Óljóst hversu margir Íslendingar hafa hlotið herþjálfun

Utan­rík­is­ráð­neytið hefur ekki upp­lýs­ingar um hversu margir íslenskir rík­is­borg­arar hafa hlotið her­þjálfun und­an­farin 15 ár eða sinnt her­þjón­ustu á virkum átaka­svæðum.

Utanríkisráðuneytið
Utan­rík­is­ráðu­neytið Mynd: Bára Huld Beck

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur hvorki upp­lýs­ingar um fjölda íslenskra rík­is­borg­ara sem hafa sótt her­þjálfun erlendis síð­ustu 15 ár, né þá Íslend­inga sem hafa sinnt her­þjón­ustu á virkum átaka­svæðum.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Bryn­dísar Har­alds­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á Alþingi. Bryndís óskaði eftir upp­lýs­ingum um árlegan fjölda þeirra íslensku rík­is­borg­ara sem sótt hafa her­þjálfun frá 2010 til 2025 og í hvaða ríki hún hafi farið fram.

Bryndís Har­alds­dóttir

„Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki upp­lýs­ingar um fjölda íslenskra rík­is­borg­ara sem hafa sótt her­þjálfun erlendis, ráðu­neytið býr ein­ungis yfir upp­lýs­ingum um fjölda íslenskra rík­is­borg­ara sem hafa sótt um skóla­vist í norskum her­skóla,“ segir í svari ráð­herra. „Íslenskir rík­is­borg­arar hafa sam­kvæmt samn­ingi frá 1995 rétt til að sækja um skóla­vist við her­skóla í Noregi. Ferlið er á þann veg að umsækj­endur senda öll umsókn­ar­gögn á utan­rík­is­ráðu­neytið, ráðu­neyt­inu er gef­inn kostur til að gera athuga­semdir um umsókn­ina og áframsendir svo umsókn­ina til norska sendi­ráðs­ins á Íslandi. Öll sam­skipti sem fara fram eftir það eru á milli norska her­skól­ans og umsækj­anda beint og er ráðu­neytið ekki upp­lýst um það hvort umsækj­andi fái skóla­vist.“

Þá spurði Bryndís hversu margir íslenskir rík­is­borg­arar hafi sinnt her­þjón­ustu á virkum átaka­svæðum á árunum 2010 til 2025.  „Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki upp­lýs­ingar um íslenska rík­is­borg­ara sem sinna eða hafa sinnt her­þjón­ustu á virkum átaka­svæðum,“ segir í svar­inu.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Þessi fyrirspurn er dæmi um sóun á tíma starfsmanna utanríkisráðuneytisins, sjálfstæðisflokkurinn er búinn að vera við stjórn á Íslandi meira og minna frá 1944 og hefðu bara getað sótt þessar upplýsingar sjálfir, og hver er tilgangurinn með spurninguni?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár