Áttunda hvert heimili í slæmu húsnæði

Þröng­býlt er á einu af hverjum tólf heim­ilum hér­lendis, auk þess sem átt­unda hvert heim­ili er í slæmu ásig­komu­lagi. Nokkuð dró úr þröng­býl­inu í fyrra, en það náði hámarki á tíma­bil­inu 2018-2020.

Nokkuð dró úr þröngum húsa­kosti heim­ila í fyrra, miðað við árið 2020, sam­kvæmt nýjum tölum Hag­stof­unnar. Alls var þröng­býlt á tæp­lega 13 þús­und heim­ilum í fyrra, eða hjá um átta pró­sentum allra heim­ila, á meðan ástand hús­næðis var slæmt hjá átt­unda hverju heim­ili.

Hag­stofan hefur nú birt nýjar tölur úr lífs­kjara­rann­sókn sinni, en þar eru um fimm þús­und ein­stak­lingar valdir af handa­hófi úr Þjóðskrá og spurt út í heim­il­is­að­stæður þeirra. Samkvæmt Hagstofu er þröng­býlt á heim­ilum ef ein­hleypir ein­stak­lingar og pör hafa ekki eitt her­bergi út af fyrir sig. Sömu­leiðis telur stofn­unin að það sé þröng­býlt ef fleiri en tvö ung­menni eru á hvert her­bergi.

Líkt og sést á mynd hér að neðan stórjókst þröng­býlið á tíma­bil­inu 2016-2018, þar sem hlut­fall heim­ila með þröngan húsa­kost hækk­aði úr sjö pró­sentum í tíu pró­sent. Í fyrra fækk­aði svo þröng­býlum heim­ilum um 1.500 tals­ins og eru þau nú tæp­lega 13 þús­und. Þetta jafn­gildir um átta pró­sentum af heild­ar­fjölda heim­ila, sem er nálægt með­al­tali síð­ustu tutt­ugu ára.

Mest var þröng­býlið í fjöl­býl­is­húsum, en þar fellur ein af hverjum átta íbúðum undir þá skil­grein­ingu. Til sam­an­burðar eru ein­ungis fjögur pró­sent af öllum rað­húsum og ein­býl­is­húsum of þétt setin.

Hag­stofan mælir einnig fjölda heim­ila þar sem ástand hús­næðis er talið lélegt. Hlutfall slíkra heim­ila náði hámarki árið 2008, en þá var tæp­lega fimmta hvert heim­ili í slæmu ásig­komu­lagi. Síðan þá hefur hlut­fallið svo lækkað, en nú er ástand hús­næðis lélegt í einu af hverjum átta heim­ilum.

Öfugt við mæl­ing­arnar um þröng­býli eru ein­býl­is­hús lík­leg­ust til að vera í slæmu ásig­komu­lagi, en 15 pró­sent þeirra falla undir þá skil­grein­ingu. Til við­mið­unar er ástand aðeins 10 pró­senta allra íbúða í stórum fjöl­býl­is­húsum talið slæmt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár