Frá Hörpu til Reykjadals

Fjöl­margt fólk úr öllum álfum heims­ins kom saman um nýaf­staðna helgi og þing­aði í einum mesta rok- og rign­inga­rassi Evrópu. Hring­borð Norð­ur­slóða (e. Arctic Circle) er sann­ar­lega stærsta kaup­stefnan sem er haldin í Hörpu ár hvert. Þar mæt­ast póli­tískir leið­togar, stjórn­endur fyr­ir­tækja, vís­inda­menn, frum­kvöðlar, og sér­fræð­ingar í umhverf­is­málum og freista þess að eiga í sam­ræðum um fram­tíð norð­ur­slóða.

Á þeim fjórum árum sem liðin eru frá fyrsta Hring­borð­inu hafa þessir ólíku hags­muna­að­ilar lært að tala sömu tungu, upp að vissu marki. Í hverju ein­asta horni var rætt um sjálf­bæra þróun – en hvort skiln­ing­ur­inn á því hug­taki hafi ætíð verið sá sami skal ósagt látið. Annað lausn­ar­orð, sam­vinna, hljóm­aði þó einnig um sal­ina og bar með sér óskert­ari skiln­ing. Með auk­inni hlýnun og marg­vís­legum breyt­ingum á lofts­lags­kerfi jarðar breyt­ist hið frosna lands­lag norð­ur­slóða hratt með geysi­miklum afleið­ingum fyrir önnur svæði. Ráð­stefnu­gestir urðu hægt og síg­andi með­vit­aðir um sam­eig­in­lega upp­lifun á óaft­ur­kvæmum missi. Allar dýra­teg­undir jarðar eru háðar ís, svo ég vitni í fleyg ummæli helg­ar­innar. Við, þar með talin. 

Rannsóknarhús rís

Af sömu rótum munu á hinn bóg­inn nýjar sigl­inga­leiðir breyta gang­verki alþjóða­við­skipta og hafa áhrif á hag­kerfi um allan heim. Það er því eðli­legt að fjar­læg ríki kalli eftir nán­ara sam­starfi við norð­ur­slóða­ríkin átta, hvort heldur sem er á vett­vangi vís­inda eða við­skipta. Ágætt dæmi um þessa þróun er íslenskt-kín­verskt norð­ur­ljósa­rann­sókn­ar­hús sem hefur risið í Þing­eyj­ar­sveit að Kárhóli í Reykja­dal (fjórum árum eftir að ríkin að und­ir­rit­uðu tví­hliða sam­vinnu­samn­ing um norð­ur­rann­sóknir, fjör­tíu og fimm árum eftir að form­leg erinda­skipti hófust milli Íslands og Kína).

Að öllum lík­indum er þetta stærsta fjár­fest­ing frá upp­hafi utan Reykja­víkur í upp­bygg­ingu rann­sókn­ar­að­stöðu. Verk­efnið var kynnt í Hörpu um helg­ina og í kjöl­farið haldið norður á mánu­dag og horn­steinn lagður að nýbygg­ing­unni við hátíð­lega athöfn. Rann­sókna­mið­stöðin er sam­starfs­verk­efni sex íslenskra og tólf kín­verskra vís­inda­stofn­ana sem deila öllum þeim gögnum sem verða til á staðnum. Að auki verður aðstaðan sjálf opin vís­inda­mönnum hvaðanæva að úr heim­inum og þannig er stuðlað enn frekar að alþjóð­legu vís­inda­sam­starfi.

Gæti orðið fyrirmynd annarra verkefna

Sé reynt að meta verk­efnið út frá sjón­ar­hóli alþjóða­sam­skipta, þá er ljóst að þessi til­raun er býsna merki­leg. Að baki eru ótal skref eftir vand­röt­uðum diplómat­ískum leiðum; varð­aðar fjölda­mörgum sam­þykktum og vilja­yf­ir­lýs­ingum stjórn­vald­anna tveggja. Lang­tíma­upp­bygg­ing á innviðum í Reykja­dal væri þar að auki óhugs­andi ef ekki hefði komið til fram­taks inn­lendra aðila. Sjálfs­eign­ar­stofn­unin Aurora Observatory ann­ast upp­bygg­ingu og rekstur aðstöð­unnar á Kárhóli en stofn­að­ilar eru, meðal ann­arra, atvinnu­þró­un­ar­fé­lögin tvö í þessum lands­hluta (Atvinnu­þró­un­ar­fé­lag Þing­ey­inga og Atvinnu­þró­un­ar­fé­lag Eyja­fjarðar) ásamt öðrum einka- og opin­berum aðilum.

Bæði íslenskir og kín­verskir tals­menn verk­efn­is­ins hafa lagt áherslu á að upp­bygg­ingin að Kárhóli geti orðið fyr­ir­mynd ann­arra sam­starfs­verk­efna um norð­ur­rann­sóknir. Þannig væri hægt að nota sam­bæri­legt líkan til að skapa aukin tæki­færi á sviði jarð­vís­inda og lofts­lags­rann­sókna – og ekki aðeins hér á landi, heldur víðar á norð­ur­slóðum, þar sem vís­inda­menn erlendra ríkja vilja skapa traust­ari grund­völl fyrir eigin rann­sóknir á svæð­inu.

Íslenskir og kínverskir vísindamenn erindrekar

Nærvist og návera Kína hefur auk­ist mikið á norð­ur­slóðum und­an­farin ár. Umhverf­is­breyt­ingar á svæð­inu eru raun­veru­leg orsök þessa áhuga en hann bein­ist ekki síst að marg­vís­legum við­skipta­tæki­færum, sem skap­ast með nýjum sigl­inga­leiðum, sem og betra aðgengi að þeim gríð­ar­legu auð­lindum sem svæðið býr yfir. Það er eft­ir­tekt­ar­vert hve vel Kína hefur tek­ist að vinna mál­stað sínum fylgi hér á landi, ekki síst í gegnum norð­ur­rann­sóknir – og íslenskir aðilar hafa ekki látið sitt eftir liggja heldur haft for­ystu um að þróa vís­inda­sam­starf milli Kína og Norð­ur­land­anna.

Hvort sem það er af ásettu ráði eða ekki, hafa íslenskir og kín­verskir vís­inda­menn þannig tekið sér hlut­verk erind­rek­ans í víð­tækri milli­ríkjapóli­tík. Á svæð­is­vísu er verk­efni eins Kárhóll til þess fallið að hleypa, með frið­sam­legum hætti, erlendum aðilum að inn­lendum rann­sóknar- og stjórn­un­ar­kerfum. Þannig getur skap­ast traust milli ríkja og full­trúa þeirra, sem von­andi verður nýtt til frek­ari góðra verka á jafn­ræð­is­grund­velli. Veldur hver á heldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arcticcircle

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár