Ólafur Ragnar telur marga vilja koma til Íslands í sóttkví

Ólafur Ragnar Grímsson telur að það verði mögu­legt að lokka ferða­fólk til Íslands í stórum stíl á næstu miss­erum, þrátt fyrir að fólk þyrfti að vera í sótt­kví við kom­una. Jákvæð alþjóð­leg umfjöllun um veiru­við­brögðin hér á landi vinni með Íslend­ingum.

Ólafur Ragnar Grímsson í Silfrinu í morgun.
Ólafur Ragnar Grímsson í Silfrinu í morgun. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV

Íslend­ingar eru í miklu sterk­ari stöðu til að nýta sér „upp­hafið að hinum breytta heimi“ en margar aðrar þjóðir, sagði Ólafur Ragnar Grímsson í Silfrinu á RÚV í dag. For­set­inn fyrr­ver­andi lagði til að Ísland myndi bjóða fólk vel­komið til þess að flýja kór­ónu­veiruna og að sett yrði upp ein­hvers konar „mið­stöð“ til þess að setja fólk í sótt­kví við kom­una til lands­ins.

Ólafur Ragnar sagði að Ísland sé nú að njóta enn einnar bylgju jákvæðrar umfjöllun í alþjóð­legum fjöl­miðlum vegna veiru­við­bragð­anna hér­lendis við og að það skapi tæki­færi, jafn­vel til þess að bjóða Ísland fram sem val­kost fyrir við­kvæma hópa sem vilja losna, til dæmis, úr þétt­býlum borgum erlendis.

„Hver vill vera í bið­röð í London, París, svo maður nefni nú ekki Asíu eða innan um kraða­kið á göt­unum þegar menn eiga kost á því að vera nán­ast einir í nátt­úr­unni á Íslandi?“ sagði Ólafur Ragnar.

„Ég held að ef okkur tekst að hugsa þetta með nýjum hætti getum við boðið ver­öld­inni tæki­færi, aðstöðu og upp­lifun á næstu mán­uðum og miss­erum og árum sem önnur lönd geta ekki,“ sagði Ólafur Ragnar, sem sagð­ist vita til þess að fjöldi fólks væri til­bú­inn að ferð­ast þrátt fyrir að þurfa að vera í sótt­kví.

„Eins og menn mynd­uðu Ferða­þjón­ustu bænda hér fyrir nokkrum ára­tugum, þá held ég að við þurfum að mynda ein­hverja mið­stöð sem sam­einar það að fylgj­ast með fólki, greina það, prófa það, setja það í sótt­kví, en líka gefa því tæki­færi að fara á Norð­ur­land, Aust­firði, Suð­ur­landið. Við þurfum að hugsa þetta upp á nýtt,“ sagði Ólafur Ragnar.

Telur stöðu Asíu og sér í lagi Kína vera að styrkjast

Hann var einnig spurður út í stöð­una í heims­málum eins og hún blasir við honum á tímum far­ald­urs­ins og sagði að Vest­ur­lönd þyrftu nú að horfast í augu við það að heims­myndin væri breytt og að við­brögðin við veirunni í stærstu ríkjum Evrópu, að und­an­skildu ef til vill Þýska­landi, hefðu verið slöpp. Við­brögðin í Banda­ríkj­unum hefðu síðan „end­an­lega rústað því að ver­öldin horfi til Banda­ríkj­anna sem fyr­ir­myndar eða til þess að veita for­ystu.“

Ólafur Ragnar sagði að ríki Asíu hefðu staðið sig mun betur í bar­átt­unni við veiruna og að í kjöl­farið myndu þau og sér í lagi Kína, standa sterk­ari eftir. Kína yrði þannig eina ríkið sem yrði aflögu­fært til þess að hjálpa Afríku, ef eða þegar kór­ónu­veiran færi að valda hörm­ungum þar. Evrópa yrði það ekki og ekki Banda­ríkin heldur. Þá hefði Evr­ópu­sam­bandið reynst van­mátt­ugt þegar á reyndi.

„Kína verður eina landið sem getur hjálpað Afríku. Ég held að það verði mjög erfitt, á Vest­ur­löndum, á næstu miss­erum og árum að telja almenn­ingi trú um það að hinn mikli óvinur okkar á 21. öld sé Asía. Þvert á móti held ég að það verði mjög erfitt en líka ögrandi verk­efni fyrir for­ystu­sveitir á Vest­ur­löndum, bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum, og fjöl­miðla­fólk, að hjálpa hinum lýð­ræð­is­legu sam­fé­lögum að átta sig á þess­ari nýju heims­mynd.

Þetta er hinn nýi veru­leiki, sem við verðum að taka með í reikn­ing­inn, því þetta er ekki búið. Þetta er ekki eina til­vikið á næstu ára­tugum. Við þurfum að búa okkur undir það að veirur og nátt­úran banki upp á, og gleymum ekki lofts­lags­breyt­ing­unum, með þeim hætti sem við höfum aldrei fyrr séð í sögu mann­kyns,“ sagði Ólafur Ragnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár