar hafa brunnið reglu­lega síð­ustu ára­tugi og hefur áferð þeirra og sam­setn­ing þar með breyst. Sum tré hafa alfarið hopað úr þeim. Tíðir eldar gera það að verkum að þau ná ekki að vaxa og dafna.

Kooyman hefur farið á vett­vang, séð ástandið í Gondwana-forn­skóg­inum með eigin augum eftir eldana. Hann segir að börkur trjánna hafi brunnið. Þau séu enn með lífs­marki en að enda­lok þeirra nálgist.

Einstök eik­ar­tré sem þar vaxa eru aðeins 250 tals­ins. Kooyman telur að tíu pró­sent þeirra séu dauð. Önnur muni ekki lifa lengi eftir ham­far­irnar.

Hann bendir á að þetta sé aðeins saga einnar teg­undar. Í fornu regn­skóg­unum eru margar aðrar teg­undir plantna og dýra sem nú eru í enn meiri útrým­ing­ar­hættu en áður.

Þegar vist­kerfi verður fyrir áfalli eins og skóg­ar­eldum raskast mik­il­vægt jafn­vægi. Áhrifin verða meiri en á einn stað, ákveðið svæði. Stóru trén í skóg­unum eru til að mynda nauð­syn­leg fyrir dýra­líf. Þau veita dýrum skjól og fæða þau með ávöxtum sínum og laufum. Vist­kerfi eru sam­ofin, ekki ein­angruð.

Aðrir skógar Ástralíu sem brunnu í eld­unum síð­ustu mán­uði eru vanir slíku álagi. Það á til dæmis við um skóga tröllatrjánna. Aðeins nokkrum vikum og jafn­vel dögum eftir að eldur veður um þá má sjá lífið kvikna á ný. Rign­ingar á næstu mán­uðum munu gæða þá enn meira lífi og gera þá græna. En stærri vanda­mál gætu verið handan við hornið.

„Já, sumar teg­undir hafa aðlag­ast eldum en það þýðir ekki að þær muni þola mikla og tíða elda sem er einmitt það sem við búumst við á sumum svæðum í Ástralíu vegna lofts­lags­breyt­inga,“ segir Euan Ritchie, vist­fræð­ingur við Deakin-háskóla í Melbourne. „Ef það koma oftar stórir og heitir eldar þá mun jafn­vel teg­undum sem eru að vissu leyti eld­þolnar verða ógnað.“

Tíminn einn mun leiða í ljós hvernig bati skóg­anna og vist­kerf­anna í heild verður.

Hvar er gljáandi svarti kakadúinn?

Á Kengúru­eyju krossa menn fingur og vona það besta. Meðal teg­unda sem ótt­ast er að hafi orðið fyrir miklum skaða er gljá­andi, svarti kakadúinn. Fuglinn sá getur orðið allt að fimm­tíu ára gam­all. Hann parar sig fyrir lífs­tíð. Það hefur tekið nátt­úru­vernd­ar­fólk og sjálf­boða­liða ald­ar­fjórð­ung að bjarga teg­und­inni frá útrým­ingu. Árið 1995 voru aðeins 158 slíkir fuglar á lífi. Hægt og rólega tókst að fjölga þeim í um 400.

En nú er alls óvíst hversu margir þeirra lifa. Hluti svæðis sem kakadúarnir eru vanir að gera hreiður sín á brann. Hræ ann­arra fugla hafa fund­ist í brenndum jarð­veg­inum, fugla sem oft­ast ná að forða sér þegar gróð­ur­eldar kvikna. En ekk­ert hræ af kakadúa hefur fund­ist.

„Við vorum að velta fyrir okkur hvar öll dýrin væru,“ segir Diana Berris sem starfar á eyj­unni. „En svo átt­uðum við okkur á því að þarna voru bara litlar hrúgur af beinum, eld­arnir voru svo ákafir að beinin bara moln­uðu niður í hönd­unum á okkur.“

Alls óvíst er hversu mörg dýr urðu eld­unum í Ástralíu að bráð. Sumir vís­inda­menn hafa sagt að hálfur til einn millj­arður þeirra; skrið­dýr, spen­dýr, fuglar, fiskar og fleiri teg­undir, hafi drep­ist.

Víst er þó talið að minnsta kosti 100 plöntur og dýr sem fyrir voru í við­kvæmri stöðu misstu heim­kynni sín í eld­unum. Í þessum hópi er hinn svarti, gljá­andi kakadúi.

Hlustið á frumbyggjana

„Forfeður okkar yrðu reiðir, held ég, ef þeir vissu hvað hefði komið fyrir landið, fyrir dýrin okkar,“ segir Warren Foster, tals­maður Yuin-þjóð­ar­innar við Wallaga-vatn. Talið er að þús­undir helgra svæða frum­byggja Ástralíu hafi skemmst eða eyði­lagst í ham­fara­eld­unum. Þessi svæði hafa verið heilög í þeirra huga kyn­slóð fram af kyn­slóð í þús­undir ára. „En þegar þau eru farin þá er ekki hægt að fá þau til baka.“

Frum­byggja­þjóð­irnar hafa lengi kveikt elda til að hreinsa skóga. Slík iðja var svo litin horn­auga og henni að mestu hætt. En sögur um elda for­tíðar, þá sem nátt­úran hefur kveikt, lifa í sögum fólks­ins. „Þetta hefur aldrei verið eins og núna. Okkar fólk hefur aldrei kynnst eldum sem þessum. Við þurfum að halda land­inu okkar heil­brigðu svo við getum verið heil­brigð. Við þurfum dýrin. Ef þetta er allt farið, andi okkar deyr þegar þau deyja.“

Foster segir að mögu­lega verði nú hlustað á frum­byggj­ana og hvernig þeir hafa brennt gróður. „Það er tíma­bært að spyrja okkur hvernig eigi að sjá um þetta land.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár