Íslandsvinurinn sem sagður er hafa „fóðrað skrímslið“ Epstein

Í lok árs 2014 greindi kona frá því að Ghislaine Maxwell hefði tekið þátt í ofbeldi auð­manns­ins Jeffrey Epstein gegn sér. Aðeins skömmu áður hafði Maxwell staðið á sviði í Hörpu og rætt þær ógnir sem steðja að haf­inu á ráð­stefnu Arctic Circle.

Heiminum er skipt í tvennt. Svæði þar sem gilda lög og reglur og svæði þar sem í raun engar reglur gilda. Þetta er eins og villta vestrið.“

Ghislaine Maxwell tal­aði af ástríðu um ástand hafs­ins á alþjóða­þingi Hring­borðs norð­ur­slóða – Arctic Circle – í Hörpu árið 2013. Hvernig verið væri að níð­ast á haf­svæðum heims­ins, þar sem óljósar reglur giltu, með ofveiði. Hún var þangað komin fyrir hönd nátt­úru­vernd­ar­sam­taka sem hún hafði stofnað, Terramar Project. Ári síðar var hún aftur mætt í Hörpu og vakti athygli við­staddra á gríð­ar­legri plast­mengun í haf­inu. „Hafið þið komið til Rusl-lands? Ég hef gert það og það er ekki fögur sjón“.

Heiminum er skipt í tvennt. Í hluta hans gilda lög og reglur en í öðrum hluta í raun engar. Þeir sem þar lifa og hrær­ast, hinir ofur­ríku, kom­ast í skjóli valds síns, áhrifa, tengsla og pen­inga, upp með ákveðna hluti. Stundum vonda hluti. Hluti sem meiða fólk jafn­vel fyrir lífs­tíð.

„Þær eru ekk­ert, þessar stúlkur. Þær eru rusl,“ er Ghislaine Maxwell sögð hafa sagt við vin­konu sína sem spurði hvað henni fynd­ist um ungu stúlk­urnar sem hún útveg­aði vini sínum og fyrrum elsk­huga.

Vinurinn var Jeffrey Epstein, við­skipta­jöf­ur­inn ofur­ríki sem á síð­asta ári var ákærður fyrir man­sal og kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn fjölda stúlkna undir lög­aldri.

„Við erum svo áköf að mis­nota það sem við höfum, við verðum að fara var­lega og hugsa áður en við fram­kvæmum,“ sagði Maxwell á Arctic Circle árið 2013. Hún var að tala um hafið. Ofveið­ina sem stunduð er með ónátt­úru­legum aðferðum á borð við risatroll sem rúma myndu margar breið­þotur.

Maxwell, sem var í felum í tæpt ár, hefur nú sjálf verið ákærð fyrir mis­notkun. Fyrir að hafa í félagi við Epstein mis­notað ungar stúlkur kyn­ferð­is­lega. Fyrir að hafa fundið þær, ving­ast við þær og ginnt með gylli­boðum til að svala fýsnum manns sem vildi fá þrjár full­næg­ingar á dag og fékk þá brjál­æð­is­legu hug­mynd að búa til ofur­kyn­þátt úr sínu eigin erfða­efni.

Epstein er lát­inn. Hann hengdi sig í fanga­klefa fyrir tæpu ári. Hér verður hans saga ekki rakin ítar­lega heldur vin­kon­unnar Ghislaine Maxwell sem hefur komið hingað til lands að minnsta kosti tvisvar og fellur því lík­lega undir skil­grein­ing­una „Íslands­vinur“. Hér er hún einnig sögð hafa kynnst manni, einum af stofn­endum Arctic Circle, sem skaut yfir hana skjóls­húsi þegar hún þurfti á að halda.

Og er, að því er fréttir sumra fjöl­miðla herma, mögu­lega eig­in­maður hennar í dag.

Síðasta myndin? Talið er að árið 2005 hafi verið tekin síðasta myndin af þeim saman opinberglega, Epstein og Maxwell.
Síðasta myndin? Talið er að árið 2005 hafi verið tekin síð­asta myndin af þeim saman opin­berg­lega, Epstein og Maxwell.

Ghislaine Maxwell fædd­ist í Frakk­landi árið 1961. Hún er yngst níu barna fjöl­miðla­kóngs­ins Roberts Maxwell sem átti Mirror Group, og eig­in­konu hans, Bettyar. Faðir hennar fædd­ist í Tékkóslóvakíu og ólst upp í mik­illi fátækt. Er nas­istar náðu þar völdum flúði hann til Frakk­lands og gekk til liðs við breska her­inn. Eftir að stríð­inu lauk gift­ist hann dóttur bresks kaup­sýslu­manns, flutti til Bret­lands, skipti um nafn og hóf að safna að sér fjöl­miðlum. Til varð fjöl­miðla­kóng­ur­inn Robert Maxwell sem átti áður en yfir lauk mörg hund­ruð fyr­ir­tæki, umgekkst for­seta og kónga­fólk og hafði 32 þús­und starfs­menn í vinnu.

Ghislaine er sögð hafa verið auga­steinn föður síns. Til marks um það nefndi hann snekkju sína, Lady Ghislaine, í höf­uðið á henni.

Robert Maxwell lést árið 1991. Hann var á sigl­ingu við Kanarí-eyjar á snekkj­unni sinni er hann féll fyrir borð. Skömmu síðar kom í ljós að hann hafði mis­farið með fé fyr­ir­tækja sinna og m.a. seilst djúpt í eft­ir­launa­sjóði starfs­mann­anna. Skuld­irnar voru gríð­ar­legar.

Ghislaine var þegar þarna var komið sögu 29 ára. Orðin hrókur alls fagn­aðar í öllum þeim við­burðum sem ríka og fræga fólkið í London stóð fyrir. Hún var sann­kallað sam­kvæm­is­ljón sem hafði alist upp á 53 her­bergja setri fyrir utan London og aldrei þurft að hafa nokkrar áhyggjur af pen­ingum.

„Hvernig lést faðir þinn?“ var hún spurð á blaða­manna­fundi. „Ég held að hann hafi verið myrtur,“ sagði hún.

Ghislaine Maxwell varð snemma samkvæmisljón og umgekkst reglulega ríka og fræga fólkið í London.
Ghislaine Maxwell varð snemma sam­kvæm­is­ljón og umgekkst reglu­lega ríka og fræga fólkið í London.

Nafn Maxwell-fjöl­skyld­unnar var ekki lengur virt og dáð. Robert Maxwell var kall­aður þrjótur og þjófur. Ghislaine Maxwell var hund­elt af blaða­mönnum. Hún átti enga und­an­komu­leið. Húsið sem hún bjó í í London var eign fyr­ir­tækja­sam­steypunnar. Það var tekið af henni. Sama má segja um allt inn­búið.

Ári eftir að faðir hennar lést ákvað hún að yfir­gefa London og flaug til New York. Hún var ekki ein á ferð. Sam­ferða­maður hennar var Banda­ríkja­maður og tölu­vert eldri en hún.

Þetta var Jeffrey Epstein.

Þegar Ghislaine hóf sitt nýja líf vestan Atl­ants­hafs­ins, þykir ljóst að hún var ekki á flæðiskeri stödd þó að fjöl­skyldu­auð­ur­inn væri horf­inn. Hún átti Epstein að. Nokkru eftir að hún flutti til New York var hún flutt í sjö hæða hús í borg­inni og var farin að vinna sem við­skipta­ráð­gjafi. Í við­tali við tíma­ritið Hello! í byrjun árs 1997 sagði hún frá allri sinni vel­gengni en minnt­ist engu orði á sam­band sitt við Epstein. Stóra New York-húsið hennar var, að því er fram kom í grein­inni, til marks um vel­gengni hennar sem harð­dug­legur ráð­gjafi.

Ghislaine var harð­dug­leg að efla tengsla­netið. Hún þræddi við­burði á Man­hattan til að kynn­ast nýju fólki, var glað­vær og sjar­mer­andi. Þetta lík­aði Epstein sér­lega vel. Hann komst í kynni við fólk af sama sauða­húsi, fólk sem vissi vart aura sinna tal. Og Maxwell hafði fundið leið inn í sam­fé­lag hinna ríku og frægu á ný.

En til að halda þessum lífs­stíl þurfti hún að „fæða skrímslið á því sem það vildi,“ skrifar blaða­maður Vanity Fair. Og það sem skrímslið Epstein vildi voru stúlkur og það í yngri kant­inum. Maxwell er sögð hafa leitað að fórn­ar­lömbunum alls staðar: Í partíum, í heilsu­lindum og á snyrti­stofum. Þegar hún svo fann þá réttu bauð hún henni í heim­sókn í glæsi­hýsi Epsteins.

Ekki er að fullu ljóst hvenær á tíunda ára­tugnum þau hófu ást­ar­sam­band og hvenær því svo lauk. Það stóð að minnsta kosti í nokkur ár, lík­lega um það bil frá 1994-1997, en þró­að­ist svo yfir í djúpa vin­áttu að þeirra sögn. Maxwell var þá farin að sjá um öll per­sónu­leg mál Epsteins, allt frá því að hafa umsjón með fast­eignum hans í mörgum löndum og í að að færa honum kjúklinga­súpu þegar hann var með flensu.

Við upp­haf nýrrar ald­ar­innar virð­ist Maxwell hafa fjar­lægst Epstein. Hún flutti til Flórída og hóf að búa með öðrum manni en árið 2004 var hún aftur farin að vinna fyrir hann og lík­legt er talið að það hafi hún gert að minnsta kosti til árs­ins 2006.

En árin þar á eftir ein­kennd­ust af bar­áttu hennar fyrir umhverf­is­vernd og árið 2012 stofn­aði hún TerraMar-verk­efnið sem átti að byggja upp sam­fé­lag þeirra sem vildu standa vörð um verndun hafs­ins. Tengsla­netið reynd­ist henni áfram vel og frægir og ríkir ein­stak­lingar lögðu henni lið.

Á meðan á þessu stóð hafði Epstein verið ákærður fyrir að brjóta gegn tveimur stúlkum undir lög­aldri. Hann ját­aði sök og var um mitt ár 2008 dæmdur til 18 mán­aða fang­els­is­vistar. Hann afplán­aði 13 mán­uði.

Um svipað leyti fóru spjótin að bein­ast að Maxwell. Í sept­em­ber árið 2009, er hún var á umhverf­is­ráð­stefnu Clinton-hjón­anna, var henni birt stefna. Hún átti að mæta fyrir dóm vegna rann­sóknar á meintu kyn­ferð­is­broti Epsteins gegn ungri stúlku.

Ghislaine Maxwell á Arctic Circle ráðstefnunni árið 2014.
Ghislaine Maxwell á Arctic Circle ráð­stefn­unni árið 2014.

Það var hins vegar ekki fyrr en sex árum síðar, skömmu eftir að Maxwell hafði talað á Arctic Circle í seinna skiptið, að önnur kona, Virginia Giuffre, sem sak­aði Epstein um kyn­ferð­is­brot, benti á Maxwell sem vit­orðs­mann hans og sagði hana einnig hafa verið þátt­tak­anda í ofbeld­inu. Hún greindi m.a. frá því að þegar hún var fimmtán ára hafi Maxwell fengið hana til að ger­ast einka­nudd­ari Epsteins. Hún sak­aði hana um að hafa gert sig að kyn­lífs­þræl hans og Andrew Breta­prins sem Maxwell hafði þekkt í áraraðir.

Maxwell gaf út yfir­lýs­ingu þar sem hún hafn­aði ásök­unum Giuffre og sagði þær lygar. Giuffre kærði þá Maxwell fyrir æru­meið­ingar. Í rétt­ar­höld­unum neit­aði hún stað­fast­lega að hafa haft nokkra vit­neskju um áhuga Epsteins á ungum stúlkum. Samið var í mál­inu utan dóm­stóla.

Fjöl­miðla­fárið var í þann mund að skella aftur á er hún ákvað að flytja enn einu sinni. Um tíma er hún sögð hafa búið í lúx­us­húsi í litlu þorpi rétt fyrir utan Boston. Eigandi þess var Scott Borger­son. Og honum hafði hún kynnst á Arctic Circle-ráð­stefn­unni í Reykja­vík.

Borger­son er fyrr­ver­andi liðs­for­ingi og fræði­maður hjá Council of Foreign Relations. Hann er einnig for­stjóri Carcometrics, fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tækis sem nýtir sér upp­lýs­ingar um skipa­ferðir til að spá fyrir um flæði flutn­inga á sjó og áhrif þeirra á verð hrá­vara og gjald­miðla. Hann er auk þess einn af stofn­endum Arctic Circle og situr í ráð­gjafa­ráði þess.

Árið 2018 var Maxwell farin að halda sig til hlés. Hún hætti TerraMar-verk­efn­inu sem hafði fátt skilið eftir sig annað en skuldir.

Scott Borgerson á ráðstefnu Arctic Circle. Hann er 44 ára, fjórtán árum yngri en Maxwell.
Scott Borger­son á ráð­stefnu Arctic Circle. Hann er 44 ára, fjórtán árum yngri en Maxwell.

Í júní í fyrra var Maxwell stödd í Bret­landi. Þar dvaldi hún m.a. hjá Andrew prins vini sínum. Þegar prins­inn var spurður um dvöl hennar í frægu við­tali sem hann gaf BBC sagði hann hana hafa verið að taka þátt í „ein­hverri söfnun“. Á dag­inn kom að hún hafði verið þátt­tak­andi í við­burði sem kall­ast Cash & Rocket – öku­ferð mold­ríkra kvenna í nafni góð­gerð­ar­mála frá London til Monte Carlo. Ferðin var mynduð í bak og fyrir og sjá mátti Maxwell, þar sem hún ók rauðum Alfa Romeo, skæl­bros­andi á nokkrum þeirra.

En eftir þetta ferða­lag hvarf hún.

Skömmu síðar var Epstein hand­tek­inn og ákærður fyrir man­sal og kyn­ferð­is­brot gegn stúlkum undir lög­aldri. Maxwell var hins vegar hvergi að finna. „Þessi kona er dólg­ur­inn hans. Hún flýgur flug­vélum til og frá eyj­unni. Ég veit þetta af því að hún sagði mér það,“ skrif­aði leik­konan Ellen Barkin á Twitter af þessu til­efni. Eyjan sem þarna er vísað til var í eigu Epsteins og kölluð „synda­eyjan“.

Slúð­ur­blöðin tóku þátt í leit­inni af fullum krafti. The Daily Mail fékk ábend­ingu um að hún dveldi í húsi Borger­son fyrir utan Boston. Þyrlum var flogið yfir og af myndum sem teknar voru hafa verið borin kennsl á tvær mann­eskjur: Christine, systur Maxwell, og Scott Borger­son. Í við­tali við New York Post sagð­ist hann hins vegar ekki hafa hug­mynd um hvar hún væri nið­ur­komin. „Hún er ekki hér,“ sagði hann.

Maxwell og Epstein ásamt Donald Trump og Melaniu.
Maxwell og Epstein ásamt Donald Trump og Melaniu.

Fimm vikum eftir að Epstein var hand­tek­inn fannst hann lát­inn í klefa sínum í fang­els­inu á Man­hattan. Í bréfi sem hann er sagður hafa skilið eftir sig á að hafa staðið: Noel [fanga­vörður] lét mig fá brenndan mat“ og „risa­stórar pöddur eru að skríða á hönd­unum á mér. Þetta er ekki gaman!“

Þetta var mikið áfall fyrir fórn­ar­lömb hans. Konurnar sem höfðu hver af annarri stigið fram og kraf­ist rétt­lætis. Nú var það þeirra eina von að Maxwell myndi finn­ast og leysa frá skjóð­unni.

En það var eins og jörðin hefði gleypt hana og tæpu ári eftir að Epstein lést bólaði enn ekk­ert á henni. Þangað til að morgni 2. júlí síð­ast­lið­ins. Þá var felu­leiknum loks lokið. Alrík­is­lög­reglan hafði fundið hana í húsi í bænum Bradford í New Hamps­hire. Hún var sam­stundis ákærð, m.a. fyrir að hafa aðstoðað og auð­veldað Epstein að mis­nota stúlkur undir lög­aldri.

Maxwell „flutti þær í gildr­una,“ sagði banda­ríski sak­sókn­ar­inn Audrey Strauss, á blaða­manna­fundi dag­inn eftir að Maxwell var hand­tekin. „Hún þótt­ist vera kona sem þær gætu treyst. En allan tím­ann var hún að und­ir­búa þær fyrir að vera mis­not­aðar af Epstein og í ein­hverjum til­vikum, henni sjálfri.“

Í rétt­ar­höld­unum fyrir helgi, þar sem dóm­ari ákvað að Maxwell yrði ekki sleppt úr haldi gegn trygg­ingu, kom ýmis­legt í ljós sem áður hafði verið á huldu í mál­inu.

Eitt það óvæntasta var sú upp­ljóstrun sak­sóknar­anna að Maxwell væri gift en neit­aði að gefa upp nafn makans. Í frétt Guardian er rakið ýmis­legt sem fram kemur í þeim skjölum sem lögð voru fram við rétt­ar­höldin. Til dæmis um húsið í Bradford þar sem hún var hand­tekin.

Í gögn­unum kemur fram að fast­eigna­sal­inn sem hafði umsjón með sölu húss­ins hefði greint lög­reglu frá því að í nóv­em­ber á síð­asta ári hefðu áhuga­samir kaup­endur komið á hans fund og kynnt sig sem Scott og Jen Marchall.

„Scott Marchall“ sagði fast­eigna­sal­anum að hann hefði verið í breska hernum en væri sestur í helgan stein og að skrifa bók. „Jen Marshall“ sagð­ist vera blaða­maður í leit að næði. Parið sagð­ist vilja kaupa eign­ina strax og að þau myndu setja upp félag um kaupin. Fast­eigna­sal­inn sá síðar mynd af Maxwell og átt­aði sig á því að hún væri konan sem hafði keypt húsið.

„Í New Hamps­hire hafði Maxwell haldið áfram að njóta lífs­ins lystisemda í glæsi­húsi á meðan fórn­ar­lömb hennar engd­ust um í áfalli sem þau urðu fyrir á sínum tíma,“ sagði William F. Sweeney Jr., sem fór fyrir rann­sókn FBI á mál­inu, á blaða­manna­fundi eftir hand­tök­una.

En hver er þá „Scott Marchall?“

Það hefur enn ekki verið stað­fest af yfir­völdum. En miðlar á borð við The Sun, The Daily Mail og New York Post telja sig vera búna að leggja saman tvo og tvo. Að hann sé mað­ur­inn sem hún kynnt­ist í Reykja­vík sem yfir­gaf konu sína hennar vegna þótt fjórtán ár skilji þau að í aldri.

Saksóknari kynnir ákærur á hendur Maxwell á blaðamannafundi nýverið.
Sak­sókn­ari kynnir ákærur á hendur Maxwell á blaða­manna­fundi nýverið.

Maxwell heldur fram sak­leysi sínu. Talið er að hún verði í varð­haldi að minnsta kosti út þetta ár. Rétt­ar­höldin yfir henni hefj­ast ekki fyrr en 12. júlí á næsta ári. Verði hún fundin sek á hún allt að 35 ára fang­elsi yfir höfði sér.

„Þetta hryggi­lega og hrylli­lega glæpa­mál snýst að hluta til um það sem ger­ist þegar litlum hópi fólks er leyft að haga sér eins og hann vill,“ skrifar Nathan Robinson, frétta­stjóri The Guardian í Banda­ríkj­unum. Hvers vegna fór Ghislaine Maxwell, sem bjó alla tíð við auð og var menntuð í Oxford-háskóla, þessa leið í líf­inu, spyr hann og segir svarið liggja í bak­grunni hennar. „Hún ólst upp á 53 her­bergja setri, dóttir valda­mik­ils manns í bresku sam­fé­lagi. Föður hennar hefur verið lýst sem „hræði­legum manni“ sem sýndi ein­ræð­istil­burði, manni sem sveifst einskis til að fá það sem hann vildi.“

Ghislaine Maxwell hóf sam­band sitt við Epstein stuttu eftir and­lát föður síns. Vegna hennar komst hann inn í innsta hring ríka og fræga fólks­ins og kynnt­ist Bill Clinton, Donald Trump, Andrew prins og fleirum. „Það ætti að vera öllum ljóst að mis­notkun er gerð mögu­leg með völdum og auði,“ skrifar Robinson. „Harvey Weinstein naut þess í ára­tugi að níð­ast á konum í skjóli valds síns. Bill Cosby gerði slíkt hið sama – ver­andi einn rík­asti og fræg­asti leik­ari heims. Donald Trump hefur við­ur­kennt að þegar hann átti keppn­ina Ungfrú alheim hafi hann vilj­andi gengið inn á stúlk­urnar þegar þær voru að skipta um föt svo hann gæti starað á þær. „Ég má það af því að ég er eig­and­inn,“ sagði hann á sínum tíma. Starfs­menn keppn­innar aðstoð­uðu hann með því að hvetja stúlk­urnar til að sýna Trump athygli þegar hann birt­ist skyndi­lega.

Heimur hinna ofur­ríku er heimur þar sem næstum eng­inn tekur ábyrgð því í honum lifir fólk sem hefur gíð­ar­lega mögu­leika á því að skaða annað fólk eða verð­launa það.

„Maxwell nærð­ist í menn­ing­ar­heimi þar sem fólk er hvatt til að gera það sem því lystir – sama hver áhrifin verða á aðra sem eru í við­kvæmri stöðu. Við skulum muna að það að setja Ghislaine Maxwell í fang­elsi breytir ekki þessum menn­ing­ar­heimi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arcticcircle

Skýringarcticcircle

Frá Hörpu til Reykja­dals

Fjöl­margt fólk úr öllum álfum heims­ins kom saman um nýaf­staðna helgi og þing­aði í einum mesta rok- og rign­inga­rassi Evrópu. Hring­borð Norð­ur­slóða (e. Arctic Circle) er sann­ar­lega stærsta kaup­stefnan sem er haldin í Hörpu ár hvert. Þar mæt­ast póli­tískir leið­togar, stjórn­endur fyr­ir­tækja, vís­inda­menn, frum­kvöðlar, og sér­fræð­ingar í umhverf­is­málum og freista þess að eiga í sam­ræðum um fram­tíð norð­ur­slóða. Á þeim...

Mest lesið undanfarið ár