Heimildarmynd um flóttamenn sem hlaut styrki frá ráðuneyti og ríkisstjórn sögð tilbúin

Heim­ild­ar­mynd um mót­töku og aðlögun sýr­lenskra flótta­manna á Íslandi er sögð til­búin. Gerð hennar hófst árið 2016 og átti að taka um eitt ár. Myndin fékk sex millj­óna króna styrki frá æðstu stöðum í stjórn­kerf­inu, sem vakti athygli á sínum tíma.

Eygló Harðardóttir þáverandi félagsmálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þáverandi forsætisráðherra taka hér á móti flóttamönnum á Keflavíkurflugvelli í upphafi árs 2016.
Eygló Harð­ar­dóttir þáver­andi félags­mála­ráð­herra og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra taka hér á móti flótta­mönnum á Kefla­vík­ur­flug­velli í upp­hafi árs 2016. Mynd: Stjórnarráðið

Heim­ild­ar­mynd fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Skotta Film um mót­töku hóps sýr­lenska flótta­manna er á loka­stigi og verður afhent Rík­is­út­varp­inu á næst­unni og von­andi tekin til sýn­inga í vetur. Þetta segir Árni Gunn­ars­son, fram­leið­andi mynd­ar­innar, í sam­tali við Kjarnann.

Beinir styrkir til gerðar mynd­ar­innar feng­ust frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og frá rík­is­stjórn­inni, að til­lögu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, í kringum ára­mótin 2015 og 2016, alls sex millj­ónir króna. Myndin átti að taka um það bil eitt ár í vinnslu, sam­kvæmt styrk­um­sókn­inni, sem RÚV fjall­aði um á sínum tíma. Einnig stóð til að nýta efnið sem til félli til gerðar kennslu­efnis um mál­efni flótta­manna fyrir grunn­skóla.

Þegar styrkirnir voru veittir sátu þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sem utan­ríkis- og for­sæt­is­ráð­herrar fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og mál­efni flótta­fólks frá Sýrlandi voru í brennid­epli á sviði alþjóða­mála.

„Hug­myndin er að gera heim­ild­ar­mynd um mót­töku og aðlögun þess­ara hópa hér á Íslandi og hvernig aðlögun geng­ur,” sagði Jóhannes Þór Skúlason um mynd­ina við Kjarnann í upp­hafi árs 2016, en hann var þá aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs.

Fram­leiðslu­fyr­ir­tækið sem gerir mynd­ina er í eigu Árna Gunn­ars­sonar, en hann er fyrr­ver­andi for­maður flótta­manna­ráðs og var einnig aðstoð­ar­maður Páls Pét­urs­sonar, sem var félags­mála­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks í kringum alda­mót. Árni hefur einnig verið vara­þing­maður flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Skotta Film er með höf­uð­stöðvar á Sauð­ár­króki.

Kjarninn spurð­ist nýlega fyrir um stöðu verk­efn­is­ins og í sam­eig­in­legu svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn­inni segir að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi fylgt verk­efn­inu eftir. Starfs­maður ráðu­neyt­is­ins hefur reglu­lega haft sam­band við Skotta Film til þess að „grennsl­ast fyrir um fram­gang verk­efn­is­ins“ og að ráðu­neytið hefði fengið upp­lýs­ingar um að verk­efnið væri „á loka­stigi.“

Vonast til að myndin verði sýnd í vetur

„Hún er til­búin núna,“ segir Árni við Kjarnann. „Það á eftir að lita­leið­rétta hana og afhenda hana RÚV,“ bætir hann við, en myndin er að sögn Árna nýlega komin úr klipp­ingu.

Hann segir vinnslu mynd­ar­innar hafa gengið þokka­lega. „Við ákváðum að taka okkur bara dálítið góðan tíma í þetta,“ segir Árni.

Við gerð mynd­ar­innar var farið til Líbanon og hitt á hóp sýr­lenskra flótta­manna sem komu til Íslands á árinu 2016 sem kvótaflótta­menn, meðal ann­ars til Akur­eyrar. Hópnum var að sögn Árna fylgt eftir í þrjú ár og síðan hefur eft­ir­vinnsla heim­ilda­mynd­ar­innar tekið um það bil eitt ár. 

„Ég veit ekki hvenær hún verður sýnd, en ég vona að hún verði sýnd í vetur,“ segir Árni.

Styrkveitingarnar þóttu óvenjulegar

Myndin fékk sem áður segir sex millj­óna króna styrk frá æðstu stöðum í stjórn­kerf­inu, þrjár millj­ónir frá þró­un­ar­sam­vinnu­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og þrjár millj­ónir af sam­eig­in­legu ráð­stöf­un­arfé rík­is­stjórn­ar­innar að til­lögu Sig­mundar Davíðs, sem var þá for­sæt­is­ráð­herra.

Styrk­veit­ing­arnar vöktu nokkra athygli og setti Kolbrún Hall­dórs­dóttir, þáver­andi for­seti Bandalag íslenskra lista­manna, spurn­inga­merki við styrk­veit­ingu rík­is­stjórn­ar­innar.

„Rík­is­stjórn­inni er auð­vitað í sjálfs­vald sett hvernig hún fer með sína fjár­muni - það hefði hins vegar verið betra að setja þessa umsókn í fag­legan far­veg,“ sagði Kolbrún við RÚV og bætti við að hún teldi að heppi­legra hefði verið að senda umsókn­ina til umfjöll­unar hjá kvik­mynda­sjóði Kvik­mynda­mið­stöðvar Íslands.

Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir, sem þá var for­maður Félags kvik­mynda­gerð­ar­manna, sagði sömu­leiðis við RÚV að styrk­ur­inn væri óvenju­legur, en það væri þó ánægju­efni ef hægt væri að leita til rík­is­stjórn­ar­innar eftir styrkjum til heim­ilda­mynda­gerðar og að styrk­ur­inn og upp­hæð hans sýndi að þetta væri greini­lega mik­il­vægt mál­efni fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið.

Myndin kom einnig til tals á stjórn­mála­svið­inu, en Björn Valur Gíslason, þáver­andi vara­for­maður Vinstri grænna, sagði styrk­ina til marks um spill­ingu. Stundin tók Árna tali á sínum tíma og spurði hann út í þessa gagn­rýni og tengsl sín við Gunnar Braga Sveins­son, sem er einnig frá Sauð­ár­króki.



„Það að vísu vill þannig til að við eigum börn í sama bekk í skóla. En hér þekkja nátt­úru­lega allir alla. Ef þú ert að fiska eftir því hvort ég hafi fengið þennan styrk út á kunn­ings­skap við Gunnar Braga þá vona ég að svo hafi ekki verið,“ sagði Árni við blaða­mann Stund­ar­innar, en í við­tal­inu tók hann jafn­framt fram að ekki væri um að ræða neina „áróð­urs­mynd fyrir for­sæt­is­ráð­herra.“

Aðal­á­hersla mynd­ar­innar átti að verða á aðlögun sýr­lenskra flótta­manna að líf­inu á Akureyri. „Þetta eru múslima­fjöl­skyldur sem þurfa að aðlag­ast kristnu sam­fé­lagi. Það verður virki­lega fróð­legt að sjá hvernig það gengur,“ sagði Árni við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár