„Ef að þau geta notað mig þá er ég til“

Gunnar Smári Egilsson seg­ist vera til­bú­inn að taka sæti á lista Sós­í­alista­flokks­ins en sér­stök kjör­nefnd flokks­ins hefur óskað eftir kröftum hans.

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins.
Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins og einn af stofn­endum flokks­ins, ætlar að gefa kost á sér á lista fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ingar. RÚV greinir frá.

Í frétt RÚV segir að flokk­ur­inn ætli að bjóða fram lista í öllum kjör­dæmum og verði þeir kynntir í byrjun næsta mán­aðar.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mæld­ist með þrjá menn inni í Gallup-könnun sem birt­ist í síð­ustu viku. Alls segj­ast 5,4 pró­sent lands­manna ætla að kjósa þann flokk sem býður fram til þings í fyrsta sinn í haust.

„Það hefur verið skorað á mig og kjör­nefndin var að tala við mig og ég lof­aði þeim að svara núna um helg­ina. Ef að þau geta notað mig þá er ég til,“ segir Gunnar Smári í sam­tali við RÚV.

Á vef Sós­í­alista­flokks­ins segir að ákvörðun um fram­boð Sósíalista­flokks­ins til þings eða sveit­ar­stjórna skuli tekin af Sósíalista­þingi eða með skýru umboði þess. Kjörnefnd skipuð slembivöldum félagsmönnum skuli ann­ast skipun lista, kosn­inga­stjórn og í kjölfarið sam­skipti flokks­ins við kjörna full­trúa.

„Kjörnefnd skal sam­þykkja nánari útfærslu á vinnu­brögðum sínum við skipun lista og sam­skipti við fram­bjóðendur. Kjörnefnd er heim­ilt að setja á fót kosn­inga­stjórnir í ein­stökum kjördæmum eða sveit­arfélögum og heyra þær undir hana. Kjörnefnd er heim­ilt að skipa utan­að­kom­andi ein­stak­ling sem kosn­inga­stjóra,“ segir á síðu flokks­ins. Samkvæmt RÚV er búist við því að nefndin ljúki störfum fyrstu vik­una í ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár